Morgunblaðið - 14.12.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.12.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2021 Sindrastóll Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001) Sindrastóllinn er bólstraður með íslenskri lambagæru. Verð frá: 229.000 kr. Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Eigendur ökutækja sem öllum stundum eru notuð í Hrísey, Gríms- ey eða á Flatey á Breiðafirði geta nú fengið undanþágu frá skoðunar- skyldu tækja sinna. Undanþágan tekur gildi um áramót og geta eig- endur þá skráð bíla sína og önnur ökutæki í sérstakan notkunarflokk. Nú reglugerð um skoðun öku- tækja tók gildi í maí en þó var gild- istöku tiltekinna breytinga frestað til áramóta. Eyjaflokkurinn er þar á meðal. Gunnar Geir Gunnarsson, deildar- stjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, segir að ökutæki í þessum tilteknu eyjum séu ekki í umferð með sama hætti og ökutæki á öðrum stöðum landsins, þau séu yfir- leitt aðeins notuð til að komast á milli húsa. Þá hafi það verið óþægindi fyr- ir eigendur að þurfa að færa ökutæk- in upp á land til skoðunar. Nú er kveðið á um að ef ökutæki í þessum flokki eru færð upp á meginlandið falli undanþágan úr gildi og menn skuli færa ökutækið án tafar til reglubundinnar skoðunar. Undanþágan nær ekki til öku- tækja í Vestmannaeyjum. Gunnar bendir á að umferðin þar sé meiri en í fámennari eyjunum og lúti svipuð- um lögmálum og umferð í sambæri- legum bæjum uppi á landi. Þá séu samgöngur með þeim hætti að al- gengt sé að ökutækin séu notuð bæði á Heimaey og uppi á landi. Breytingarnar sem taka gildi um áramót snerta lítið hinn venjulega bíleiganda, sem er með sitt á hreinu. Hins vegar hækkar vanrækslugjald, fyrir að færa ökutæki ekki til skoð- unar á réttum tíma, úr 15 þúsund í 20 þúsund krónur og í 40 þúsund fyrir stærri bíla. Skoðað fyrir sumarið Þá þurfa eigendur ökutækja sem einkum eru notuð á sumrin, svo sem húsbíla, fellihýsa, fornbíla og bif- hjóla, að athuga breyttan skoðunar- tíma. Framvegis verður miðað við að þau þurfi að færa til skoðunar í byrj- un ferðatímabils, það er að segja í maí, en áður var miðað við ágúst. Fólk hefur eftir sem áður þrjá mán- uði til að færa ökutækin til skoðunar. Önnur ákvæði snúa mest að sér- tækari ökutækjum og ökutækjum sem ekki eru í lagi. Nú er í nógu að snúast á skoðunarstofunum við að aðlaga gæðakerfi og þjálfa starfsfólk fyrir komandi breytingar enda fyr- irvarinn ekki langur. Ekki þarf að skoða ökutæki í eyjum - Ný ákvæði reglugerðar um skoðun ökutækja taka gildi um komandi áramót Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Heyvagnaferð Margir ferðamenn hafa nýtt sér sætaferðir um Hrísey. Dráttarvélar hafa lengi verið helsta samgöngutæki Hríseyinga. Guðni Einarsson Urður Egilsdóttir Unnur Freyja Víðisdóttir Ólíklegt er að herða þurfi sóttvarna- reglur yfir hátíðirnar, að mati Þór- ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Núverandi bylgja kórónuveiru- faraldursins er hægt og sígandi á niðurleið. Þrátt fyrir að um 100-120 smit hafi greinst innanlands síðastliðna daga hefur staðan á Landspítalanum oft verið verri en nú, að sögn Þór- ólfs. „Helgin var allsæmileg á spít- alanum og á meðan svo er þykir mér ekki ástæða til að herða aðgerðir. Þessar aðgerðir sem eru í gildi núna virðast halda í horfinu og ef eitthvað er þá er smitum að fækka og kúrfan á leið niður.“ Tæplega 30 hafa greinst með ómíkron-afbrigði veirunnar hér á landi. Afbrigðið er í mikilli sókn og greinist í auknum mæli í nágranna- löndunum, einkum í Danmörku. Börnum á aldrinum 5-11 ára verð- ur boðin bólusetning við Covid-19 eftir áramót. „Sennilega munu þess- ar bólusetningar fara fram í annarri vikunni í janúar,“ segir Þórólfur. Ljóst er að börn eru að leggjast alvarlega veik inn á spítala vegna veirunnar í bæði Bandaríkjunum sem og öðrum Evrópulöndum. Því er fyllsta ástæða til að bjóða ofan- greindum aldurshópi bólusetningu gegn veirunni, að sögn Þórólfs. Hann segir yfirstandandi bylgju far- aldursins drifna áfram af börnum og bólusetningar þeirra muni ekki ein- ungis hjálpa við að kveða smitin nið- ur heldur einnig að draga úr nei- kvæðum áhrifum veirunnar á daglegt líf barna. Opnað fyrir heimsóknir Heimsóknir verða leyfðar á Land- spítala frá og með morgundeginum, 15. desember, en 14 sjúklingar lágu inni í gær með Covid-19. Einn gest- ur má heimsækja hvern sjúkling í klukkustund á dag. Æskilegt þykir að gesturinn sé fullbólusettur. Hertar aðgerðir eru ólíklegar - Staðan á Landspítala oft verið verri - Bólusetningar 5-11 ára barna í janúar 175 150 125 100 75 50 25 0 Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí 1.350 erumeð virkt smit og í einangrun2.262 einstaklingar eru í sóttkví 14 einstaklingar eruásjúkrahúsi, þarafþrírágjörgæslu 36hafa látist, þar af einn einstaklingur sl. föstudag 377 ný innanlandssmit greindust sl. helgi (fös. 10. til sun. 12. des.) Staðfest smit 7 daga meðaltal Fjöldi innlagðra á LSH með Covid-19 smit 154 32 14 H ei m ild :c ov id .is júlí ágúst september október nóvember des. 135 123 Gunnar Ein- arsson bæjar- stjóri Garða- bæjar mun ekki gefa kost á sér aftur í komandi sveitarstjórnar- kosningum og mun því láta af störfum að kjör- tímabili loknu. Gunnar er orð- inn 67 ára gamall en hann hóf fyrst störf hjá bænum 25 ára að aldri, þá sem íþrótta- og tómstundafulltrúi. Eftir það tók hann við stöðu for- stöðumanns fræðslu- og menning- arsviðs en það var ekki fyrr en árið 2005 sem hann var ráðinn bæjar- stjóri. „Ég hef varið rúmlega 40 árum af starfsævi minni í þjónustu við Garðbæinga. Á þessu langa tímabili hef ég tekið virkan þátt í uppbygg- ingu bæjarins bæði sem embætt- ismaður, stjórnmálamaður og þátt- takandi í félagsstarfi innan bæjar- markanna,“ er haft eftir Gunnari í tilkynningu. Hættir sem bæjar- stjóri Garðabæjar Gunnar Einarsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Blóðbankinn hvetur alla blóðgjafa til að bóka tíma sem allra fyrst í blóð- gjöf fyrir hátíðarnar. Mikilvægt er að tryggja öryggisbirgðir blóðs fyrir jól og áramót. Öryggisbirgðir rauð- kornaþykkna í Blóðbankanum þurfa að vera um 400 einingar en nú eru einungis 200 einingar tiltækar, sam- kvæmt tilkynningu sem Blóðbank- inn sendi frá sér í gær. Hægt er að afgreiða blóðhluta til allra sjúklinga sem þess þurfa en ef skyndilega kemur til mikillar notk- unar er viðnámsþróttur Blóðbank- ans stórlega minnkaður við þessar aðstæður. Blóðbankinn segir það því vera mjög brýnt öryggismál fyrir sjúklinga að tryggja nægilegan fjölda blóðgjafa fram að jólum. Lengdur þjónustutími Þjónustutími fyrir blóðgjafa hefur verið lengdur í þessari viku til að gera fleiri blóðgjöfum kleift að heim- sækja Blóðbankann. Opið verður í Blóðbankanum við Snorrabraut í Reykjavík klukkan 8-19 í dag, á morgun og á fimmtudag. Á föstudag verður opið kl. 8-13 og klukkan 8-16 á laugardag, 18. desember. Opið verður í Blóðbankanum á Glerártorgi á Akureyri klukkan 8-18 í dag og á morgun og klukkan 10-18 fimmtudaginn 16. desember. Hægt er að skrá sig í blóðgjöf í gegnum heimasíðu Blóðbankans, blodbankinn.is. Eins má hringja og panta tíma fyrir blóðgjöf í síma 543- 5500 fyrir Blóðbankann á Snorra- braut og í síma 543-5560 fyrir Blóð- bankann á Glerártorgi. Blóðbankinn minnir á að blóðgjöf er besta jólagjöfin og að blóðgjöf er lífgjöf. Blóðgjafar komi og gefi jólagjöf - Tryggja þarf öryggisbirgðir blóðs Morgunblaðið/Eggert Blóðgjöf Nú þarf að stækka inni- stæðuna í Blóðbankanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.