Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
D
yngja er saga sem fær
lesandann til þess að
steyta hnefann og kalla
„jess“ þegar aðalpersón-
unni vegnar vel vegna samkennd-
arinnar sem höfundur nær að skapa
í sögunni. Hún er sögð út frá nokkr-
um mismunandi sjónarhornum og
er aðeins flakkað
um í tíma. Þannig
setur höfundur,
Sigrún Páls-
dóttir, fram
púsluspil frá ólík-
um hliðum sem
raðast að lokum
saman í eina
sterka heild.
Bókin segir frá
Theodóru, eða Teddý, bóndadóttur
frá Tungu, sem er alltaf ætlað eitt-
hvað annað og meira en fábrotið
sveitalíf. Hún virðist byrja að átta
sig á því þegar hún hittir Banda-
ríkjamann sem hyggst fljúga til
tunglsins í fyrstu tilraun mannkyns
til þess. Dans Teddýjar við örlögin,
þar sem hún er vopnuð sínum
sterka vilja, fer af stað í kjölfarið.
Sagan spannar bróðurpart úr
æviskeiði Teddýjar, hefst árið 1962
og lýkur 2004. Höfundur vísar í
ýmsa sögulega atburði í sögunni,
þar á meðal tunglförina árið 1969,
og lýsir staðháttum, eins og þeir
voru fyrir 50 til 60 árum, passlega
ítarlega. Það styrkir upplifun les-
andans á því að sagan sé, í það
minnsta að hluta, sannsöguleg, að
Teddý þessi hafi raunverulega lent í
þeim ævintýrum sem höfundur
sendir hana í.
Það er einmitt ein ástæða þess að
samkennd lesandans með Teddý
verður óvenju sterk. Brestir stúlk-
unnar eru ekki minna sýnilegir les-
andanum en kostir hennar og verð-
ur hún fyrir vikið enn raun-
verulegri, ljóslifandi fyrir hug-
skotssjónum lesandans. Því er
auðvelt að lifa sig inn í söguna, engj-
ast um af sorg þegar Teddý mætir
því óréttlæti sem konur urðu fyrir á
sögutímanum, en hoppa hæð sína af
kæti þegar Teddý nær að þrýsta
þeim mörkum sem henni hafa verið
sett örlítið lengra út á við.
Bókin fer hratt af stað í fyrsta
kafla og tekst höfundi þannig að
krækja rækilega í lesandann en
strax í öðrum kafla er kominn annar
taktur í frásögnina þar sem er hætt
við að einhverjir lesendur missi at-
hyglina. Svona gengur þetta til að
byrja með, spenna er vakin og svo
fellur hún jafnharðan. Eftir nokkra
tugi blaðsíðna er sagan þó komin vel
á skrið og þá verður ekki aftur snú-
ið; það er ekki val um annað en að
komast að því hvaða slóð Teddý
muni feta.
Þá er tímaflakkið eilítið ruglings-
legt til að byrja með en þegar kem-
ur að sögulokum verður þetta allt
þess virði þegar púslin raðast
snyrtilega saman. Söguþráðurinn er
því sterkur, jafnvel þótt lesandinn
átti sig ekki endilega á því til að
byrja með.
Dyngja er raunsæ bók með ævin-
týralegum blæ. Sannfærandi per-
sónusköpun bókarinnar vekur
sterka samkennd, svo sterka að
bókin er ein af þeim sem hverfa
ekki fljótt úr huga lesandans heldur
sitja eftir með honum og fá hann til
þess að velta efni þeirra áfram fyrir
sér.
Ljósmynd/Gassi
Púsluspil „Dyngja er raunsæ bók með ævintýralegum blæ. Sannfærandi
persónusköpun bókarinnar vekur sterka samkennd,“ segir gagnrýnandinn
um sögu Sigrúnar Pálsdóttur sem situr áfram í lesandanum.
Púslar saman
sterkri heild
Skáldsaga
Dyngja
bbbbn
Eftir Sigrúnu Pálsdóttur.
JPV, 2021. Innbundin, 227 bls.
RAGNHILDUR
ÞRASTARDÓTTIR
BÆKUR
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Hvar staðsetjum við okkur gagn-
vart landslagi? Hvar liggja mörk lík-
amans og landslagsins?“ Að þessu
spyr myndlistarkonan Claire Pau-
gam sem opnar sýninguna Tilraun
til faðmlags nr. 31 í D-sal Hafnar-
hússins í kvöld, fimmtudagskvöldið
28. október, kl. 20.
Á sýningunni sýnir Claire 31.
verkið í röð þessara faðmlags-verka
sem hún hefur unnið síðasta áratug-
inn. „Ég er þverfaglegur listamaður
svo öll verkin í seríunni eru ólík
hvert öðru en þetta verk held ég að
sé um það hvernig við staðsetjum
okkur í landslaginu. Drottnum við
yfir landslaginu, lítum við á manninn
sem yfir allt hafinn og með fulla
stjórn, eða erum við hluti af lands-
laginu, bara einn af ótal þáttum sem
gefa landslaginu líf?“ spyr hún.
Verkið sem Claire sýnir er inn-
setning sérstaklega sniðin að D-sal.
„Hugmyndin er að þegar þú kemur
inn í salinn sé þetta eins og heill
heimur út af fyrir sig. Þarna er sér-
stakt hljóðverk og ljósið er haft á
ákveðinn hátt, en ég er ekki viss
hvort ég eigi að segja meira, ég vil
ekki eyðileggja hið óvænta. Innifalið
í innsetningunni er ein mynd og
skúlptúrar og hún er nokkuð stór.“
Sýningarstjóri er Aldís Snorradóttir
Claire fæddist árið 1991 í Frakk-
landi en býr nú og starfar í Reykja-
vík. Eftir útskrift með MFA-gráðu
frá Listaháskóla Íslands árið 2016
hefur hún sýnt í ýmsum listastofn-
unum hérlendis og erlendis. Hún
hlaut hvatningarverðlaun Íslensku
myndlistarverðlaunanna árið 2020
og er stjórnarmaður í Nýlista-
safninu.
Sýning Claire er 44. sýningin í D-
salar-sýningarröð safnsins, sem hóf
göngu sína árið 2007. Þar hefur upp-
rennandi listamönnum sem hafa
mótandi áhrif á íslenska myndlist-
arsenu verið boðið að halda í fyrsta
sinn einkasýningu í opinberu safni.
„Ég hef alltaf verið mjög hrifin af
sýningunum í D-sal. Mér finnst al-
gjörlega frábært að safnið bjóði upp
á þetta tækifæri fyrir unga og upp-
rennandi listamenn að halda einka-
sýningu. Það er mjög djarft af safn-
inu og ég hef alltaf kunnað að meta
það. Það er mikill heiður að vera val-
in, það er frábært tækifæri og leið til
þess að sýna vinnuna mína á sterk-
ari hátt. Sem listamaður vill maður
deila list sinni með fólki og þetta er
stórkostleg leið til þess að gera það.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Upprennandi „Sem listamaður vill maður deila list sinni með fólki og þetta er stórkostleg leið til þess að gera það.“
Drottna yfir landslagi
eða vera hluti af því?
- Einkasýning Claire Paugam opnuð í D-sal Hafnarhússins
Myndlistarkonan Hulda Stefáns-
dóttir verður í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 18 með listamannaspjall á
sýningu sinni í galleríinu BERG
Contemporary á Klapparstíg 16.
Tilefnið er einkasýning Huldu,
Upphafið er í miðjunni / In Media
Res, sem var opnuð 18. september
og stendur til 6. nóvember. Sýn-
ingin er framhald af verkaröð og
bókverki Huldu, Time Map, sem
Space Sisters Press í New York gaf
út í fyrra. „Titillinn vísar beint til
míns eigin vinnuferlis sem er eins
og órofin samfella, þar sem eitt
leiðir af öðru og mér finnst aldrei
eins og ég sé að klára eitthvað eitt
eða byrja annað nýtt,“ sagði Hulda í
samtali við Morgunblaðið.
Síðasti fimmtudagur í hverjum
mánuði er hjá mörgum söfnum og
sýningarstöðum myndlistar í höf-
uðborginni „fimmtudagurinn
langi“ en þá eru sýningar opnar
fram á kvöld, þar á meðal í BERG.
Listamannaspjall Huldu Stefánsdóttur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á sýningunni Hulda Stefánsdóttir.
Sýningaropnun laugardaginn
30. október kl. 14
Opið virka daga
10–18,
laugardaga 12–16
Lokað á sunnudögum
HRAFNHILDUR INGA
SIGURÐARDÓTTIR
Sýnir í Gallerí Fold 30. október–13. nóvember
Ó, VEÐUR