Morgunblaðið - 28.10.2021, Side 44

Morgunblaðið - 28.10.2021, Side 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Um tíma hafa samn- ingar verið lausir milli sérgreinalækna, sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Ís- lands fyrir hönd rík- issjóðs. Ekkert virðist gerast í þessari deilu. Hún er í hnút. Úr ranni sérfræðilækna heyrist að þeir þurfi ekkert á samningi að halda. Hið opinbera hótar með inn- leiðingu nýrrar reglugerðar með þeim boðskap að þá skuli þeir bara hafa það svo. Á meðan greiða sjúk- lingar fagstéttunum rekstrarálag upp á 1.700 milljónir úr eigin vasa. Stundum hvarflar að manni að hvorum megin sem samningsaðilar sitja séu þeir sáttir við þetta ósætti. Vissulega bitnar samkomulags- leysi þessara aðila á sjúklingum. Þeir greiða einir þau aukagjöld sem rekstraraðilarnir hafa sett á og inn- heimta utan kostnaðarþátttökukerf- isins. Að baki aukagreiðslunum er engin skilgreind þjónusta. Gjaldið er fyrst og fremst óskilgreint veltu- álag þess reksturs sem að baki ligg- ur. Þessi álagning skekkir allt tal um minnkandi kostnaðarþátttöku almennings í heilbrigðisþjónustu. Í júní síðastliðnum fékk mál- efnahópur Öryrkjabandalagsins um heilbrigðismál Svein Hjört Hjart- arson hagfræðing til að meta um- fang aukagjaldanna, veltuálagsins. Niðurstöðurnar voru kynntar nú um miðjan október. Sveinn áætlar þar að umfang veltuálagsins nemi tæpum 1.700 milljónum á ári. Not- endur þjónustu þessara fagaðila greiða því á ári hátt á annan millj- arð króna utan kostnaðarhlut- deildar ríkis. Ef aðilar væru með samning væri þessi þjónusta alfarið undir kostnaðarþaki og innan þess sáttmála sem hefur verið í gildi um greiðslu fyrir heilbrigðisþjónustu. Raunar má segja að ástand þetta geri kostnaðarþátttökukerfið hrip- lekt. Einnig verður öll umræða um árangur ríkisstjórnarinnar um lækkun kostnaðar sjúklinga í heilbrigð- iskerfinu kolröng. Áætluð heildar- fjárhæð sérstaka komugjaldsins til sér- fræðilækna er að með- altali 878 milljónir króna síðastliðin þrjú ár. Hér er miðað við miðgildi sérstaks komugjalds sérfræði- lækna. Hlutur öryrkja af komugjaldi er áætl- aður um 90,2 milljónir króna. Upphæð aukagjalda sér- greinalækna við komu er almennt frá 1.500 upp í 2.200 krónur. Þá er áætluð heildarfjárhæð aukakomu- gjalda til sjúkraþjálfara um 780 milljónir króna á ári, miðað við mið- gildi gjaldsins. Kostnaðarhluti ör- yrkja er áætlaður um 150 milljónir króna. Upphæðir aukagjalda sjúkraþjálfara reyndust vera allt frá 500 upp í 1.500 krónur við hverja komu. Samanlagt er þetta ekki lítil upp- hæð. Hér er um að ræða flóðgáttir undan kostnaðarþátttökukerfi landsmanna; kerfi sem á að tryggja aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Til samanburðar má taka stórátak ríkisstjórnarinnar í geðheilbrigðismálum með árlegri innspýtingu á fjármagni um einn milljarð. Gott mál það og tímabært. Byggist fjármögnun þess verkefnis á því að aðrir sjúklingahópar borgi? Það væri ekki ný aðferð. Það gefur augaleið að fólk með stoðkerf- isvanda er stærsti hópurinn sem greiðir umrætt veltuálag fagstétt- anna. Umfang veltuálagsins er byggt á tíðni koma og miðgildi þess verðs sem innheimt er. Kostnaðurinn fer hækkandi eftir því sem þjónustan er notuð meira. Þeir veikari greiða því meira en þeir sem þurfa minna á þjónustunni að halda. Andstætt þeirri hugsun sem er í kostnaðar- þátttökukerfinu. Með dæmum má sýna fram á margföldun á kostn- aðarþakinu að óbreyttri greiðslu veltuálags. Notast er við 2.200 króna aukagjald hjá sérgreinalækn- um og 1.000 krónur hjá sjúkraþjálf- urum. Ef öryrki heimsækir sér- greinalækna fimm sinnum á ári og þarf á sjúkraþjálfun að halda tvisv- ar í viku í 20 vikur hækkar kostn- aðarþak hans um 240% en gildandi þak er 18.317. Til eru fleiri tilfelli en menn grunar um fólk sem þarf á sjúkraþjálfun að halda tvisvar í viku, í 40 vikur. Þá hækkar kostn- aðarþak viðkomandi um 350% á ári. Það er ekki hægt að líta öðruvísi á en að með innheimtu á þessu veltuálagi sé sáttmála um hámarks- kostnað sjúklinga í heilbrigðisþjón- ustu rift og það einhliða af þjón- ustuveitendum. Veltuálagið leggst þungt á fatlaða, langveika og lág- tekjufólk; alla þá sem meira þurfa á þjónustunni að halda. Lífeyrisþegar og lágtekjufólk hafa þegar dregið úr því að nýta þessa þjónustu og/eða neita sér um hana samanber nýlega könnun Vörðu á högum öryrkja. Hér verður ekki tekin afstaða með eða á móti samningsaðilum. Í samningum verða báðir aðilar að gefa eftir. Ef semja á um kerf- isbreytingu tekur hún tíma og öllum á að vera ljóst að fjármagnið er tak- markað. Eftir stendur skylda aðila að semja. Þjóðin hefur svarað því hvernig heilbrigðiskerfi hún vill. Hér er því skorað á samningsaðila að hætta öllu vafstri og setjast nú af alvöru að samningaborðinu. Í þess- um leik er notandinn eins og fót- bolti í fótboltaleik. Það er bara sparkað í hann og hann borgar fyr- ir. Sérálögur sérfræðilækna og sjúkraþjálfara Eftir Emil Thoroddsen »Um tíma hafa samn- ingar verið lausir milli sérgreinalækna, sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga. Ekk- ert virðist gerast. Kostnaðarþátttökukerf- ið hriplekur. Emil Thoroddsen Höfundur er framkvæmdastjóri Gigt- arfélags Íslands. emilthor@gigt.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Audi A8 4 2 Quattro • Ný smurður af Heklu • Ný skoðaður án athugasemda • Ný 19“ Toyo heilsársdekk • Fullkomið viðhald • Einstakt tækifæri • Fjórhjóladrifinn • Stillanleg loftpúðafjöðrun • 6 þrepa sjálfskipting • 335 hestöfl (0-100 km 6,3 sek.) • Álbíll , Árgerð 2003 Ekinn aðeins 180 þús. VERÐ 1.490.000 Flestir Íslendingar eiga auðvelt með að lesa færeysku, svo mjög er hún skyld ís- lensku. Tummas Just- inussen skrifaði fína grein um ESB-þjóðina Dani og bar saman við fiskveiðiþjóðina Fær- eyinga. Danir eiga fimmta stærsta kaup- skipaflota í heimi. Sá floti er ekki talinn með þegar skuld- bindingar Dana í loftslagsmálum eru reiknaðar. Dönskum vöruflutn- ingabílum er ekið um alla Evrópu. Akstur þeirra utan Danmerkur telst ekki með í losun Dana. Flug með dönskum flugfélögum skilst mér á honum að sé líka undanskilið ef það er innan Evrópu. En Færeyingar búa við allt annars konar útreikning líkt og við Íslendingar. Fiskveiðar Færeyinga Fiskveiðar eru meginatvinnuvegur Færeyinga. Meira en 97% afurðanna er neytt utan Færeyja. En gagnstætt danska kaupskipaflotanum reiknast losun færeyska fiskiskipaflotans Færeyjum á versta veg. Er einhver lógík í þessu? Ekki segir Tummas og hann færir góð rök fyrir sínu máli. Ís- lenski fiskiskipaflotinn lýtur sömu reglum. Væri nú ekki ráð að skrá ís- lensku togarana sem evrópsk kaup- skip? Þá er Ísland búið að standa sína loftslagsplikt um langa framtíð. Staða Íslands Frammistaða Íslands í loftslags- málum er í einu orði sagt frábær. Endurnýjanleg orka er 85% af orku- notkun Íslands. Ef aðrar þjóðir stæðu sig eins vel væri enginn loftslags- vandi, hvað þá -vá. Samt er mikill hljómgrunnur fyrir því að Ísland geri meira í loftslagsmálum en okkur ber skylda til. Til hvers? Jú, til að meng- unarsóðinn Kína geti t.d. gert enn verr. Er það verðugt markmið? Eins og önnur lönd á Ísland að standa við skuldbind- ingar sínar. Höfum við í hyggju að gera betur eigum við að velja okkur markmið og verja til þess þeim fjármunum sem við getum til að ná sem mestum árangri. Ekki til að líta vel út. Enginn vafi leikur á að nýting fjár er margföld ef mengunarmarkmið með árangur að mark- miði eru tekin fram yfir að gera betur en Parísarsam- komulagið. Eigum við ekki öll að sættast á að rýra ekki lífskjör á Ís- landi að nauðsynjalausu og minnka mengun jafn mikið og unnt er? Þetta tvennt fer auðveldlega saman. Parísarsamkomulagið er ósanngjarnt Ósanngirni Parísarsamkomulags- ins í garð fiskveiðiþjóða á borð við Ís- land og Færeyjar blasir við. Meðal annars þess vegna á alls ekki að fórna íslenskum hagsmunum og fórna lífs- kjörum okkar og barnabarna okkar til að gera meira en krafist er af okk- ur. Næst þegar sest verður að samn- ingaborðinu eigum við að gera tvær sanngjarnar kröfur: Að íslenski fiski- skipaflotinn fái sömu stöðu og kaup- skipafloti ESB og að flugumferð til og frá Íslandi reiknist með sama hætti og flug innan Evrópusambandsins. Á slíkar ráðstefnur má ekki senda menn með hugarfar Indriða Þorláks- sonar; að Ísland hafi bara gott af því að borga fyrir aðra. Ekkert þróað land stendur Íslandi fram- ar í loftslagsmálum Eftir Einar S. Hálfdánarson Einar S. Hálfdánarson » Frammistaða Ís- lands í loftslags- málum er í einu orði sagt frábær. Endurnýj- anleg orka er 85% af orkunotkun Íslands. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.