Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
FUNI dúnúlpa
Kr. 33.990.-
GRÍMSEY hanskar
Kr. 2.990.-
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
HVÍTANES merino peysa
Kr. 13.990.-
MÍA tveggja laga regnjakki
Kr 18 990 -
RÖKKVI göngubuxur
Kr. 11.990.-
Þín útivist - þín ánægja
. . .
FÍFA síð Ecodown® úlpa
Kr. 29.990.-
Vindur úlpa fyrir börn
Kr. 18.990.-
Eyjafjallajökull hlý dúnúlpa
Kr. 48.990.-
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
reglugerðin sögð í tilkynningu frá
Stjórnarráðinu vera í raun bann við
notkun svartolíu innan landhelginnar
og var liður í að framfylgja aðgerða-
áætlun ríkisstjórnarinnar í loftslags-
málum.
Raunar var ekki um bann við
svartolíu að ræða heldur var veitt
undanþága ef stuðst væri við tæki
sem gætu hreinsað útblásturinn.
Undanþágan hefur einnig náð til tak-
markanna á brennisteini í eldsneyti.
„Reglugerðin á að stuðla að minni
loftmengun frá skipum, sem er já-
kvætt fyrir loftgæði og heilsu fólks,
en einnig að virka sem hvati til að
draga úr notkun mengandi eldsneyt-
is almennt. Hægt er að uppfylla kröf-
ur reglugerðarinnar með því að nota
minna mengandi eldsneyti, en einnig
er heimilt að nota viðurkenndar að-
ferðir til þess að draga úr losun, s.s.
að hreinsa brennistein o.fl. mengun-
arefni úr útblæstrinum með hreinsi-
búnaði,“ segir í svari umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins við fyrirspurn
blaðamanns.
Til er þrenns konar hreinsibúnað-
ur og segir í svarinu að opin kerfi séu
algengust [á heimsvísu] en við notk-
un þeirra er „útblásturinn leiddur í
gegnum vatnsúða sem tekur upp
brennisteininn og er hreinsivatnið
síðan leitt í sjóinn. Í hreinsivatnið
fara auk brennisteins, agnir, málmar
og efni sem myndast við bruna elds-
neytisins, þ.e. fjölhringja kolefnis-
sambönd (PAH, polyaromatic hy-
drocarbons) og
köfnunarefnissambönd (NOx).
Hætta af þessum völdum fyrir lífríki
og heilsu manna er lítil þegar reglum
er fylgt.“
Brotna síður niður í sjó
PAH-efnin sem með hreinsibúnaði
er dælt í sjóinn eru þó ekki úr sög-
unni þar sem þessi efna teljast til
þrávirkra efna og er sólarljós aðal-
þáttur í niðurbroti þeirra samkvæmt
upplýsingum frá Umhverfisstofu.
„Hryggdýr geta brotið niður PAH en
umbrotsefnin geta verið skaðlegri en
PAH-efnin sjálf. PAH-brotna ágæt-
lega niður í andrúmslofti og við súr-
efnisríkar aðstæður en geta safnast
upp í setlögum og súrefnissnauðu
vatni ekki síst á köldum svæðum og
þar sem lítið er af sólarljósi. PAH eru
sérlega hættuleg lífríki í hafi, vatna-
svæðum og í seti,“ segir í skýringu
stofnunarinnar á takmörkunum á
notkun PAH-efna.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
viðurkennir í svari sínu að losun
hreinsivatns geti aukið álag á um-
hverfið þar sem um er að ræða þunga
skipaumferð í ám og við strendur þar
sem endurnýjun sjávar er lítil. „Slík-
ar aðstæður eru t.d. sums staðar við
strendur Evrópu, en ekki hér við
land. Almennt telst mengun sjávar
hér við land lítil, sbr. nýlega saman-
tekt umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins. […] Samkvæmt nýjustu
skýrslu Umhverfisstofnunar fyrir ár-
ið 2019 var losun PAH-efna á Íslandi
87 kg (miðað við samtölu fjögurra
PAH efna). Helstu uppsprettur
PAH-efna í umhverfinu voru sorp-
brennsla, ál- og járnblendifram-
leiðsla og bílaumferð. PAH efni ber-
ast aðallega í fólk með matvælum.
Ógætileg meðferð þeirra, svo sem við
reykingu og grillun matar, getur
einnig haft áhrif, auk þess sem PAH-
efni berast í fólk með tóbaksreyk.“
Vert er að vekja athygli á að meðal
skipa með útblásturshreinsibúnað
sem skráð eru hér á landi eru öll
fiskiskip með lokað kerfi. Í þessum
tilfellum er úrgangi safnað saman og
fargað á viðeigandi hátt þegar komið
er í land.
Mikilvægt að nota á réttan hátt
Í september 2019 var fyrir slysni
úrgangi dælt úr hreinisbúnaði Lag-
arfoss í höfninna í Vestmannaeyjum.
Hvatti rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa í kjölfarið yfirvöld til að meta
hvort ekki sé ástæða til að banna op-
inn hreinsibúnað við strendur lands-
ins. Taldi Umhverfisstofnun einnig
ástæðu til að skoða hvort ætti að end-
urskoða ákvæði um hreinsibúnað.
„Ráðuneytið hefur farið yfir
ábendingar frá Rannsóknanefnd
samgönguslysa, en telur ekki ástæðu
til að endurskoða reglugerð um elds-
neyti í íslenskri landhelgi í kjölfar
þeirra. Ráðuneytið tekur undir mik-
ilvægi þess að mengunarvarnarbún-
aður sé notaður á réttan hátt þannig
að ekki verði losun í sjó í höfnum eins
og gerðist í því tilviki sem Rann-
sóknanefndin hafði til skoðunar.
Ekki er þó ástæða til að ætla að
heilsu manna hafi verið ógnað í tilvik-
inu sem um ræddi og ekki er ástæða
til að ætla að vothreinsibúnaður í
skipum valdi tjóni fyrir heilsu manna
og lífríkis á Íslandsmiðum,“ segir í
svari ráðuneytisins.
Lengi tekur sjórinn við
- Umhverfis- og auðlindaráðuneytið telur ekki ástæðu til að banna skipum að dæla mengun í sjóinn
- Niðurbrot PAH-efnanna er mun betra í andrúmsloftinu en í sjónum - Hreyfing sjávar leysi málið
Morgunblaðið/Eggert
Losun Tvö skemmtiferðaskip við Skarfabakka. Flest skemmtiferðaskip nota útblásturshreinsibúnað.
FRÉTTASKÝRING
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
telur ekki ástæðu til þess að banna
útblásturshreinsibúnað skipa sem
dælir úrgangi í sjóinn þrátt fyrir að
efni sem gæti haft áhrif á heilsu
manna brotni síður niður í köldum
sjó en í andrúmsloftinu. Ástæðan er
sögð vera að við Ísland séu haf-
straumar sem leiða burt mengunina
sem tryggir minni þéttleika efnanna í
hafinu.
Í fyrra birti breska dagblaðið Gu-
ardian upplýsingar úr innanhúss-
skýrslu Alþjóðasiglingamálastofnun-
ar um hugsanlega skaðleg áhrif
opinna útblásturshreinsunarkerfa
sem losa PAH-efni í sjóinn og hvern-
ig þau gætu haft áhrif á heilsu manna
í gegnum fisk og skeldýr. Efnin hafa
meðal annars verið talin auka líkur á
húð-, lungna-, þvagblöðru-, lifrar- og
magakrabbameinum.
„Engar vísbendingar eru um að
PAH-efni í hafi við Ísland séu
áhyggjuefni varðandi heilsu manna.
Matís hefur fylgst með magni óæski-
legra efna í sjávarfangi. Í skýrslu
Matís frá 2010 kemur fram að PAH-
efni hafi ekki fundist í neinum þeirra
fisksýna sem mæld voru nema í grá-
lúðu og að þar hafi styrkurinn sem
mældist ekki talist hættulegur
heilsu,“ segir í svari umhverfis- og
auðlindaráðeytisins við fyrirspurn
blaðamanns.
Bann sem var ekki bann
Árið 2018 voru reglur um brenni-
steinsmengun í íslenskri landhelgi
hertar og árið á eftir undirritaði Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson, um-
hverfis- og auðlindaráðherra, reglu-
gerð um hertar kröfur varðandi
eldsneyti í íslenskri landhelgi. Var
Afurðaverð á markaði
27. okt. 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 156,40
Þorskur, slægður 565,57
Ýsa, óslægð 465,49
Ýsa, slægð 389,06
Ufsi, slægður 244,62
Djúpkarfi 213,40
Gullkarfi 248,60
Blálanga, slægð 279,56
Langa, óslægð 332,53
Langa, slægð 311,84
Keila, óslægð 62,25
Keila, slægð 105,78
Steinbítur, slægður 522,06
Skötuselur, slægður 675,01
Grálúða, slægð 391,20
Skarkoli, slægður 463,30
Þykkvalúra, óslægð 320,00
Þykkvalúra, slægð 578,86
Langlúra, óslægð 248,78
Skrápflúra, óslægð 13,00
Skrápflúra, slægð 15,00
Bleikja, flök 3.176,00
Regnbogasilungur, flök 3.176,00
Gulllax 28,00
Hlýri, óslægður 87,00
Hlýri, slægður 524,58
Lúða, slægð 363,59
Lýsa, óslægð 91,80
Lýsa, slægð 119,89
Maríuskata, slægð 10,00
Náskata, óslægð 28,75
Stórkjafta, slægð 135,97
Undirmálsýsa, óslægð 143,00
Undirmálsýsa, slægð 206,00
Undirmálsþorskur, óslægður 224,97
Undirmálsþorskur, slægður 216,33