Morgunblaðið - 28.10.2021, Page 72

Morgunblaðið - 28.10.2021, Page 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við erum ótrúlega spennt að fá að frumsýna og gaman að finna hvernig allt er að smella saman á lokametr- unum,“ segir Inga Huld Hákonar- dóttur um dansverk sitt, Neind Thing, sem frumsýnt er í Tjarnarbíó í kvöld. Að sögn Ingu Huldar á uppsetningin sér langan aðdrag- anda, enda hefur það verið æft með hléum síðan 2020. Þegar Inga Huld er beðin að lýsa verkinu segir hún það viðleitni þriggja sviðslista- kvenna og eins trommara til að umbreyta ástandi óreiðu og upplýsingaáreitis yfir í rými þar sem hægt er að íhuga, dansa, leika, tengjast og láta sig dreyma. „Hraðinn í nútíma- samfélaginu er sífellt að aukast með tilheyrandi kvíða. Mig langaði að rannsaka hvert gæti verið svarið við þessu til að koma í veg fyrir að við töpum okkur inni í nútímakaosinu,“ segir Inga Huld og bendir á að marg- ir finni jarðtengingu í gegnum nátt- úruna og fái þar ákveðna útrás. „Samtímis fannst mér pönkið bjóða upp á leið til að fá útrás og vinna með orkuna sem getur verið birtingar- mynd frústrasjóna,“ segir Inga Huld og tekur fram að hópurinn hafi skoð- að ýmsar leiðir fyrir líkamann til að losa sig við áföll úr líkamsminninu. „Í því sambandi skoðuðum við hreyfi- mynstur sem nefnist TRE og stendur fyrir Trauma Release Exercises. Þar er um að ræða hreyfimynstur sem Peter Levine uppgötvaði á sínum tíma og í framhaldinu voru þróaðar ákveðnar æfingar,“ segir Inga Huld og bendir á að dýr sem verða fyrir áfalli, t.d. árás annars dýrs, byrja að skjálfa, sem sé þeirra leið til að losa sig við stress og áföll. „Kenningin er sú að við manneskjur höfum hálf- glatað þessum hæfileika til að hrista af okkur stress og áföll,“ segir Inga Huld sem notaði þetta hreyfimynstur sem útgangspunkt í hreyfiefni sínu. Ekkert og allsnægt Ávextir leika stórt hlutverk í sýn- ingunni. „Við vinnum með tvo and- stæða póla sem eru ekkert og alls- nægt,“ segir Inga Huld og tekur fram að þar nýtist ávextirnir vel til að skapa leikgleði, fá útrás og nota í nokkurs konar ritúal. Inga Huld dansar sjálf í verkinu en með henni eru Salvör Gullbrá Þór- arinsdóttir og Védís Kjartansdóttir auk þess sem Ægir Sindri Bjarnason flytur tónlistina. „Mig langaði að vinna verkið í samsköpun með spuna og fannst besta leiðin til að vinna gegn hefðbundinni híerarkíu leik- hússins að vera sjálf í hópi flytjenda. Með því móti gat ég farið inn í leikinn og komið með hugmyndir inn í spuna- vinnuna í stað þess að segja þeim hvað þau ættu að gera,“ segir Inga Huld og tekur fram að endanlega hafi það auðvitað verið hennar að velja og hafna í mótun verksins. „Ég er mjög ánægð með samvinnu hópsins,“ segir Inga Huld og bætir við að sér hafi líka þótt spennandi hversu ólíkur bakgrunnur og reynsla þátttakenda væri. „Þannig erum við tvær sem er- um menntaðir dansarar og einn sviðs- höfundur sem hefur reynslu af því að vinna með texta og leikstýra og vera með uppistand. Salvör og Ægir hafa unnið saman í pönkhljómsveit,“ segir Inga Huld og tekur fram að meira sé hægt að læra af samstarfsfólki sínu þegar bakgrunnurinn er ólíkur. Aðspurð hvort ráðgert sé að sýna Neind Thing erlendis segir Inga Huld að það sé draumurinn en að erf- itt hafi verið að skipuleggja slíkt á tímum Covid. Verkið verði kynnt á Ice Hot Nordic Dance, norrænu danshátíðinni sem haldin verður í Helsinki í febrúar 2022, og vonandi sýnt erlendis í framhaldinu. Neind Thing er þriðja verkið af fjórum sem Inga Huld frumsýnir í fjórum ólíkum löndum á síðustu mán- uðum, en löndin eru auk Íslands, Noregur, Finnland og Frakkland. „Þetta er mikil uppskera eftir Covid- tímabilið þar sem fólk mátti ekki sýna og gat ekkert annað gert en að æfa. Það hafði því safnast upp slatti af verkum,“ segir Inga Huld og tekur fram að Neind Thing sé eina verkið af þessum fjórum sem hún semji sjálf því í hinum verkunum er hún flytj- andi. „Í verkinu Temple Père sem sviðs- lista- og sirkuskonan Phia Ménard samdi og við frumsýndum á Avignon- hátíðinni í sumar við góðar viðtöður er ég nokkurs konar syngjandi „master of ceremony“,“ segir Inga Huld, en verkið er hluti af þríleik sem samanstendur af verkunum Maison Mère, Temple Père og Rencontre Interdite sem sýnd eru saman. „Við erum að fara að túra með þríleikinn fram á sumarið 2023,“ segir Inga Huld og tekur fram að það sé ein- staklega gaman að vinna með Phia Ménard þar sem þær nái afar vel saman í listinni. Ljósmynd/Kaja Sigvalda Kvíði „Hraðinn í nútímasamfélaginu er sífellt að aukast með tilheyrandi kvíða,“ segir Inga Huld Hákonardóttir. „Hrista af okkur stress og áföll“ - Dansverkið Neind Thing frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld Inga Huld Hákonardóttir 27.995.- / St. 40-47 Vnr.: E-83681402507 ECCO ST1 HYBRID LEÐUR GÖTUSKÓR MEÐ GORE-TEX® FILMU 27.995.- / St. 40-47 Vnr.: E-83681402114 27.995.- / St. 41-46 Vnr.: E-83681401001 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE E kki er allt sem sýnist og ýmsir utanaðkomandi þættir geta haft áhrif á samskipti fólks með mismunandi hætti. Vinátta ristir ekki alltaf eins djúpt og ætla mætti og mjög getur kraumað undir því sem virðist vera slétt og fellt yfirborð. Rithöfundurinn Ragnar Jón- asson lýsir vel þessum and- stæðum í Úti, nýjustu spennu- sögu sinni, og fer vel á því að svört kápa umlyki hvítu síðurnar. Svart og hvítt fara vel saman, en lífið er samt mun flóknara en það, eins og berlega kemur fram í sög- unni. Ragnar hefur sent frá sér spennusögu árlega frá 2009. Vetr- arkuldinn og snjórinn hafa verið honum hugleikin og Úti gerist í slíkum aðstæðum uppi á fjöllum fjarri mannabyggðum. Sagan er frábrugðin stefi fyrri bóka hans og minnir að sumu leyti á Bráðina, sem Yrsa Sigurðardóttir sendi frá sér í fyrra, en er samt ólík, þegar á heildina er litið. Höfundur lýsir erfiðum aðstæð- um, sem blasa við sögupersónun- um fjórum, á svo snilldarlegan hátt, að á svipstundu er lesandinn í ókunnu umhverfi, sem hann ræður ekki við, hvað þá fjórmenning- arnir. Hann varpar líka ljósi á samskipti þeirra, rifjar upp hvern- ig þau byrjuðu og hvaða stefnu þau hafi tekið. Tengslin verða æ skýr- ari og um leið opinberast úr hverju einstaklingarnir eru gerðir, hvaða augum þeir líta vináttuna, ábyrgð- ina, traustið og samheldnina. Uppbygging sögunnar er góð og persónurnar skýrar, eins misjafnar og þær eru margar, en samtölin virka stundum stíf auk þess sem orð eins og „ha“, „ókei“, „sko“ og „ja“ eru vægast sagt ofnotuð auk þess sem, „sko er útlenskur slæð- ingur og vart rithæfur“ eins og einhver sérfræðingurinn sagði um árið! „Þetta verður allt í lagi“ get- ur verið uppörvandi að heyra en öllu má ofgera, jafnvel hvatningu. Þrátt fyrir þessa annmarka er sagan hnitmiðuð, hæfilega löng og spennandi. Persónur eru fáar, sem er kostur, spilin eru lögð á borðið í ákveðnu uppgjöri þeirra, en ekki eru öll kurl komin til grafar og því kæmi ekki á óvart að framhald yrði á, þótt það sé ekki boðað. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ragnar „Höfundur lýsir erfiðum aðstæðum, sem blasa við sögupersónunum fjórum, á svo snilldarlegan hátt, að á svipstundu er lesandinn í ókunnu um- hverfi, sem hann ræður ekki við, hvað þá fjórmenningarnir.“ Út í óvissuna og opinn dauðann Spennusaga Úti bbbbn Eftir Ragnar Jónasson. Veröld 2021. Innbundin, 263 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.