Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Heildarlausnir í
umbúðum
Pakkaskraut
Pappír
Skreytingarefni
Pokar
Borðar
Teyjur
Bönd
Kort
Sellófan
Kynntu þér úrval
á vefverslun
www.danco.is
Lambalæri með kartöflugratíni
og rauðvínssósu
Fyrir 4-6 manns
Lambalæri
Íslenskt lambalæri, um 2 kg
2 hvítlauksgeirar
Ólífuolía
Lambakjötskrydd
1 gulrót
½ laukur
400 ml vatn
Aðferð: Hitið ofninn í 170°C.
Þerrið lambalærið og berið á það
smá ólífuolíu.
Skerið aðeins í lærið á nokkrum
stöðum, takið hvítlauksrifin í 2-3
hluta og stingið ofan í raufarnar.
Kryddið vel með lambakjötskryddi
allan hringinn.
Setjið í steikarpott ásamt gulrót og
lauk (fyrir betra soð) ásamt vatninu.
Setjið lokið á og inn í ofn í um eina
og hálfa klukkustund eða þar til
kjarnhiti er á bilinu 60-70°C eftir því
hversu vel þið viljið hafa það steikt.
Kartöflugratín
Um 1 kg kartöflur
1 rauðlaukur
3 hvítlauksrif
50 g smjör
500 ml rjómi
1 msk. timjan
Salt og pipar
Rifinn ostur (t.d. Tindur)
Aðferð: Hitið ofninn í 190°C.
Flysjið kartöflurnar og skerið þær
síðan í þunnar sneiðar (½ cm eða
þynnri), leggið til hliðar.
Skerið rauðlaukinn í þunnar sneið-
ar og rífið niður hvítlaukinn. Steikið
upp úr smjöri við meðalhita þar til
mýkist, kryddið til með salti og pipar.
Takið af hellunni og geymið.
Raðið síðan saman í eldfast mót,
eitt lag af kartöflum, smá af lauk-
blöndu, smá timjan, salt og pipar …
endurtakið síðan þar til allar kart-
öflur eru búnar.
Þá má hella rjómanum yfir allt
saman og rífa vel af osti yfir allt að
lokum.
Bakið í ofninum undir álpappír í
um klukkustund, takið álpappírinn þá
af og leyfið ostinum aðeins að gyllast,
í um 10 mínútur í viðbót.
Ofnbakaðar gulrætur
1 poki gulrætur (um 500 g)
2 msk. ólífuolía
1 msk. hlynsíróp
1 tsk. timjan
1 tsk. salt
½ tsk. pipar
Aðferð: Skolið gulræturnar (flysjið
ef þess þarf).
Setjið gulrætur ásamt öðrum hrá-
efnum saman í eldfast mót, veltið öllu
saman og bakið í um klukkustund eða
þar til gulræturnar verða mjúkar í
gegn.
Rauðvínssósa
4 skalottlaukar
2 hvítlauksrif
30 g smjör
100 ml balsamikedik
350 ml Muga Reserva-rauðvín
200 ml kjötsoð (frá lambalærinu)
300 ml vatn
1 lárviðarlauf
1 msk. timjan
Salt og pipar
1-2 msk. Oscar fljótandi kjötkraftur
3-4 msk. dökkur sósujafnari
Aðferð: Saxið skalottlaukinn smátt
niður og rífið niður hvítlauksrifin.
Steikið báðar tegundir af lauk upp
úr smjöri við meðalhita, kryddið til
með salti og pipar.
Hellið næst balsamikediki yfir
laukinn og leyfið því að sjóða niður
(gufa upp).
Því næst má hella rauðvíninu yfir
allt og leyfa því sömuleiðis að sjóða að-
eins niður og malla í nokkrar mínútur.
Bætið þá kjötsoði (frá lambalær-
inu) í pottinn ásamt vatni, lárvið-
arlaufi og timjan, leyfið að malla.
Smakkið til með krafti og kryddi
og þykkið með sósujafnara.
Sósan má malla eins lengi og þarf,
hún verður bara betri fyrir vikið.
Pískið eggið og vefjið smjördeigs-
ræmunum yfir miðjuna og penslið í
framhaldinu (þá festast þær betur
saman).
Bakið í 200°C heitum ofni í 20 mín-
útur eða þar til smjördeigið er orðið
vel gyllt.
Skerið ferskar fíkjur niður og raðið
ofan á ostafléttuna ásamt restinni af
pekanhnetunum.
Hin fullkomna
helgarmáltíð
Það er fátt sem toppar góðan sunnudagsmat og þar
er lambalæri efst á blaði enda allsendis frábær mat-
ur. Ljóst er að lambalærið lifir góðu lífi því lesendur
matarvefsins sækja mikið í slíkar uppskriftir og hér
erum við með frábæra uppskrift frá Berglindi Hreið-
ars á Gotteri.is sem býður upp á rauðvínssósu og
kartöflugratín með – ásamt gljáðum gulrótum.
Ljósmyndir/Berglind Hreiðarsdóttir
Strangheiðarleg sósa Flestir eru sam-
mála um að góð sósa skiptir öllu máli.
Sívinsælt Lambalærið nýtur
mikilla vinsælda og mörgum þyk-
ir fátt betra en vel eldað læri.