Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 52

Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 ✝ Sigríður Krist- ín Bjarnadóttir fæddist á Blöndu- ósi 29. maí 1948. Hún lést á Bräcke- líknardeildinni í Gautaborg 1. októ- ber 2021. Foreldr- ar hennar voru Bjarni Jónsson, f. 1906, d. 1990, og Jófríður Kristjáns- dóttir, f. 1920, d. 1995, sem bjuggu í Haga í Þingi, A-Hún. Eftirlifandi systkini Kristínar eru Björg, f. 1944, Ragnar Páll, f. 1950, Sig- urlaug, f. 1951 og Lárus Haga- lín, f. 1956. Látin eru Jón, f. dönskum lýðskóla, nam leiklist bæði í Reykjavík og Óðinsvéum og lagði síðar stund á bókmenntir og heimspeki við Gautaborgarháskóla. Kristín fékkst einkum við leiklist, skáldskap og aðrar listir, bæði hérlendis og erlendis. Frá 1985 bjó hún og starfaði í Svíþjóð, síðustu árin sem framkvæmda- stjóri rithöfundamiðstöðvar í Gautaborg. Kristín hefur m.a. sent frá sér ljóðabækur og síð- asta verk hennar, á banabeði, var að ganga frá texta ljóða- bókar sem ráðgert er að komi út í Svíþjóð snemma á næsta ári. Útför Kristínar verður gerð frá Västra Frölunda-kirkju í Gautaborg 28. október 2021 kl. 13.30 að staðartíma. Að henni lokinni verður hægt að nálgast upptöku af athöfninni og verða upplýsingar þar um m.a. birtar á fésbókarsíðu Kristínar. 1946, d. 1990, og hálfsystirin Lára Ragnhildur, f. 1936, d. 2020. Árið 1974 giftist Kristín Jan Maa- gaard, f. 1945. Þau skildu. Árið 1984 giftist hún Guð- mundi Brynleifs- syni, f. 1949. Þau skildu. Kristín ólst upp við almenn sveitastörf hjá for- eldrum sínum í Haga og gekk í barnaskóla hreppsins. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Hér- aðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði, var einn vetur í Kristín systir mín, eða Sigga eins og við kölluðum hana heima í Haga, var engin venjuleg mann- eskja enda held ég að einhvern veginn hafi alltaf legið í loftinu að hún myndi ekki fara troðnar slóðir þegar hún kæmist til vits og ára. Innra með Kristínu bjó einhver óræð frelsisþrá, hún hafði auðugt ímyndunarafl og lét sig snemma dreyma um að kynn- ast veröldinni utan Íslands. Á hennar uppvaxtarárum voru ferðalög til útlanda ekki á færi almennings og hvað var þá til ráða? Jú, tæplega 18 ára sveita- stelpan brá fyrir sig leikarahæfi- leikum til að sýnast nokkru lífs- reyndari en raunin var, skáldaði upp smávegis reynslu af sigling- um og út á þetta tókst henni að fá vinnu á helsta farþegaskipi Ís- lendinga, Gullfossi, og upphófust þá fyrstu kynni af útlöndum. Það átti svo fyrir Kristínu að liggja síðar að mennta sig erlendis og reyna fyrir sér í alvöru leiklist og skáldskap, þ.e. bæði sem leik- kona og ljóðskáld. Kristín var stundum óútreikn- anleg og dularfull, líka spaugsöm og hláturmild og í senn listamað- ur, sveitamanneskja, heimskona og hugsuður en umfram allt sjálfstæð og hlý manneskja, trú vinum sínum og sannfæringu um það sem gefur lífinu gildi. Kristín heillaðist af tangódansi snemma á Svíþjóðarárunum og lék hann stórt hlutverk í lífi hennar upp frá því. Dansinn var ekki bara íþrótt og heilsubót heldur tilefni ótal ferðalaga og vinasambanda nær og fjær og enn fremur gerði Kristín tangóheiminn að yrkis- efni í ljóðum og greinaskrifum. Kannski var ást systur minnar á tangóinum, þar sem spuni og sköpunargleði eru allsráðandi, einmitt táknræn fyrir frelsis- þrána sem áður var nefnd. Í dýrmætum minningabanka eru rökræður um lífsgátuna og margskonar gæðastundir liðins tíma allt frá æskuleikjum til síð- ustu heimsóknar til hennar, sem við vissum bæði að væri hin síð- asta. Ég á eftir að sakna sendi- bréfa, tölvupósta, símtala, heim- sókna á báða bóga og stefnumóta í Kaupmannahöfn svo eitthvað sé nefnt. Reyni að leiðarlokum að sjá systur mína fyrir mér svífa frjálslega um gólf, einbeitta á svip, með heimsins besta tangó- ara á milongu í fjarlægu landi. Veri hún kært kvödd. Lárus H. Bjarnason. Fyrir rétt rúmum tveimur ár- um fékk ég facebook-skilaboð: „Hæ, hæ! Ertu í Kaupmanna- höfn? Kannski kominn tími á ættarmót?“ Þarna var Kristín að vísa í hittinga meðal frændfólks sem búsett var á Norðurlöndun- um á hverjum tíma. Hún var öt- ull frumkvöðull að þessum hitt- ingum og það var í raun ekki fyrr en ég fluttist til Svíþjóðar og síð- ar Danmerkur að ég kynntist Kristínu frænku minni almenni- lega. Fyrir mér var hún lengi vel dularfulla föðursystir mín sem bjó í Svíþjóð. Hún rúllaði eigin sígarettur í eldhúsinu, hló sér- kennilegum hlátri og ég vissi aldrei hvort ég ætti að kalla hana Sigríði Kristínu eða bara Krist- ínu. Mér þótti vænt um að hún hafði samband þegar ég var flutt ein til Svíþjóðar árið 2003 og vildi hitta mig og kynnast mér. Henni fannst m.a. tilheyra að sjá mig spila borðtennis og stuttu síðar varð það að veruleika, þegar ég kom á borðtennismót í Partille og fékk að gista hjá henni. Á næstu árum voru haldin nokkur frænkumót, ýmist í Svíþjóð eða í Danmörku, og voru Freyja og Jóna Finndís þá í norræna frænkuhópnum. Síðar bættist Jón Kristján í hóp frændsystkina sem bjuggu á Norðurlöndunum á meðan önnur fluttu eitt af öðru aftur til Íslands og það gerði ég líka að lokum. Það var því sér- staklega gaman að fá tækifæri til þess að taka upp þráðinn haustið 2019 og ná einu ættarmóti í við- bót. Ég vissi ekki þá að það yrði í síðasta skiptið sem ég hitti frænku mína en endurfundir meðan á Danmerkurdvöl minni stóð urðu því miður ekki fleiri enda skullu á ferða- og sam- komutakmarkanir. Eftir lifa góðar minningar frá norrænu ættarmótunum okkar og þessum smitandi hlátri. Ég vissi alls ekki alltaf að hverju Kristín var að hlæja en það var ekki hægt annað en að hlæja með. Aldís Rún Lárusdóttir. Kristín fylgdi mér í gegnum maníuna 1979, hún hefði komið með mér uppí sjónvarp ef ég hefði þorað þangað. Helsta ráð hennar til að hjálpa mér var að draga mig í sund ef ég gat farið þangað því það gat eitthvað hræðilegt gerst ef ég færi í sund. Ég kynntist Kristínu þegar hún kom heim með föður mínum, þá kom hann heim til að deyja og síðustu dagana var hann áfram um að Kristín saumaði honum silkislopp. Kristín sat við að sauma silkisloppinn þegar faðir hans, afi minn séra Jakob, hringdi til að tilkynna andlát hans. Ég held ekki að hann hafi verið jarðaður í silkisloppnum. Kristín varð vinkona mín og ég var heppin, það er erfitt að lýsa svo góðri vinkonu því allt fléttast saman og við vorum svo samofnar að ég get ekki almenni- lega skrifað um hana. En sonur minn Kristjón lýsti henni vel: Hún var djúp og þroskuð sál – með dass af húmor. Og góða nærveru, það var alltaf gott að vera nálægt henni, sagði hann. Mér hefur alltaf fundist gott að synir mínir kynntust vinum mínum og vinkonum. Tvíburarn- ir mínir höfðu aldrei heyrt neinn hlæja einsog hún og kölluðu hana með heiðri og sóma hlátursskjóð- una. Kristín var sú sem oftast kom í heimsókn og sú sem hló mest. Hlátur Kristínar var einstakur og ég vissi ekki fyrr en nýlega að ég kynntist Björgu systur henn- ar að þær höfðu sama hláturinn. Ég sá þær fyrir mér systurnar, hlæjandi að allri mögulegri vit- leysu. Ef ég myndi deyja þá gætu vinkonur mínar sagt börn- unum mínum eitthvað um mig sem þeir vissu ekki. En já Krist- ín fylgdi mér í gegnum maníuna 1979, ég sat uppi á Öldugötu á kistlinum hennar og malaði út úr heiminum. Og hún heimsótti mig á Suðurgötuna þarsem ég átti heima á nöturlegu heimili geð- veikinnar, þar var allt tómt og tilgangslaust, þetta fallega heim- ili. Allt fullt af allskonar dóti og drasli sem ég dró með mér heim. En það var ekki allt vitlaust því ég tók ljósmyndir af skemmti- legum uppstillingum áðuren manían tók öll völd. Svo afsagði ég alla vini og allt fólk og hélt alein inní þennan heim. Einu sinni fórum við á rétt- arball í Húnavatnssýslunni og á leiðinni heim af ballinu sungu þúsund svanir á vatninu. Í sömu ferð fórum við að Haga, æskuheimili hennar, sem hún var tengd svo sterkum bönd- um. Kristín var tengd svo mörgu. Þræðir hennar spunnust víða. Tangó, heimspeki, leiklist, ljóð, Ísland, Svíþjóð. Í bréfi til mín segir hún á þessa leið: Þegar ég var á Íslandi saknaði ég skóg- anna en svo eftir að ég flutti til Svíþjóðar fór íslenskt landslag, fjöll, að fylla hugann. Kristín heimsótti mig alltaf, það fannst mér skrítið því ég átti erfitt með heimsóknir og það að fara útúr húsinu, ég var alltaf heima að skrifa. En hún heim- sótti mig norður á Strandir þar- sem ég var með Kristjón lítinn, hún heimsótti okkur til Kaup- mannahafnar þarsem ég var með syni mína í menningarreisu, það er til ljósmynd af okkur saman í Tívolí og hún heimsótti mig til Ír- lands þarsem ég var við nám í listaháskóla. Og hún gerði meira en það, þegar ég var í skólanum var hún óþreytandi að senda mér hlekki og greinar viðkomandi námsefninu, hún var einsog einn af mentorum mínum. Ég skildi ekki hvernig hún hafði uppi á öllu þessu námsefni sem hjálpaði mér mikið í náminu og að ein- hver hefði svona mikinn áhuga á því sem ég var að gera. Og bréfin gengu á milli okkar, síðan frá 1983, þykk bréf um heimspeki, ljóð, leikrit, ástina og lífið. Og nú er hún dáin, það er fal- legt, hún vildi deyja fallega og hún sagði við mig í sumar: Maður deyr ekki nema einu sinni. Þess vegna ætla ég að gleðjast og þakka fyrir elsku Kristín mín að eilífu. Elísabet Jökulsdóttir. Kristín Bjarnadóttir Hugrakka, sterka og fallega hetjan mín, núna ertu farin frá okkur inn í eilífðina. En minn- ing þín lifir í hjörtum okkar sem syrgjum þig sárt. Þú háðir erfiða, langa og Guðrún Þóranna Ingólfsdóttir ✝ Guðrún Þór- anna Ingólfs- dóttir fæddist 15. maí 1955. Hún lést 21. september 2021. Útför Guðrúnar fór fram í kyrrþey 30. september 2021. stranga baráttu við krabbamein en „maðurinn með ljá- inn“ var búinn að vakta þig um hríð. Þú tókst þessum veikindum þínum af miklu æðruleysi og hugrekki, þú gast notið þín í smátíma undir lok- in. Þú fékkst að njóta heimsóknar fjölskyldunnar þinnar og okkar systkinanna og vina. Við öll vor- um þess megnug að geta verið til staðar fyrir þig, við gátum umfaðmað þig og þú okkur með þinni ást, hlýju og umhyggju. Þú hafðir sterka réttlætis- kennd og sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Stund- um var ekki hægt annað en að skella upp úr þegar þú fórst á flug og það var líka stutt í grínið hjá þér sjálfri og þú gast hlegið með. Þú háðir þína erfiðu baráttu í lífinu og það komu sigrar og ósigrar. Þú fékkst mörg erfið verkefni og mikið á þig lagt. En þar sem þú varst hetja og bar- áttujaxl gafstu aldrei upp. Elsku pabbi okkar dó alltof snemma, þú varst 12 ára og ég 14 ára. Við vorum báðar miklar pabbastelpur. En þú fórst oftar á sjóinn með honum, þér fannst það svo gaman. Föðurmissirinn var okkur öllum mjög þungbær og tók á okkur. Þú týndir aldrei barninu í þér, þú varst alltaf brosmild, hjartahlý og kærleiksrík Þú varst sannur vinur. Gast verið hrókur alls fagnaðar ef svo bar undir. Þér var mjög umhugsað um velferð barnanna þinna og barnabarna sem þú varst svo þakklát að eiga og svo stolt af þessum fallega og efnilega hóp. Elsku Agnar eiginmaður þinn fór aðeins mánuði á undan þér. Þið voruð mjög náin hjón og góðir vinir. Vonandi fáið þið að hittast í sumarlandinu góða. Ég vil þakka þér innilega fyr- ir samfylgdina í gegnum lífið, elsku hjartans Gunna Þóra mín, og allt það sem þú hefur gefið mér. Ég bið algóða kærleiksríka Guð og verndarenglana að vaka yfir þér og þinni fjölskyldu. Hvíl í friði, elsku systir, hafðu þökk fyrir allt. Þín systir, Kristín Ingólfsdóttir. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Útför í kirkju Þjónusta kirkjunnar við andlát utforikirkju.is Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, SNORRI KRISTINN ÞÓRÐARSON, Ársölum 1, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 20. október. Útförin fer fram mánudaginn 1. nóvember frá Lindakirkju klukkan 13. Brynja Böðvarsdóttir Böðvar Snorrason Kristín V. Jónsdóttir Þórður Snorrason Herdís Sigurðardóttir Ingibjörg Halldóra Snorrad. Páll Ólafsson Sigríður Brynja Snorradóttir Sveinn Daníel Arnarson Jóna Maggý Þórðardóttir Haukur Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur tengdafaðir, afi og langafi, BENEDIKT ANTONSSON, áður til heimilis í Bakkagerði 19, sem lést fimmtudaginn 14. október, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 1. nóvember klukkan 13. Eva María Gunnarsdóttir Davíð Benedikt Gíslason Brynhildur Þorgeirsdóttir María Gísladóttir Einar Kristinn Hjaltested Eva Björk, Hrefna María, Þorgeir Bjarki, Anna Lára, Hrafnhildur, Karólína, Benedikt Arnar, Katrín Eva og Ari Gísli Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA NORÐDAHL, kennari og nuddari, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum 24. október. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 12. nóvember klukkan 13. Eggert J. Levy Snorri Sturluson Lydia Holt Kári Sturluson Oddný Sturludóttir Sigurjón Jónsson barnabörn og aðrir ástvinir Elskulegur faðir minn, afi og langafi, JÓN VALGEIR STEFÁNSSON, lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn 21. október. Útförin verður auglýst síðar. Valborg Valgeirsdóttir Orri Dór Guðnason Ívar Dór, Silja Sól, Darri Dór og Eik Embla Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGUR STEFÁN GÍSLASON, lést á Landspítalanum 19. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 3. nóvember klukkan 13. Áslaug Ásmundsdóttir Andrés Þór Gunnlaugsson Sigríður Dröfn Jónsdóttir Stefán Örn Gunnlaugsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.