Morgunblaðið - 09.12.2021, Side 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
JÓLAGJÖFIN í ár?
arc-tic Retro
VERÐ FRá:
29.900,-
„ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ SEGJA MÉR EITT
EÐA NEITT UM ÞAÐ.“
„Á DÓTTIR ÞÍN ENN SAMA
SVEFNHERBERGIÐ?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... vatnsheld.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
LÍFIÐ VERÐUR VARLA
BETRA EN ÞETTA
KVÖLDVERÐUR VIÐ
ÍSSKÁPSLJÓS
HRÓLFUR! ÆTLARÐU AÐ RÆNA
KASTALANN Á AFMÆLISDAGINN MINN?!
SAX
NEI! ÉG KOM TIL AÐ SKERA KÖKUNA!
JÆKS
SKEL
L
HEIMS-
ENDIR
Í NÁND
inbera, lífeyrissjóða og fyrirtækja.
„Ég er formaður hjá fjórum fyrir-
tækjum núna, Símanum, Reiknistofu
bankanna, Rafmagnsveitu ríkisins og
Náttúruhamfaratryggingu Íslands
en ég er farinn að draga mig í hlé og
er á útleið.“
Sigurður fór út í hestamennsku
þegar hann hætti störfum sem ríkis-
endurskoðandi. „Ég hef verið með
dóttur minni og dóttursyni í þessu en
ætla að hætta hestamennskunni um
árámótin.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar var Hinrika
Halldórsdóttir, f. 6.5. 1942, d. 18.12.
2002, bankastarfsmaður. Foreldrar
hennar voru hjónin Halldór S. Ás-
geirsson, f. 4.1. 1904, d. 12.5. 1990,
sjómaður, og Rannveig Svanhvít
Benediktsdóttir, f. 12.9. 1904, d. 5.3.
1985, húsfreyja.
Börn Sigurðar og Hinriku eru 1)
Sigríður, f. 26.2. 1966, arkitekt. Maki:
Bjarni Þór Gunnlaugsson rafmagns-
tæknifræðingur. Börn: Hinrika, f. 7.6.
1991, hjúkrunarfræðingur. Sambýlis-
maður: Jóhann Valur Sævarsson,
rekstrarverkfræðingur. Barn: Darri
Þór, f. 27.11. 2018; Steinunn, f. 6.10.
1994, kennari og leirlistakona. 2)
Rannveig, f. 9.6. 1967, viðskiptafræð-
ingur. Maki: Björn Arnar Magnússon
byggingartæknifræðingur. Börn:
Sigurður Darri, f. 18.6. 1996, d. 29.1.
2020, var á lokaári í umhverfis- og
byggingarverkfræði í HÍ, Salvör
Svanhvít, f. 4.6. 1998, nemi í umhverf-
is- og byggingarverkfræði í HÍ,
Hinrika Salka, 2.6. 2009, grunn-
skólanemi. 3) Birgir, f. 31.12. 1973,
bifvélavirki og ljósmyndari frá há-
skóla í Kanada. Maki: Hafsteina
Sigurbjörnsdóttir, f. 16.3. 1976,
tölvunarfræðingur. Börn: Sunna Dís,
f. 26.8. 2001, nemi, Alexía Liv, f. 19.11.
2008, grunnskólanemi.
Systur Sigurðar eru Kristín, f. 24.6.
1938, sjúkraliði, og Guðlaug Gréta, f.
4.1. 1945, skrifstofumaður. Báðar bú-
settar í Hafnarfirði.
Foreldrar Sigurðar voru hjónin
Þórður Bjarnason, f. 11.9. 1897, d.
3.11. 1980, bifreiðarstjóri, og Sigríður
Ketilsdóttir, f. 20.4. 1911, d.18.2. 1998,
húsfreyja. Þau bjuggu í Hafnarfirði
alla sína búskapartíð
Sigurður
Þórðarson
Vilborg Jónsdóttir
húsfreyja á Laug
Jón Sigurðsson
bóndi á Laug í Biskupstungum
Þórunn Jónsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Ketill Greipsson
sjómaður í Hafnarfirði
Sigríður Ketilsdóttir
húsfreyja og verkakona
í Hafnarfirði
Katrín Guðmundsdóttir
húsfreyja í Haukadal
Greipur Sigurðsson
hreppstjóri í Haukadal í Biskupstungum
Þórdís Sigurðardóttir
húsfreyja í Móakoti
Jón Sigurðsson
bóndi í Móakoti
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Móakoti
Bjarni Sigurðsson
bóndi í Móakoti á Vatnsleysuströnd
Margrét Bjarnadóttir
ljósmóðir á Minna-Knarrarnesi
Sigurður Gíslason
bóndi á Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd
Ætt Sigurðar Þórðarsonar
Þórður Bjarnason
bifreiðarstjóri í Hafnarfirði
Jón Gissurarson skrifar í Boðn-
armjöð: „Sumir líta betur út
með maska (grímu)“:
Ellin nokkuð á mér hrín
útlit mun hún laska.
Aðeins lagast ásýnd mín
ef ég nota maska.
Þorgeir Magnússon yrkir um
„vinskapinn“:
Þegar skilur vini vík
verða strjálir fundir
sælli en ef sætu á brík
saman allar stundir.
Kristján H. Theodórsson yrkir:
Í Grímsvatnanna grautarskál,
gerjun stendur hæst.
Af gossperringi gerist mál,
en gengur betur næst.
Kolbrún Hjörleifsdóttir orti
þessa fallegu vísu á laugardag:
Í Suðurhöfum sólin skín
sindra öldur
sæl er vetrarsólin mín
sefar nöldur.
Það eru nýir og breyttir tímar.
Magnús Geir Guðmundsson yrkir:
Föstudagar færa mér,
fleira víst en áður var.
Núna friðsæld frekar er,
en fyllerí og kvennafar!
Ingólfur Ómar Ármannsson
skrifar: „Smá óhapp henti mig í
morgun en ég slapp með skrekk-
inn“:
Vísast hlaut ég vondan skell
varist gat ei falli.
Á hausinn stakkst og flatur féll
fram af vinnupalli.
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson
þekkir uppruna sinn og þakkar:
Kussungurinn
Æði margt mér gæfan gaf,
gat því hætt á sjónum.
Í beinan karllegg kominn af,
Kussungsstaðahjónum.
Hrólfur Sveinsson yrkir um „ein-
semd“:
Abbadís Birgitta Brant
var bústin og elegant.
Já, svo er að heyra.
En hitt er þó meira
hvað henni var ábóta-vant.
Enn yrkir Hrólfur og kallar „Leit
heldur áfram“:
Frú Halldóra keyrði á klett
og kurlaðist, hef ég frétt;
þó tínd væri saman
er tæpast að daman
sé talin með öllu komplett.
Gömul vísa í lokin:
Karlar reiða í kútum vín,
kjaftar freyða – eins og svín,
bruðla – eyða efnum sín,
af því leiðir skuldapín.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ellin með og án maska