Morgunblaðið - 14.12.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2021
Landsdómur Danmerkur dæmdi
Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra
útlendinga- og innflytjendamála, í
gær til 60 daga óskilorðsbundinnar
fangelsisvistar fyrir að gefa þau fyr-
irmæli árið 2016 að giftir hælisleit-
endur undir 18 ára aldri skyldu að-
skildir, en slíkt gengur í berhögg við
dönsk lög.
Bar Støjberg því við á sínum tíma,
og við réttarhöldin, að henni hefði
gengið það eitt til að bjarga ungum
stúlkum úr þvinguðum hjónaböndum,
sem þekkt eru víða um Austurlönd,
en þetta er í sjötta skiptið sem lands-
dómur Danmerkur kemur saman.
Hófst málarekstur fyrir landsdómi
snemma í haust og var Støjberg
dæmd sek með atkvæðum 25 dómara
á móti einum.
„Hér er enginn vafi“
Danska þingsins bíður nú að taka
afstöðu til snúinnar spurningar. Er
Inger Støjberg sætt á þingi sem
dæmdum sakamanni? Sú spurning
verður reyndar fyrst borin undir
kjörprófanefnd þingsins klukkan 16 í
dag að dönskum tíma. Kjörprófa-
nefnd skipa 17 þingmenn og nægir að
einn þeirra fari fram á að þingheimur
greiði atkvæði um málið til að slík at-
kvæðagreiðsla fari fram.
Lars Løkke Rasmussen, fyrrver-
andi forsætisráðherra Danmerkur og
þeirrar ríkisstjórnar sem Støjberg
sat í, er þeirrar skoðunar að innflytj-
endaráðherranum fyrrverandi sé
ekki sætt á þingi. Ritaði hann um
málið á Facebook og var þetta nið-
urlagið: „Hér er enginn vafi: Maður
er ekki verðugur til að skipa þingsæti
hafi maður hlotið 60 daga óskilorðs-
bundinn dóm, ekki nema við endur-
kjör eftir að afplánun lýkur.“
AFP
Dæmd Inger Støjberg ræðir við fjöl-
miðla við þingfestingu málsins.
Støjberg dæmd
til fangelsisvistar
- Framtíð hennar á þingi næsta mál
„Nú er alvara á
ferðum,“ sagði
Jonas Gahr
Støre, forsætis-
ráðherra Nor-
egs, á blaða-
mannafundi í
gærkvöldi þar
sem hann kynnti
hertar sóttvarna-
reglur, sem gilda
skulu í fjórar vik-
ur frá miðnætti í kvöld, en hver
metdagurinn í nýsmitum rak annan
í síðustu viku, mest 5.400 smit á sól-
arhring. Ráku norskir vertar upp
ramakvein í fjölmiðlum í gær eftir
að Støre lagði algjört bann við sölu
áfengis á veitingahúsum frá í kvöld
fram í miðjan janúar, þar með talið
það litla sem eftir er af vertíð jóla-
hlaðborða, einu helgasta véi veit-
ingabransa landsins, að ógleymdum
áramótunum. Ekki eru liðnir fleiri
en sex dagar síðan ríkisstjórnin
herti síðast á regluverkinu.
NOREGUR
Støre-dómur yfir
norskum vertum
Jonas Gahr
Støre
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Tala látinna er nú komin í sjö í kjölfar
öflugrar sprengingar, sem að öllum
líkindum orsakaðist af gasleka, og
lagði fjögur íbúðarhús í bænum Rav-
anusa á Sikiley í rúst á laugardags-
kvöld auk þess að valda umfangs-
miklu tjóni á þremur til viðbótar.
Varð þetta ljóst þegar björgunar-
menn, sem unnið hafa nótt sem nýtan
dag við leit í rústum húsanna, fundu
fleiri lík í gærmorgun, eftir því sem
slökkvilið bæjarins greinir frá.
Gæta varúðar í rústunum
Tveggja er enn þá saknað og held-
ur leit áfram að þeim, en björgunar-
fólk hafði hunda sér til fulltingis við
leitina og voru það þeir, sem rötuðu á
líkin. Ein hinna látnu var hjúkrunar-
kona, sem var að því komin að fæða
afkvæmi sem hún bar undir belti, og
eru íbúar Ravanusa harmi slegnir
vegna atburðarins.
„Við verðum að gæta þess að fjar-
lægja brakið varlega, einn hluta í
einu, til að hindra að frekara hrun
verði,“ sagði Luca Cari, sem hafði
orð fyrir slökkviliðsmönnum á vett-
vangi, við Reuters-fréttastofuna í
gær, „brak úr byggingunum getur
hrunið ofan á slökkviliðsmennina og
einnig fólkið sem við erum að leita
að.“
„Fjölskyldur hafa tapað öllu“
Rannsókn er þegar hafin á orsök
sprengingarinnar, sem, eins og fyrr
segir, grunur leikur á að tengist gas-
leka. „Hér hefur ekkert viðhald átt
sér stað í 100 ár, Sikiley er gleymd,“
sagði Maria Rallo, en eitt fórnar-
lamba sprengingarinnar tengdist
henni vinaböndum. Ítalska gasveitan
Italgas hefur sent íbúum Ravanusa
innilegar samúðarkveðjur, en nefndi
við sama tækifæri að neyðarþjónustu
stofnunarinnar hefðu ekki borist
nein boð um gasleka í Ravanusa í síð-
ustu viku.
Þá hefur Carmelo D‘Angelo, bæj-
arstjóri þessa 11.000 íbúa bæjar, sem
einkum er þekktur fyrir grísk hof er
þar finnast, heitið því að ekkert verði
til sparað við endurbyggingu
húsanna, sem sprengingin jafnaði við
jörðu. „Fjölskyldur hafa tapað öllu
sínu og misst ættingja sína í ofaná-
lag, þær hafa tapað heimilum sínum,
minningum sínum, ljósmyndum og
öðrum eigum,“ sagði D‘Angelo.
„Þetta er lítill bær og hér þekkja allir
alla,“ sagði nafni bæjarstjórans, elli-
lífeyrisþeginn Arcangelo D‘Angelo, í
samtali við katarska fjölmiðilinn Al
Jazeera, „okkur skortir orð.“
Fleiri lík fundin á Sikiley
- Barnshafandi hjúkrunarkona meðal látinna sem fundust snemma í gærmorgun
- Tveggja enn saknað eftir sprenginguna - „Ekkert viðhald átt sér stað í 100 ár“
Vigili del Fuoco/AFP
Rústir Ljósmynd sikileyska slökkvi-
liðsins sýnir eyðilegginguna glöggt.
Úgandski vaxtarræktarmaðurinn Tamale Saf-
aulu er langt frá því að vera kominn að fótum
fram þar sem hann „pósar“ einfættur á sviðinu í
vaxtarræktarkeppninni Mr. 001 í Mombasa í
Kenía á laugardaginn, en Safaulu gerði sér lítið
fyrir og bar þar sigur úr býtum í sínum þyngd-
arflokki.
Hann er 28 ára gamall og á sex ára langan
keppnisferil að baki, frá 2015. Ekki lét Úganda-
maðurinn það slá sig út af laginu þegar hann
missti allan hægri fótlegginn í vélhjólaslysi í
febrúar í fyrra heldur kom tvíefldur til baka á
sviðið og sigraði fyrst í keppninni Mr. Kampala í
Úganda, þá í flokki fatlaðra, en nú um helgina í
Mr. 001, hans fyrstu vaxtarræktarkeppni fjarri
fósturjarðar ströndum, eða strönd réttara sagt,
þar sem eina strönd Úganda er sú sem aðskilur
það Viktoríuvatninu, er nemur hálfu Íslandi að
flatarmáli og Kenía og Tansanía deila með Úg-
anda.
Afríka
Lét alvarlegt
slys ekki verða
sér fjötur um fót
AFP