Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Ég vil að íslenskt skólakerfi verði meðal tíu fremstu innan OECD fyrir árið 2040. Við höfum dregist aft- ur úr í alþjóðlegum samanburði en þurfum að setja stefnuna á fremstu röð. Mælumst með þeim lægstu Árið 2003 mældist íslenskt skóla- kerfi það 13. besta innan OECD, en í dag skipar íslenska kerfið 31. sætið. Ísland er á niðurleið í stærð- fræðilæsi, lesskilningi og vísindalæsi samkvæmt niðurstöðum PISA- könnunar. Ísland er undir OECD- meðaltali í öllum mældum náms- greinum og mælist verst allra Norð- urlandaþjóða. Hlutfall þeirra sem sækja verkmenntun hérlendis er meðal þess lægsta innan OECD og hlutfall þeirra sem eru líklegir til að ljúka meistaragráðu fyrir 25 ára ald- ur er jafnframt meðal þess lægsta. Þeir fjármunir sem íslenskt sam- félag ver í hvern grunnskólanema er 40% yfir OECD-meðaltali. Samt sem áður mælast gæði skólastarfs sífellt verr í samanburði þjóða. Lyfta þarf grettistaki í menntamálum. Höfuðborgin þarf að taka forystu. Árangur sjálfstæðra skóla Holland mælist meðal efstu þjóða í PISA-könnunum, jafnvel ofar en fyrirheitna landið Finnland. Í því samhengi er athyglisvert að rýna langa hefð þarlendis fyrir einka- reknum skólum, en um 70% allra hollenskra grunnskólabarna sækja nám í einkareknum skólum. Skól- arnir eru sjálfstæðir í störfum sín- um, en innheimta ekki skólagjöld enda fjármagnaðir af hinu opinbera. Hérlendis eru aðeins 13 einka- reknir grunnskólar en nemendur þeirra eru um 2,3% allra grunn- skólabarna landsins. Til saman- burðar er fjórðungur allra grunn- skólabarna í Kaupmannahöfn í sjálfstætt starfandi skólum. Í Reykjavík mætti styðja betur við sjálfstætt starfandi skóla svo auðga megi skólaflóru borgarinnar. Í dag þiggja skólarnir skert framlög, en ef jöfn opinber framlög fylgdu hverju skólabarni mætti treysta grundvöll skól- anna. Jafnframt gætu skólarnir lagt niður skólagjöld og tryggt öllum börnum jöfn tækifæri til að sækja slíka skóla, óháð efna- hag foreldra. Þannig mætti veita foreldrum fleiri valkosti í skóla- málum og tækifæri til að velja milli ólíkra áherslna í uppeldi og menntun barna sinna. Skapandi framtíð Færni til skapandi hugsunar hef- ur um nokkra hríð verið talin nauð- synlegur hluti af almennri menntun. Reykjavíkurborg hefur löngum gef- ið fyrirheit um aukið vægi listgreina og verkgreina í skólastarfi borg- arinnar. Mikilvægi sköpunar er jafn- framt undirstrikað sérstaklega í menntastefnu Reykjavíkur. En þrátt fyrir fögur fyrirheit fer lítið fyrir innleiðingu og skólakerfið þróast á hraða snigils. Við horfum fram á fjórðu iðnbylt- inguna. Færniþættir framtíðar verða að líkindum frábrugðnir færniþáttum fortíðar. Fyrirséð er að tölvur muni leysa fjölmörg störf af hólmi. Einhverjir hafa jafnvel áætl- að framtíðina hafa litla þörf fyrir þá þekkingu sem aldagamalt skólakerfi skilur eftir hjá nemendum. Meiri áherslu mætti leggja á færni líkt og skapandi og gagnrýna hugsun. Íslenskt skólakerfi mælist ekki nægilega vel í PISA-könnunum. Það er þó huggun harmi gegn að slíkar kannanir mæla ekki allt skólakerfið – þær geta ekki talist alhliða mæli- kvarði á árangur. Þetta stendur þó til bóta því fyrirhugað er til fram- tíðar að mæla getu nemenda til skapandi hugsunar – færni þeirra til þátttöku í sköpun og mati á frum- legum hugmyndum að nýjum lausn- um. Jafnframt verði metið hvernig börnum farnast að tjá hugsanir sín- ar og hugmyndir. Ísland hefur alla burði til að standa framarlega í mælingum og þjálfun á öllum þáttum PISA- könnunar, hvort sem um er rætt læsi, stærðfræði eða skapandi hugs- un. Það eina sem þarf er pólitísk ákvörðun og metnaður til fram- fylgni. Höfuðborg í forystu Íslensku skólakerfi er vandi á höndum. Við stöndum ekki nægilega sterk í alþjóðlegum samanburði. Námsárangur við lok grunnskóla er slakur og menntakerfið hefur brugð- ist í undirbúningi fyrir síðari stig skólagöngu. Við stöndum á tímamót- um. Eitthvað þarf að breytast. Ég trúi því að sérhvert barn hafi eitthvað mikilvægt fram að færa – að eitt verðugasta verkefni skóla- kerfisins verði ávallt að tryggja öll- um börnum jöfn tækifæri til að leita hæfileika sinna – og efla með þeim sjálfstraust til að skapa úr hæfi- leikum sínum tækifæri og verðmæti. Það byggir á trú minni á einstakling- inn og samfélag þar sem enginn er skilinn eftir. Ætli skólakefið að virkja sérhvern einstakling til samfélagsþátttöku þarf að mæta óíkum þörfum – tryggja fjölþættar lausnir og fjöl- breytt námsmat. Það gerum við með fjölbreyttum valkostum í lifandi skólaflóru. Við þurfum skólakerfi sem treystir hefðbundinn grunn í stærðfræði og læsi – en gengur lengra í áherslum á skapandi hugs- un, list- og verkgreinar og tækni- mennt. Setjum okkur metnaðarfull mark- mið. Stefnum að því að koma ís- lensku skólakerfi í röð 10 fremstu innan OECD fyrir árið 2040. Styðj- um við kennarastéttina og sköpum öllum börnum tækifæri til að njóta hæfileika sinna. Höfuðborgin taki forystu og leiði stórstíg framfara- skref í menntamálum – samfélaginu öllu til heilla. Eftir Hildi Björnsdóttur » Setjum okkur metn- aðarfull markmið. Stefnum að því að koma íslensku skólakerfi í röð tíu fremstu innan OECD fyrir árið 2040. Hildur Björnsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. hildurb@reykjavik.is Skólakerfi í fremstu röð Undanfarin misseri hef ég skrifað nokkr- ar greinar í Morg- unblaðið, m.a. um ým- isleg kínversk málefni bæði hér á landi og í Kína. Hefur það farið fyrir brjóstið á Kín- verjum, einkum þá vegna umfjöllunar minnar um kínversku Covid-19-veiruna og fólskulega meðferð Kínverja á Úíg- úrum í Xinjianghéraði í norðvest- urhluta Kína, sem greinilega hvor- ugt mátti minnast á að mati Kínverja. Fór svo að ég var af þeim ástæðum settur á svartan lista hjá kínverskum stjórnvöldum hinn 16. apríl sl., en tilefnið var að íslensk stjórnvöld, sem og fjöl- margar þjóðir, höfðu mótmælt þessari meðferð Kínverja á Úíg- úrum. Í yfirlýsingu þeirra, sem var á ensku, sagði m.a. að ég sem ein- staklingur „seriously harms China sovereignty (fullveldi) and interests by maliciously (af illkvittni) spread- ing lies and disinformation (rang- færslum)“. (A nasty peace of work?) Það sem kom mér þó þarna skemmtilega á óvart voru þessi orð, sem notuð voru í fyrirsögn til- kynningarinnar, „Statement on China’s Sanctions on One Relevant (sem skiptir máli, sbr. relevance, mikilvægi) Icelandic Induvidual. Verð ég að viðurkenna undrun mína og ánægju að fá lof sem þetta frá Kínverjum, fjölmennustu þjóð í heimi, þrátt fyrir allt og allt sem á undan hafði gengið á milli okkar. Þekkjast þó dæmi þess í mann- kynssögunni, að innst inni hafi ver- ið borin dulin virðing fyrir and- stæðingnum. Verð ég að sjálfsögðu, þótt seint sé, að þakka þeim fyrir lofið, þótt það hafi verið svona und- ir rós. Tilgangur minn með þessum skrifum mínum nú er að minnast þess, að senn eru liðin tvö ár frá því fyrst varð vart við kínversku Covid-19-veiruna, sem kom upp á markaði með ferskar fisk- og kjöt- vörur í Wuhan í Kína. Vegna síðbú- inna og slælegra viðbragða kín- verskra stjórnvalda við upphaf faraldursins varð það til þess, að þau misstu stjórn á útbreiðslu veir- unnar. Gerði það að verkum, að veiran náði á endanum, eins og kunnugt er, að breiðast út um allan heiminn með hrikalegum afleið- ingum á líf allra íbúanna á öllum sviðum mannlífsins og engan endi sér á. Fjárhagslegt tjón þjóða heimsins af völdum veirunnar er þegar í dag orðið hrikalegt og ör- birgð blasir strax við í mörgum fá- tækari ríkjum heimsins. Á öllu þessu tjóni bera Kínverjar fulla ábyrgð, sem stafar af þessu víta- verða gáleysi/hirðuleysi þeirra og breytir engu, að tjónvaldurinn sé heimsveldi og fjölmennasta ríki í heimi. Þjóðir heims ættu því að sameinast um að krefja Kínverja um skaðabætur þegar upp verður staðið. Bætur sem gætu þá að ein- hverju leyti bætt þjóðunum upp þann gífurlega fjárhagsskaða, sem þær hafa þá orðið fyrir af völdum þessarar kínversku Covid-19-veiru. Annað tjón og óbeint verður trauðla bætt, tjón sem íbúar allra þjóða heims munu þurfa sjálfir að bera í náinni framtíð eftir alla lífsgæðaskerðinguna, sem veiran hefur vald- ið og mun áfram valda. Hvað snertir nauð- synlegar rannsóknir al- þjóðasamfélagsins á uppruna þessarar veiru í Wuhan, sem margar þjóðir hafa óskað eftir á al- þjóðavettvangi að gerðar séu, þá hafa Kínverjar barist með kjafti og klóm gegn því og hafnað öllum óskum um gagnsæi varðandi upplýsinga- gjöf. Jafnvel sett þjóðir í viðskipta- bann af þeim ástæðum, sbr. t.d. Ástralíu. Hefur þó tilgangur al- þjóðasamfélagsins verið eingöngu sá að reyna að finna út eins og hægt er hver sé uppruni veirunnar og um eðli hennar og þar með öðl- ast skilning á henni. Ekki síst að geta þá verið betur undirbúnir fyr- ir næsta veirusmit, sem mun fyrr en síðar verða á heimsvísu og þá mögulega með miklu verri afleið- ingum en nú. Sem dæmi um viðbrögð Kínverja vegna þessa máls má nefna hér að sendiherra Kínverja á Íslandi lýsti því yfir í blaðagrein í Mbl. 16.8 sl. að verið væri að nýta sér farald- urinn í pólitískum tilgangi og slíkt væri „pólitískur vírus“. Ég spyr: Er það í pólitísku skyni, að Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, sem og þjóðir heims, vilja fræðast um tilurð og útbreiðslu veirunnar, svo draga megi lærdóm af, öllum íbúum heimsins til hagsbóta? Við hvað eru Kínverjar hræddir? Að sannleikurinn komi í ljós um ástæðuna fyrir upphafi og síðan út- breiðslu veirunnar? Hefur það eng- an tilgang fyrir Kínverja að slá höfðinu við stein og neita alkunnum staðreyndum, hvað þá neita að veita upplýsingar eða aðgang að svæðum, sem skipta rannsóknarað- ila öllu máli? Það að einhverjar staðreyndir komi illa við Kínverj- ana sjálfa breytir þeim ekki eða þær verði þaggaðar niður. Kínverj- um er ekki stætt á því að neita fullri samvinnu við Alþjóðaheil- brigðisstofnunina, sem hefur hags- muni allrar heimsbyggðarinnar að leiðarljósi til framtíðar litið, þar með talið Kína. Kínverjar verða að standa undir ábyrgð sinni og al- þjóðasamfélagið á ekki heldur að gefa þeim kost á að víkjast undan upplýsingaskyldu sinni, hvað þá skaðabótaskyldu. Að öðru máli sem varðar Kína. Það fer um mann þegar lesnar eru í ýmsum innlendum og erlendum blöðum og tímaritum lýsingar á fólskulegri meðferð Kínverja á Úíg- úrunum, sem þar á sér stað gagn- vart þessu varnarlausa þjóðarbroti í Kína, þar sem jafnvel er talað um þjóðarmorð. Þessu verður að linna. Eftir Jónas Haraldsson Jónas Haraldsson » Við hvað eru Kín- verjar hræddir? Að sannleikurinn komi í ljós um ástæðuna fyrir upphafi og síðan út- breiðslu veirunnar? Höfundur er lögfræðingur. Kínversk málefni Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.