Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 69
ÍÞRÓTTIR 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
Bakvörður dagsins horfði á
útsendingu frá leik Kiel og
Magdeburg í þýska handbolt-
anum á sunnudaginn. Þar voru
okkar fulltrúar, Gísli Þorgeir
Kristjánsson og Ómar Ingi Magn-
ússon, áberandi.
Lið þeirra Magdeburg hefur
unnið fyrstu sjö leikina í deildinni
og vann auk þess HM félagsliða í
Sádi-Arabíu á dögunum. Ef til vill
bjuggust margir við að fyrsta
tapið yrði gegn Kiel á útivelli en
Magdeburg vann 29:27.
Áhugavert er að sjá hversu
atkvæðamikill Ómar Ingi er þótt
andstæðingarnir leggi nú mikla
áherslu á að minnka vægi hans í
sóknarleik Magdeburg. Ómar
varð jú markakóngur á síðasta
tímabili. Króatíski refurinn
Domagoj Duvnjak reyndi til
dæmis að ganga út í Ómar og
trufla spilið á hægri vængnum.
Ómar hefur á sínum meistara-
flokksferli ávallt búið yfir góðum
hreyfingum. Nú er hann orðinn
líkamlega sterkari og því orðið
enn erfiðara en áður að stöðva
hann í gegnumbrotum. Ómar sér
vel í kringum sig og er nú einnig
orðinn virkilega góður í að koma
sendingum á samherjana þótt
varnarmenn læsi í hann hrömm-
unum. Nokkrar stoðsendingar
hans í leiknum komu þegar and-
stæðingarnir virtust vera að
brjóta á honum.
Gísli Þorgeir býr yfir þeim
eiginleika að geta komið „kald-
ur“ inn á af bekknum og sett
strax mark sitt á leikinn. Þegar
Gísli kom inn á gegn Kiel óð hann
inn í vörn Kiel í fyrstu sókn. Fékk
hann strax tveggja mínútna
brottvísun. Aukakastið var tekið
og hann óð í gegnum vörnina og
skoraði. Gísli virðist mjög sterk-
ur á taugum og var nýttur á
mikilvægum augnablikum.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Gott gengi nýliðanna frá Njarðvík
heldur áfram í Subway-deild kvenna
í körfuknattleik en bikarmeist-
ararnir árið 2020 í Skallagrími eru
hins vegar í krísu.
Njarðvíkingar fóru í Borgarnes í
gær og unnu risasigur 86:31. Segja
má að með því að skora 11 stig í síð-
asta leikhlutanum hafi Skallagrími
tekist að láta tölurnar líta aðeins
betur út en þær gerðu um tíma. Lið-
ið skoraði 6 stig í fyrsta leikhluta og
5 stig í þriðja leikhluta sem dæmi.
Njarðvík er með 10 stig eftir sex
leiki en Skallagrímur er án stiga á
botni deildarinnar.
Lavina Joao Gomes De Silva var
stigahæst hjá Njarðvík með 16 stig
en fimm leikmenn liðsins náðu að
skora tíu stig eða meira í leiknum.
Nikola Nedoroscíkova var stigahæst
hjá Skallagrími með 11 stig.
Keflavík er einnig með 10 stig eft-
ir sex leiki og nágrannarnir í
Reykjanesbæ setja skemmtilegan
svip á deildina í upphafi tímabilsins.
Margir bjuggust við að Haukar og
Valur yrðu sterkustu liðin í deildinni
en hefðin á Suðurnesjunum er sterk.
Keflavík vann Breiðablik í gær
80:59 en Breiðablik er með 2 stig
eins og Grindavík í 7. sæti.
Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri
hálfleik en Keflavík náði að slíta sig
frá í 3. leikhluta. Eygló Kristín Ósk-
arsdóttir skoraði 16 stig fyrir Kefl-
víkinga en Telma Lind Ásgeirsdóttir
16 fyrir Breiðablik.
_ Leikur Fjölnis og Grindavíkur
fór einnig fram í gærkvöldi og var
leikið í Grafarvogi. Honum var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun en
um þá viðureign má lesa í frétt á
mbl.is frá því í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dalhús Aliyah Mazyck úr Fjölni með boltann í leiknum gegn Grindavík í
Grafarvoginum í gær en hún var mjög atkvæðamikil í leiknum.
Risasigur Njarðvíkinga
- Nágrannarnir úr Reykjanesbæ í efstu sætunum í úrvalsdeild kvenna
eftirtektarverður fyrir þær sakir að
Jón náði ekki að keppa neitt á síðasta
og þarsíðasta ári. „Árið 2018 var síð-
asta tímabil þar sem ég keppti og þá
var ég með um 4,7 í erfiðleika-
einkunn. Svo fékk ég brjósklos og
þurfti að róa mig niður en þá nýtti ég
tímann og líka tímann í Covid til þess
að byggja upp aðeins meiri styrk. Ég
hengdi upp hringi í bílskúrnum þegar
það var ekki hægt að æfa.
Allt árið 2019 var ég að passa mig
rosalega mikið. Ég náði í rauninni
ekki að gera neitt mikið fyrir utan
einhverjar handstöður. Ég keppti
ekkert 2019 né 2020. Síðan er ég bara
búinn að vera að vinna mjög vel inni í
sal með þjálfaranum mínum, honum
Yuriy, síðasta eitt og hálft til tvö ár,
að gera það sem þarf að gera til þess
að bæta þessa erfiðleikaeinkunn. En
síðan er það framkvæmdaeinkunnin
sem ég hefði mátt laga á þessu móti,
það er eitthvað sem við förum núna
aðeins betur í,“ sagði hann.
Hringirnir eru ekki eina keppnis-
grein Jóns þó hún sé hans sterkasta.
„Ég æfi líka svifrá af því að það er
eiginlega skemmtilegast að æfa það
og tvíslá af því að ég er frekar sterkur
á henni líka. Fyrir liðakeppnina, ef ég
er að keppa með landsliðinu, þá er
gott að hafa fleiri en eitt áhald en ég
er hættur að keppa á gólfi og í stökki.
Eftir seinna brjósklosið brenndi ég
mig svolítið á því, ég á ekkert að vera
að hoppa mikið lengur,“ sagði hann.
Dreymir um gullið
Spurður um framtíðarmarkmið sín
stóð ekki á svörum hjá Jóni: „Ég ætla
að halda áfram að vinna eins og ég
hef gert undanfarið því það virkar
greinilega svona vel, við sjáum árang-
ur. Núna eftir tvær og hálfa viku er
Norður-Evrópumót í Wales þar sem
er liðakeppni. Við í íslenska landslið-
inu ætlum að ná verðlaunasæti þar.
Síðan hefur það lengi verið markmið
mitt að vinna gullið á hringjum á
þessu móti.
Samkvæmt úrslitum þessa heims-
meistaramóts þá ætti ég allavega að
vera á palli. Ég læt mig dreyma um
að fá þetta gull í Wales í nóvember.
Ef ég geri mitt ætti það að ganga
upp. Það er allavega fyrsta skrefið en
síðan höldum við áfram. Ég er að fara
í aðgerð eftir það mót, það þarf að
laga olnbogann á mér aðeins. Það er
alltaf eitthvað að þegar maður er
kominn svona langt í íþróttum, það er
ekki hægt að sleppa við meiðsli.“
„Ég fer í smá aðgerð og næsta ár
fer bara í undirbúning fyrir EM sem
er næsta sumar og svo er Norður-
landamót hér heima í júlí. Þar ætla ég
að reyna að komast í úrslit og halda
áfram á fullu á hringjunum, að gera
eitthvað „næs,“ skemmtilegt, fallegt
og erfitt. Síðan held ég bara áfram.
Markmið mín til langtíma eru til
2024, fram að Ólympíuleikum, ég tek
stöðuna þá,“ sagði Jón að lokum við
Morgunblaðið og vísaði þar til þess
hvort bætingar hans á næstu árum
reynist nægilegar til þess að vinna
sér inn sæti á leikunum í París í
Frakklandi eftir tæp þrjú ár.
Markviss vinna í tvö ár
- Einbeitir sér sérstaklega að hringjunum - Hengdi slíka upp í bílskúrnum
Ljósmynd/FSÍ
Sterkur Jón við keppni á EM í áhaldafimleikum í Basel í Sviss í vor.
FIMLEIKAR
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Jón Sigurður Gunnarsson, fimleika-
kappi úr Ármanni, náði bestum ár-
angri Íslendinga á einstökum áhöld-
um á heimsmeistaramótinu í
áhaldafimleikum í Kitakyushu í Jap-
an í síðustu viku þegar hann hafnaði í
23. sæti á hringjum í undankeppn-
inni. Sjálfur kveðst hann nokkuð sátt-
ur við árangurinn en telur sig geta
gert betur.
„Ég met árangurinn bara ágæt-
lega. Það gekk í rauninni mestallt
upp og 23. sætið hljómar ágætlega en
það hefði verið hægt að gera betur
eins og alltaf en þetta hefði líka getað
farið verr. Ég er ánægður með
frammistöðuna og þetta sæti. Ég
hefði verið ennþá ánægðari með topp
20 en það verður bara að nást næst,“
sagði Jón í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði hringina vera sitt besta
áhald. „Það hefur alltaf verið svolítið
þannig í gegnum tíðina en það er ekki
fyrr en núna að ég er byrjaður að ein-
beita mér sérstaklega og alveg mark-
visst að hringjunum.“ Á HM í Japan
fékk Jón hæstu erfiðleikaeinkunn
sem íslenskur fimleikamaður hefur
fengið á hringjum.
„Erfiðleikaeinkunnin snýr að æf-
ingunum sem ég er að gera á hringj-
unum, sem teljast til stiga. Því erf-
iðari æfingar sem þú gerir því hærri
verður sú einkunn, eins og heitið seg-
ir til um. Ég er búinn að vera að vinna
í þessu mjög markvisst síðustu tæp
tvö ár,“ útskýrði hann.
Keppti ekkert 2019 né 2020
Árangur hans á HM er ekki síst
Lovísa Thompson, landsliðskona í
handknattleik, er komin í frí frá
íþróttinni en Lovísa hefur ekki leik-
ið frá því hún meiddist í lands-
leiknum gegn Svíum.
Hún birti færslu á Instagram þar
sem hún segist hafa misst áhugann.
Henni hafi ekki liðið vel á æfingum
eða í leikjum að undanförnu. Erfitt
sé að kúpla sig frá íþróttinni sem
hefur sett svo mikinn svip á líf
hennar en nauðsynlegt sé að
staldra við og finna hvað veiti henni
ánægju. Hún geti tekið upp þráðinn
ef áhuginn kviknar á ný.
Lovísa tekur sér
frí frá boltanum
Morgunblaðið/Eggert
Farsæl Lovísa Thompson hefur leik-
ið í meistaraflokki frá 15 ára aldri.
Landsliðsbakvörðurinn Alfons
Sampsted og félagar hans í Bodö/
Glimt gerðu í gærkvöldi frábæra
ferð til Molde er liðið vann sterkan
2:0 útisigur í toppslag gegn heima-
mönnum og jók þannig forskot sitt í
fjögur stig á toppi norsku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu karla.
Þá heldur Viðar Ari Jónsson
áfram að spila vel fyrir Sandefjord
en hann skoraði annað marka liðs-
ins í 2:0 sigri gegn Strömsgodset í
deildinni í gær. Hann hefur skorað
níu mörk og lagt upp önnur fimm í
24 deildarleikjum á tímabilinu.
Styrktu stöðu
sína á toppnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bakvörður Alfons Sampsted er
lykilmaður hjá Bodö/Glimt.
Subway-deild kvenna
Skallagrímur – Njarðvík...................... 31:86
Keflavík – Breiðablik ........................... 80:59
Fjölnir – Grindavík............................ (53:61)
_ Var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun.
Staðan:
Njarðvík 6 5 1 424:333 10
Keflavík 6 5 1 501:421 10
Valur 5 4 1 386:353 8
Haukar 4 3 1 305:208 6
Fjölnir 4 2 2 300:289 4
Grindavík 5 1 4 345:419 2
Breiðablik 6 1 5 410:434 2
Skallagrímur 6 0 6 303:517 0
Evrópubikarinn
B-RIÐILL:
Buducnost – Valencia ......................... 71:70
- Martin Hermannsson skoraði 5 stig og
gaf 2 stoðsendingar hjá Valencia.
Evrópubikar FIFA
D-RIÐILL:
Reggiana – Zaragoza.......................... 76:67
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 11 stig
fyrir Zaragoza og tók 3 fráköst.
F-RIÐILL:
Antwerp Giants – Belfius Mons......... 77:63
- Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig
fyrir Antwerp og gaf 4 stoðsendingar.
>73G,&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Evrópubikar kvenna:
Ásvellir: Haukar – Brno .......................19:30
Subway-deild karla:
Þorlákshöfn: Þór Þ. – ÍR ......................18:15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Grindavík 19:15
Smárinn: Breiðablik – Keflavík ...........19:15
Hlíðarendi: Valur – Vestri ....................20:15
HANDKNATTLEIKUR
Olís-deild kvenna:
Varmá: Afturelding – Fram ......................18
Olís-deild karla:
Mýrin: Stjarnan – Valur .......................19:30
Varmá: Afturelding – Víkingur............20:15
Í KVÖLD!