Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is FUNI dúnúlpa Kr. 33.990.- GRÍMSEY hanskar Kr. 2.990.- ASOLO Falcon Kr. 29.990.- HVÍTANES merino peysa Kr. 13.990.- MÍA tveggja laga regnjakki Kr 18 990 - RÖKKVI göngubuxur Kr. 11.990.- Þín útivist - þín ánægja . . . FÍFA síð Ecodown® úlpa Kr. 29.990.- Vindur úlpa fyrir börn Kr. 18.990.- Eyjafjallajökull hlý dúnúlpa Kr. 48.990.- Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum reglugerðin sögð í tilkynningu frá Stjórnarráðinu vera í raun bann við notkun svartolíu innan landhelginnar og var liður í að framfylgja aðgerða- áætlun ríkisstjórnarinnar í loftslags- málum. Raunar var ekki um bann við svartolíu að ræða heldur var veitt undanþága ef stuðst væri við tæki sem gætu hreinsað útblásturinn. Undanþágan hefur einnig náð til tak- markanna á brennisteini í eldsneyti. „Reglugerðin á að stuðla að minni loftmengun frá skipum, sem er já- kvætt fyrir loftgæði og heilsu fólks, en einnig að virka sem hvati til að draga úr notkun mengandi eldsneyt- is almennt. Hægt er að uppfylla kröf- ur reglugerðarinnar með því að nota minna mengandi eldsneyti, en einnig er heimilt að nota viðurkenndar að- ferðir til þess að draga úr losun, s.s. að hreinsa brennistein o.fl. mengun- arefni úr útblæstrinum með hreinsi- búnaði,“ segir í svari umhverfis- og auðlindaráðuneytisins við fyrirspurn blaðamanns. Til er þrenns konar hreinsibúnað- ur og segir í svarinu að opin kerfi séu algengust [á heimsvísu] en við notk- un þeirra er „útblásturinn leiddur í gegnum vatnsúða sem tekur upp brennisteininn og er hreinsivatnið síðan leitt í sjóinn. Í hreinsivatnið fara auk brennisteins, agnir, málmar og efni sem myndast við bruna elds- neytisins, þ.e. fjölhringja kolefnis- sambönd (PAH, polyaromatic hy- drocarbons) og köfnunarefnissambönd (NOx). Hætta af þessum völdum fyrir lífríki og heilsu manna er lítil þegar reglum er fylgt.“ Brotna síður niður í sjó PAH-efnin sem með hreinsibúnaði er dælt í sjóinn eru þó ekki úr sög- unni þar sem þessi efna teljast til þrávirkra efna og er sólarljós aðal- þáttur í niðurbroti þeirra samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofu. „Hryggdýr geta brotið niður PAH en umbrotsefnin geta verið skaðlegri en PAH-efnin sjálf. PAH-brotna ágæt- lega niður í andrúmslofti og við súr- efnisríkar aðstæður en geta safnast upp í setlögum og súrefnissnauðu vatni ekki síst á köldum svæðum og þar sem lítið er af sólarljósi. PAH eru sérlega hættuleg lífríki í hafi, vatna- svæðum og í seti,“ segir í skýringu stofnunarinnar á takmörkunum á notkun PAH-efna. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið viðurkennir í svari sínu að losun hreinsivatns geti aukið álag á um- hverfið þar sem um er að ræða þunga skipaumferð í ám og við strendur þar sem endurnýjun sjávar er lítil. „Slík- ar aðstæður eru t.d. sums staðar við strendur Evrópu, en ekki hér við land. Almennt telst mengun sjávar hér við land lítil, sbr. nýlega saman- tekt umhverfis- og auðlindaráðu- neytisins. […] Samkvæmt nýjustu skýrslu Umhverfisstofnunar fyrir ár- ið 2019 var losun PAH-efna á Íslandi 87 kg (miðað við samtölu fjögurra PAH efna). Helstu uppsprettur PAH-efna í umhverfinu voru sorp- brennsla, ál- og járnblendifram- leiðsla og bílaumferð. PAH efni ber- ast aðallega í fólk með matvælum. Ógætileg meðferð þeirra, svo sem við reykingu og grillun matar, getur einnig haft áhrif, auk þess sem PAH- efni berast í fólk með tóbaksreyk.“ Vert er að vekja athygli á að meðal skipa með útblásturshreinsibúnað sem skráð eru hér á landi eru öll fiskiskip með lokað kerfi. Í þessum tilfellum er úrgangi safnað saman og fargað á viðeigandi hátt þegar komið er í land. Mikilvægt að nota á réttan hátt Í september 2019 var fyrir slysni úrgangi dælt úr hreinisbúnaði Lag- arfoss í höfninna í Vestmannaeyjum. Hvatti rannsóknarnefnd samgöngu- slysa í kjölfarið yfirvöld til að meta hvort ekki sé ástæða til að banna op- inn hreinsibúnað við strendur lands- ins. Taldi Umhverfisstofnun einnig ástæðu til að skoða hvort ætti að end- urskoða ákvæði um hreinsibúnað. „Ráðuneytið hefur farið yfir ábendingar frá Rannsóknanefnd samgönguslysa, en telur ekki ástæðu til að endurskoða reglugerð um elds- neyti í íslenskri landhelgi í kjölfar þeirra. Ráðuneytið tekur undir mik- ilvægi þess að mengunarvarnarbún- aður sé notaður á réttan hátt þannig að ekki verði losun í sjó í höfnum eins og gerðist í því tilviki sem Rann- sóknanefndin hafði til skoðunar. Ekki er þó ástæða til að ætla að heilsu manna hafi verið ógnað í tilvik- inu sem um ræddi og ekki er ástæða til að ætla að vothreinsibúnaður í skipum valdi tjóni fyrir heilsu manna og lífríkis á Íslandsmiðum,“ segir í svari ráðuneytisins. Lengi tekur sjórinn við - Umhverfis- og auðlindaráðuneytið telur ekki ástæðu til að banna skipum að dæla mengun í sjóinn - Niðurbrot PAH-efnanna er mun betra í andrúmsloftinu en í sjónum - Hreyfing sjávar leysi málið Morgunblaðið/Eggert Losun Tvö skemmtiferðaskip við Skarfabakka. Flest skemmtiferðaskip nota útblásturshreinsibúnað. FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Umhverfis- og auðlindaráðuneytið telur ekki ástæðu til þess að banna útblásturshreinsibúnað skipa sem dælir úrgangi í sjóinn þrátt fyrir að efni sem gæti haft áhrif á heilsu manna brotni síður niður í köldum sjó en í andrúmsloftinu. Ástæðan er sögð vera að við Ísland séu haf- straumar sem leiða burt mengunina sem tryggir minni þéttleika efnanna í hafinu. Í fyrra birti breska dagblaðið Gu- ardian upplýsingar úr innanhúss- skýrslu Alþjóðasiglingamálastofnun- ar um hugsanlega skaðleg áhrif opinna útblásturshreinsunarkerfa sem losa PAH-efni í sjóinn og hvern- ig þau gætu haft áhrif á heilsu manna í gegnum fisk og skeldýr. Efnin hafa meðal annars verið talin auka líkur á húð-, lungna-, þvagblöðru-, lifrar- og magakrabbameinum. „Engar vísbendingar eru um að PAH-efni í hafi við Ísland séu áhyggjuefni varðandi heilsu manna. Matís hefur fylgst með magni óæski- legra efna í sjávarfangi. Í skýrslu Matís frá 2010 kemur fram að PAH- efni hafi ekki fundist í neinum þeirra fisksýna sem mæld voru nema í grá- lúðu og að þar hafi styrkurinn sem mældist ekki talist hættulegur heilsu,“ segir í svari umhverfis- og auðlindaráðeytisins við fyrirspurn blaðamanns. Bann sem var ekki bann Árið 2018 voru reglur um brenni- steinsmengun í íslenskri landhelgi hertar og árið á eftir undirritaði Guð- mundur Ingi Guðbrandsson, um- hverfis- og auðlindaráðherra, reglu- gerð um hertar kröfur varðandi eldsneyti í íslenskri landhelgi. Var Afurðaverð á markaði 27. okt. 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 156,40 Þorskur, slægður 565,57 Ýsa, óslægð 465,49 Ýsa, slægð 389,06 Ufsi, slægður 244,62 Djúpkarfi 213,40 Gullkarfi 248,60 Blálanga, slægð 279,56 Langa, óslægð 332,53 Langa, slægð 311,84 Keila, óslægð 62,25 Keila, slægð 105,78 Steinbítur, slægður 522,06 Skötuselur, slægður 675,01 Grálúða, slægð 391,20 Skarkoli, slægður 463,30 Þykkvalúra, óslægð 320,00 Þykkvalúra, slægð 578,86 Langlúra, óslægð 248,78 Skrápflúra, óslægð 13,00 Skrápflúra, slægð 15,00 Bleikja, flök 3.176,00 Regnbogasilungur, flök 3.176,00 Gulllax 28,00 Hlýri, óslægður 87,00 Hlýri, slægður 524,58 Lúða, slægð 363,59 Lýsa, óslægð 91,80 Lýsa, slægð 119,89 Maríuskata, slægð 10,00 Náskata, óslægð 28,75 Stórkjafta, slægð 135,97 Undirmálsýsa, óslægð 143,00 Undirmálsýsa, slægð 206,00 Undirmálsþorskur, óslægður 224,97 Undirmálsþorskur, slægður 216,33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.