Morgunblaðið - 28.10.2021, Page 41

Morgunblaðið - 28.10.2021, Page 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Taktar Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur farið á kostum í síðustu leikjum. Hér sýnir Sveindís Jane Jónsdóttir takta í leiknum gegn Kýpur í fyrrakvöld en þar skoraði hún tvö mörk í 5-0-sigri. Unnur Karen Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru grafalvarlegur, hnatt- rænn umhverfisvandi enda virðir mengun engin landamæri. Eftir því sem ógnir loftslags- breytinganna koma skýrar fram, verður leitin að bjargráðum ákafari. Mikilvægast er að hætta brennslu jarð- efna á borð við kol, gas og olíu. En hvað á að koma í staðinn? Öll nútímasamfélög ganga fyrir orku. Þó að mörg ríki leggi áherslu á aukna framleiðslu grænnar orku, s.s. með virkjun vinds og sól- arvarma, dugir það enn ekki til. Slík er orkuþörfin. Sam- kvæmt nýrri skýrslu SÞ gera þjóðir heims ráð fyrir því að fram- leiða að óbreyttu 240 prósentum meira af kolum, 57 prósentum meira af olíu og 71 pró- senti meira af gasi fram til ársins 2030. Hvað geta Íslendingar gert? Endurheimt votlendis, rafvæðing bílaflotans, vistvæn orka til skipa og aukin skógrækt eru þær mót- aðgerðir sem liggur beinast við að við Íslendingar ráðumst í. En hnatt- rænn umhverfisvandi leysist ekki með því að hver þjóð hugsi bara um sjálfa sig. Við hjá Flokki fólksins viljum nýta hreinar orkulindir lands- ins af skynsemi og ábyrgð svo draga megi úr mengun, samhliða náttúru- vernd. Þar er mögulegt framlag okkar til loftslagsmála á heimsvísu ekki undanskilið. Loftslagsmál og orkumál eru óað- skiljanlegir málaflokkar. Ég verð seint talinn til ákafra virkjanasinna en mér virðist sýn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á þessi mál skynsamleg. Fyrir nýafstaðnar kosningar lögðu báðir flokkarnir til að Íslendingar hæfu útflutning á grænni orku í formi rafeldsneytis. Þannig gæti sprottið hér upp nýr og spennandi iðnaður ásamt tilheyrandi atvinnusköpun og ávinningi í lofts- lagsmálum. Ljóst er að losa verður rammaáætlun úr höftum kyrrstöðu, öfgalaust, og horfa m.a. til kosta þess að nýta vindorku. Eðlilegt virð- ist jafnframt að sveitarfélög og íbúar komi í auknum mæli að því að ákvarða hvar mörkin á milli nýt- ingar grænna orkukosta og náttúru- verndar liggja. Það er ekki nóg að viðurkenna loftslagsvandann – við verðum líka að horfast í augu við tækifærin og hvernig við Íslendingar getum axlað okkar ábyrgð. Skynsamleg nýting orkukosta og öflug náttúruvernd geta vel farið saman. Þær áskoranir bíða nýrrar ríkisstjórnar. Eftir Jakob Frí- mann Magnússon »Endurheimt votlend- is, rafvæðing bíla- flotans, vistvæn orka til skipa og aukin skóg- rækt eru þær mót- aðgerðir sem liggur beinast við að við Ís- lendingar ráðumst í. Jakob Frímann Magnússon Höfundur er stofnandi Græna hersins og þingmaður Flokks fólksins. Áskoranir nýrrar ríkisstjórnar í loftslagsmálum Fjölmargar stofnanir ríkis og sveitarfélaga hafa eftirlit með þjón- ustu og framleiðslu fyr- irtækjanna í landinu. Almennt fer eftirlitið þannig fram að starfs- maður stofnunar kemur í heimsókn og kannar hvort aðstæður í fyrir- tækinu séu í samræmi við lög og reglur. Skoð- uð eru skjöl og önnur gögn, rætt við fólk og lagt mat á hvort gera þurfi athugasemdir við starfsem- ina stórar eða smáar. Veittur er tiltek- inn frestur til úrbóta og síðan taka við þyngri aðgerðir, álagning sekta eða jafnvel stöðvun starfsemi að hluta eða í heild. Fyrirtækin búa við að eftirlitsmenn margra stofnana koma í heimsókn þar sem hver tekur til skoðunar þá þætti sem honum ber en lætur aðra af- skiptalausa. Vinnueftirlit, níu heil- brigðiseftirlit hvert á sínu svæði jafn- vel með mismunandi kröfur, Umhverfisstofnun, Matvælastofnun og Fiskistofa eru dæmi um opinbera aðila sem senda fólk út af örkinni. Eftirlit með að vörur á markaði uppfylli settar kröfur hafa m.a. Neyt- endastofa, Umhverfisstofnun, Vinnu- eftirlit, heilbrigðiseftirlitin, Mat- vælastofnun og Fjarskiptastofa og heimsækja í þessu skyni verslanir og skoða upplýsingar á merkimiðum og jafnvel verðmerkingar. Vit vinnur meira en strit Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur verið lagt niður og annast skoðunarstofur á almennum markaði þá þjónustu án teljandi vandkvæða. En vinnuvélar og alls kyns önnur tæki sem lúta svip- uðum lögmálum og bílar eru undir eftirliti Vinnu- eftirlits og vandséð hvers vegna ekki er unnt að fela skoðunarstofum þetta eftirlit. Allar lyftur lands- ins fá árlega heimsókn frá Vinnueftirlitinu og er það til viðbótar eftirliti framleiðenda og mun Ís- land eitt hafa þennan háttinn á þegar horft er til nágrannalandanna. Eftirlit með póst- og fjarskipta- þjónustu er nú komið til Byggðastofn- unar og Fjarskiptastofu en eftirlit með öryggi vöru hefur verið flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Ekki má gleyma Samkeppnis- eftirlitinu sem virðist nú hafa tekið upp hjá sér að hafa skoðun á og vilja takmarka umfjöllun hagsmuna- samtaka um efnahagsmál. Hér hefur ekki verið minnst á öll leyfi sem þessar stofnanir veita en mætti að ósekju fækka mikið með því að leggja áherslu á að fyrirtækin til- kynni starfsemi sína og leggja með því áherslu á atvinnufrelsi og að fólk geti stofnað til reksturs án þess að leggja inn umsóknir um leyfi. Að sjálfsögðu þurfa viðkomandi að kynna sér reglur sem um starfsemina gilda. Á ýmsum sviðum hefur ríkið tekið til í stofnanauppbyggingu þar sem nefna má löggæsluna, skattinn og jafnvel dómstólana. Tækifærin blasa við Það blasa við tækifæri til að stokka upp eftirlitsstofnanirnar í landinu með hagræðingu að leiðarljósi án þess að slaka á kröfum eða fórna hags- munum almennings. Það má ekki vera þannig að skipting verkefna milli ráðuneyta ráði því að reka þurfi allar þessar stofnanir. Þær verða að geta sinnt verkefnum sem tengjast mörg- um ráðuneytum og fleiru en einum lagabálki en geta þá kallað á sér- fræðiþjónustu þar sem hennar er þörf. Það má jafnvel hafa í huga að á síð- ustu árum hefur virkt eftirlit almenn- ings með þjónustu, gæðum og verð- lagi tekið miklum breytingum með þátttöku fólks á samfélagsmiðlum. Þar er þjónustan vegin og metin og fyrirtækin bregðast í flestum tilvikum hratt og vel við. Þetta er mun fljót- virkara en stopular og tilviljana- kenndar heimsóknir opinbers eftir- litsfólks. Nútímalegar aðferðir eins og raf- rænt eftirlit með gæðakerfum, eftirlit með tilviljanakenndu úrtaki, töl- fræðigreiningar og skoðanir með tilliti til metinnar áhættu geta skilað hag- ræðingu og betri þjónustu en á sama tíma uppfyllt kröfur um nauðsyn op- inbers eftirlits með tiltekinni starf- semi. Í upphafi kjörtímabils er þetta kjör- ið verkefni nýrrar ríkisstjórnar. Uppstokkun eftirlits er brýn Eftir Halldór Benja- mín Þorbergsson » Það blasa við tæki- færi til að stokka upp eftirlitsstofnanirnar í landinu með hagræðingu að leiðarljósi án þess að slaka á kröfum eða fórna hagsmunum almennings. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins. Reykjavíkurborg stendur nú í miklu átaki fyrir betri grunn- skóla í borginni. Í september samþykkti borgarstjórn nýtt út- hlutunarlíkan fyrir grunnskóla Reykjavík- ur. Það kallast Edda og mun skapa for- sendur fyrir raunhæf- ari og betri fjár- mögnun fyrir hvern grunnskóla borgarinnar. Reykjavíkurborg hefur allt of lengi búið við plástrað líkan, sem ekki mætir þörfum skólanna. Skól- arnir eru mismunandi og samsetn- ing nemenda er líka misjöfn. Við því þurfti að bregðast og því var farið í það átak að þróa nýtt úthlut- unarlíkan með aðkomu skóla- og fjármálasérfræðinga ásamt fulltrú- um frá skólastjórnendum. Aukið fjármagn í skólana Þegar úthlutunarlík- anið var klárt var ljóst að rekstur grunnskóla þarf í heild aukið fjár- magn. Við því þarf að bregðast í fjárhags- áætlun borgarinnar og í september samþykkti borgarráð að vísa því til fjárhagsáætlunar að fjárheimildir skóla- og frístundasviðs hækki um rúmlega 1,5 millj- arða. Það þarf bæði að huga að öllu umhverfi skólastarfsins, en verið er að ljúka við heildarúttekt á við- haldsþörf grunnskóla í borginni. Þegar sú mynd liggur fyrir þarf að forgangsraða framkvæmdum en fyrir liggur að fjárveitingar til end- urnýjunar eldra skólahúsnæði verða stórhækkaðar. Í fjárfestingar- áætlun þessa árs var gert ráð fyrir 3,085 milljörðum í fjárfestingar vegna skóla, þar af 2,1 milljarði vegna viðhalds á húsnæði. Áætlunin gerir ráð fyrir að þær upphæðir muni hækka, bæði á næsta og þar næsta ári. Aukið faglegt frelsi Við viljum treysta skólastjórn- endum til að þekkja sitt nær- umhverfi og hvernig best sé að skipuleggja starf skólanna miðað við þarfir nemenda. Á því byggist úthlutunarlíkanið, sem mun efla faglegt frelsi og ábyrgð skólastjórn- enda. Líkanið mun einnig auka gagnsæi, fyrirsjáanleika og jafn- ræði á milli skóla og hverfa borg- arinnar. Í úthlutunarlíkaninu er tekið til- lit til mismunandi félagslegra og lýðfræðilegra þátta hvers skóla við úthlutun fjármagns. Með því drög- um við úr aðstöðumun á milli skóla. Dregið er úr áherslu á formlegar greiningar og lagður til stuðningur við börn eftir þörfum þeirra. Á því munu börnin okkar græða. Látum skólastjórnendur ráða hvaða fagfólk þarf Þverfaglegt samstarf innan skóla er stefna Viðreisnar í mennta- málum. Við viljum mæta fjöl- breyttum þörfum nemenda með teymisstarfi fagfólks á sviðum vel- ferðar, heilbrigðis og skóla eða því sem þurfa þykir. Grunnskólar Reykjavíkur munu fá aukið rými til að ráða fagfólk, sem ekki er kennarar, til að styðja við skólastarfið. Fagfólkið getur verið sálfræðingar, þroskaþjálfar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar eða aðr- ir sérfræðingar. Allt eftir áherslum og þörfum hvers skóla. Eftir því sem fleiri börn þurfa stuðning í skólanum, því fleiri fagaðila verður hægt að ráða. Frelsi fylgir ábyrgð Líkaninu fylgir líka aukin ábyrgð skólastjórnenda um að starf skólans sé innan fjárheimilda hverju sinni. Til þess munu skólastjórar fá stuðn- ing frá rekstrarstjóra og ef þörf krefur fjármálaráðgjöfum og fjár- málastjóra skóla- og frístundasviðs. Fylgst verður með því ef rekstur fer umfram fjárheimildir og skólar krafðir um tímasettar úrbætur. Þó svo að líkanið hafi verið unnið í góðu samstarfi við skólastjóra í borginni, þá getur ýmislegt komið í ljós þegar það er komið í notkun og vel getur verið að það þurfi að sníða af því vankanta. Þá þurfum við að gæta þess að búa ekki til sama plástraða og flókna kerfi og við er- um nú að hverfa frá. Vinnan við úthlutunarlíkanið var góð. Næsta skref þarf að vera álíka líkan sem unnið er fyrir leikskóla borgarinnar, þar sem horfið verður frá flóknu kerfi og úthlutun úr pott- um. Eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur » Skólar Reykjavíkur munu fá aukið rými til að ráða fagfólk, sem ekki er kennarar, til að styðja við skólastarfið. T.a.m. sálfræðinga eða þroskaþjálfa. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Höfundur er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Enn betri skólar í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.