Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 66
66 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 www.gilbert.is 60 ÁRA Sigurður er úr Kópavogi en býr í Hafnarfirði. Hann er vélvirki að mennt og starfar sem slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. „Áhugamalin eru að ferðast, aðallega inn- anlands, og veiði. Við hjónin ferðumst um bæði á jeppum og ferðabíl sem við eig- um.“ FJÖLSKYLDAN Kona Sigurðar er Guð- rún Hrönn Guðbjörnsdóttir, f. 1962, menntuð í prentiðn. Börn þeirra eru Þór- unn, stjúpdóttir, f. 1980, og Elín, f. 1989. Barnabörnin eru Dagbjört Fjóla, dóttir Þórunnar, og Matthías og Tinna Hrönn, börn Elínar. Foreldrar Sigurðar voru Þorsteinn Theodórsson, f. 1939, d. 2018, verktaki, og María Snorradóttir, f. 1941, d. 2011, fékkst við umönnunarstörf. Sigurður Þorsteinsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ferðalög eru þínar ær og kýr og þú skalt bara láta það eftir þér að skipuleggja draumaferðina hvað sem hver segir. Skrif- aðu lista yfir verkefni sem þarf að klára. 20. apríl - 20. maí + Naut Framkoma þín skapar yfirvegað and- rúmsloft, jafnvel þótt þér líði ekki þannig. Kauptu gjöf handa ástinni þinni. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú ert opin/n fyrir skoðunum annarra. Reyndu að sýna þolinmæði og hafa hægt um þig næstu daga. Einhver sýnir sitt rétta andlit. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Framsýni þín verður til þess að aðrir leita ráða hjá þér. Þú hefur gott nef fyrir möguleikum. Slettu úr klaufunum í kvöld. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hugsar mikið um tilgang lífsins þessa dagana. Búðu þig undir að dagurinn verði alls ekki eins og þú hélst að hann yrði. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þótt full ástæða sé til að gera sér glaðan dag þurfið þið líka að muna að hóf er best á hverjum hlut. Þú laðast að fólki sem fer óvenjulegar leiðir í lífinu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þér kann að finnast samstarfsmenn þínir einum of gagnrýnir á þín störf. Gefðu eftir í litlu málunum og haltu þínu striki í þeim stóru. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það virðist eiga vel við þig að hafa mörg járn í eldinum. Nú er rétti tíminn til þess að losa sig vð hluti sem trufla sál- arró þína. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú þarft að leysa fjárhagslega flækju sem upp hefur komið. Einhver gerir þér grikk, en þú erfir það ekki. Einhver reynir að koma sér í mjúkinn hjá þér. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Áætlanir sem tengjast ferðalög- um og/eða menntun eru komnar í farveg. Hættu að velta þér upp úr fortíðinni. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þótt þér finnist aðrir gera tóm axarsköft er það ekki þitt að hafa vit fyrir þeim. Láttu þó ekki draga þig inn í til- gangslausar þrætur. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Viðkvæmt mál ber á góma og þótt þér sé mikil raun að því að ræða álit þitt á því verðurðu að gera það. Hlustaðu á þinn innri mann. haustferða til annarra landa. Hóp- urinn hittist einnig á vetrum í hádeg- issúpu einu sinni í mánuði og hluti hans hefur stundað göngur í Elliða- árdal þrisvar í viku síðustu 14 árin. Þessi samheldni veitir ómetanlegan styrk og dregur úr einangrun sem fylgir háum aldri. Ég var inspector scholae lokaárið í MR og því hef ég talið það skyldu mína að halda hópn- um saman. Ég hafði kynnst eiginkonu minni, Guðlaugu, í gagnfræðaskóla og við giftum okkur haustið 1957. Þá var dóttir okkar, Droplaug, fædd. Guð- laug fór ekki í háskólanám heldur gerðist fyrirvinna fjölskyldunnar. Ég hafði hug á námi í jarðeðlisfræði en í stað þess að fara strax utan til náms tók ég þann kostinn að nema til fyrri fóstru sinni. Sem háskólabókavörður byggði faðir okkar hús á Aragötu 1 og þangað fluttum við haustið 1949.“ Næsta vetur var Sveinbjörn í Gagnfræðaskólanum við Hringbraut en síðan í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar. Þar lauk hann landsprófi vor- ið 1952 og við tók nám í 3. bekk Menntaskólans í Reykjavík. „Náms- árin í MR gáfu tækifæri til félagslegs þroska og þar hnýttu menn vin- áttubönd sem enst hafa alla ævi. Alls urðu níu hjón innan okkar árgangs. Eftir stúdentspróf skildi leiðir, fjöl- skyldur voru stofnaðar og margir fóru utan til háskólanáms. Þegar leið að starfslokum leitaði hópurinn hins vegar aftur saman og eftir 50 ára stúdentsafmæli 2006 hefur hann efnt til árlegra vorferða um landið og S veinbjörn Björnsson er fæddur 28. október 1936 í Reykjavík og ólst upp í húsinu Gretti á Grettis- götu 46, við Vitastíg. „Á stríðsárunum óttuðust menn loft- árásir á Reykjavík og mælt var með því að koma börnum í sveit um sum- ur. Fjölskyldan dvaldi því vestur á Dröngum á Skógarströnd og í eynni Kiðey sumrin 1940, 1941 og 1942 en sumrin 1943 og 1944 gerðist faðir okkar vinnumaður hjá Jörundi Brynjólfssyni í Skálholti með alla fjölskylduna. Sumarið 1945 þurfti Droplaug móðir okkar að gangast undir aðgerð vegna gallsteina. Börnunum var því komið í fóstur og ég fór í Skálholt. Því miður tókst svo slysalega til að móðir okkar lést eftir þennan upp- skurð. Afleiðingin varð mikil fyrir all- an hópinn. Ég fékk að vera með föður okkar í Reykjavík en hin systkinin voru áfram í fóstri hjá frændfólki næstu árin. Þegar barnaskóli byrjaði kynntist ég nýjum félaga sem var Hrafnkell Thorlacius, síðar arkitekt. Við urðum óaðskiljanlegir félagar allt til fermingaraldurs. Faðir hans, Sig- urður, var skólastjóri Austurbæjar- skólans. Sigurður lést hins vegar sama sumar og móðir mín, einnig frá fimm börnum. Ekkjan, Áslaug Krist- jánsdóttir, gat hins vegar haldið sínu heimili og þar gerðist ég nú heima- gangur alla daga. Fyrirmynd okkar Hrafnkels í einu og öllu var stóri bróðir hans Örnólfur.“ Um sumur fór Sveinbjörn í sveit. Fyrst þrjú sumur að Miðhrauni þar sem Sigfús bróðir hans var í fóstri, síðan þrjú sumur að Kálfaströnd við Mývatn hjá ömmubróður sínum Valdimari Halldórssyni og loks eitt sumar sem vinnumaður hjá óskyld- um á Ánabrekku nærri Borgarnesi.“ Sveinbjörn gekk í Austurbæjar- skóla og var kennari hans allt til barnaprófs Stefán Jónsson rithöf- undur. Kjarninn úr þessum hópi varð svo samstiga allt til stúdentsprófs. „Sumarið 1948 kvæntist Björn faðir okkar Kristínu Jónsdóttur. Þau áttu einn son, Hörð. Nú voru börnin köll- uð aftur heim, nema Ólafur Grímur sem var ættleiddur af Ragnheiði hluta prófs í byggingarverkfræði við Háskóla Íslands og fá það nám síðar viðurkennt í Þýskalandi.“ Haustið 1959 fór Sveinbjörn svo til náms við tækniháskólann í Aachen í Vestur- Þýskalandi og lauk þaðan dipl. phys.-prófi í eðlisfræði með val- greinar í jarðeðlisfræði og stærð- fræði í nóvember 1963. Starfsferillinn „Ráðgjafar mínir um nám voru Gunnar Böðvarsson, þá forstöðu- maður Jarðhitadeildar Raforku- málaskrifstofu, og Þorbjörn Sigur- geirsson, prófessor í eðlisfræði. Ég hafði byrjað ýmsa vinnu fyrir Gunn- ar með námi allt frá 1957 og þegar ég kom heim frá námi í desember 1963 bauðst mér starf hjá Jarðhita- deildinni. Þá var Surtseyjargos í fullum gangi og segja má að þar hafi ég hlotið mína eldskírn. Á þessum árum var unnið að virkjun jarðhita í stað olíu til húshitunar um allt land. Sú vinna leiddi m.a. til Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi, virkjunar háhitans á Reykjanesi og hraun- hitaveitu í Vestmannaeyjum í kjölfar gossins þar 1973.“ Sveinbjörn hóf störf hjá Raunvís- indastofnun Háskólans árið 1973 og 1977 varð hann prófessor í eðlisfræði við Háskólann. Því starfi gegndi hann til ársins 1991 að hann var kos- inn rektor Háskólans, en á rektors- árum Sveinbjörns var Þjóðar- bókhlaðan opnuð. Árið 1997 fór Sveinbjörn aftur að sinna orku- málum og gegndi starfi deildarstjóra á Orkustofnun til starfsloka árið 2006. „Segja má að þannig hafi starfsævi mín skipst til helminga milli Háskólans og orkumála. Þess- um störfum fylgdu ýmis stjórnar- störf í nefndum, stjórnum og sjóð- um, innlendum og erlendum, sem langt mál væri upp að telja. Í dag er ég að vinna við skriftir á greinum um ýmis efni sem ekki vannst tími til að birta vegna ýmissa stjórnunarstarfa. Nú stendur yfir al- þjóðleg jarðhitaráðstefna í Hörpu og þar er ég með tvö erindi, annað um hraunhitaveituna í Vestmanna- eyjum, hitt um bergsprungur og lekt í bergi. Undanfarin átta ár hef ég Sveinbjörn Björnsson, jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi rektor – 85 ára Ljósmynd/Sigurður E. Þorvaldsson Í Elliðaárdal Hluti gönguhóps í Kjartanslundi í haust. Frá vinstri: Ólafur Sigurðsson, Guðrún Erlendsdóttir, Sveinbjörn Björnsson, Jóna Þorleifs- dóttir, Svava Ágústsdóttir, Bernharður Guðmundsson, Sigurður Briem. Traust vináttubönd hnýtt í MR Hjónin Guðlaug og Sveinbjörn í ferð MR56 um Holland árið 2008. Í næstu röð eru Ása Jónsdóttir og Ólöf Kristófersdóttir. Egill Arnar Pálsson hélt tom- bólu hjá N1 og Krónunni í Ár- túnsholti. Hann safnaði 15.966 kr. sem hann afhenti Rauða krossinum. Stóri bróðir hans, Sævar Snær, er með honum á myndinni. Hlutavelta Til hamingju með daginn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.