Morgunblaðið - 14.12.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.12.2021, Qupperneq 24
Myndlistarmaðurinn Ólafur Elíasson kemur víða við í sköpun sinni og nú hefur hann bæst í hóp nokkurra víð- frægra listamanna sem hafa tekið að sér að hanna miða á flöskur eins þekktasta rauðvínsframleiðanda Frakklands, Château Mouton Roths- child. Verk Ólafs prýðir flöskur 2019- árgangs vínhússins og kallar Ólafur það upp á ensku „Solar Iris of Mou- ton“. Vann hann það út frá sólar- ganginum yfir vínekrum framleiðand- ans í Bordeaux-héraði. Meðal þekktra listamanna sem áður hafa tekið að sér að hanna verk á flöskur Château Mouton Rothschild má nefna Salvador Dalí, Joan Miró, Georges Braque, Francis Bacon, Keith Haring, Jeff Koons, Niki de Saint Phalle, Rufino Tamayo, Robert Wilson og Andy Warhol. Í tilkynningu er haft eftir Ólafi að „Solar Iris of Mouton“ sé eins konar „kort yfir öll sólsetur og sólarupp- rásir eins árs við Château Mouton Rothschild“. Það sýni hverja stund dags og nætur á vaxtartíma vínþrúg- anna, sé eins konar tákn fyrir vínekr- una og segi sína sögu um aðstæðurn- ar við vöxt vínviðarins og náið samband vínsins og staðsetningar vínekrunnar. Gulur efri hluti miðans tákni dagsbirtuna og dökkur neðri hlutinn næturmyrkrið. Samkvæmt vínkaupavefnum wine-searcher.com kostar flaska af 2019-árgangi Château Mouton Rothschild með miða Ólafs um 96 þúsund krónur í Frakklandi. Ólafur í hópi frægra hönnuða vínflöskumiða - Hannaði fyrir Château Mouton Rothschild-vínin Ljósmynd/Michael Waldep – Stúdíó Ólafs Elíassonar Sólargangur Ólafur Elíasson og vínframleiðandinn Julien de Beaumarchais de Rothschild við hönnun Ólafs á flöskur Château Mouton Rothschild. 24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2021 Hágæða handverkfæri frá Crown Tools Vefverslun brynja.is gavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isau Opið til 22 frá 16.12 Þorláksmessa til 23 S káldsagan Kóperníka eftir Sölva Björn Sigurðsson er sennilega hryllilegasta bók jólabókaflóðsins. Sagan gerist á níunda áratug 19. aldar í Kaupmannahöfn og hefst á því að íslenskur unglæknir er myrtur á hrottafenginn hátt skammt frá kirkjugarði. Læknirinn hafði, eins og helsta söguhetja bókarinnar, sem einnig er læknir, þann auka- starfa að skila líkum í garðinn að krufningum loknum. Í kjölfarið fer af stað skelfileg og óhugnanleg atburðarás þar sem læknirinn reynir að greina og átta sig á hegðunar- mynstri fjölda- morðingja sem drepur ítrekað. Alltaf eru morð- in framin af nán- ast listrænni ná- kvæmni sadista sem hefur að því er virðist ákaflega góða þekkingu á líffærafræði mannslíkamans. Sagan hverfist um óhugnað og Sölva tekst að skapa sögusvið þar sem hárin rísa ítrekað á lesanda. Stór hluti sögunnar gerist í líkhúsi, óhugnanlegum kirkjugarði, vænd- ishúsi og meira segja býr aðal- söguhetjan á óhugnanlegum stað, þ.e. á vöruskemmulofti þar sem hann býr innan um gömul verkfæri sem áður voru notuð til krufninga og skurðar á fólki. Söguþráðurinn er einfaldur og skýr. Lesandi er fljótur að átta sig á megininnihaldinu og bókin er mjög áhrifarík og spennandi allt frá upphafi til enda. Raunar svo sterk að undirritaður stóð sig að því að hætta lestri um miðbik bók- arinnar tímabundið uns eiginkona hans var komin heim og hann gat öruggur haldið áfram í faðmi fjöl- skyldu. Stemning bókarinnar er mjög kraftmikil, óhugnanleg og erfitt að lýsa upplifun lesanda öðruvísi en að maður verður smeykur við lest- urinn og heillaður af því hve vel tekst til að lýsa óhugnaði og grimmd manneskjunnar. Efnið minnir að hluta til á Ilminn eftir Patrick Süskind, með ívafi úr bíó- myndinni Seven og talsverðu af sönnum sögum um fjöldamorðingja síðustu alda, m.a. Jack the Ripper. Kóperníka er hreint út sagt stór- virki og skyldulesning fyrir alla þá sem hafa gaman af óhugnaði og vel skrifuðum texta en rétt er að vara viðkvæma við. Væri þetta bíómynd væri hún bönnuð innan 18 ára og hjartveikir varaðir við að kaupa miða. Fyrir alla aðra ætti þetta að vera fyrsta val. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sölvi Björn „Kóperníka er hreint út sagt stórvirki og skyldulesning fyr- ir alla þá sem hafa gaman af óhugn- aði og vel skrifuðum texta.“ Óhugnaður og grimmd Glæpasaga Kóperníka bbbbm Eftir Sölva Björn Sigurðsson. Sögur útgáfa 2021. 390 bls. innb. PÁLL EGILL WINKEL BÆKUR Viðamesta yfirlitssýning sem sett hefur verið upp á ljósmyndum Ragnars Axelssonar – RAX verður opnuð á morgun í sýningarsölum Kunstfoyer í Versicherungs- kammer Kulturstiftung í München í Þýskalandi. Sýningin nefnist Þar sem heim- urinn bráðnar en minni útgáfa hennar var sett upp í Listasafni Reykjavíkur í fyrra. Samhliða gef- ur hið þekkta þýska forlag Kehrar út efnismikla samnefnda sýningar- skrá með verkum Ragnars. Sýning Ragnars er í röð sýninga á verkum heimskunnra ljósmynd- ara sem settar hafa verið upp í Kunstfoyer, til að mynda á verkum eftir Bill Brandt og Sebastião Sal- gado. Í tilkynningu frá Kunstfoyer segir að Ragnar sé einn þekktasti og dáðasti ljósmyndari norðursins og hafi í fjóra áratugi skrásett mannlíf og breytingar á lífskjörum á norðurhjara með eftirtektar- verðum og einstökum hætti. Stærsta yfirlitssýning RAX - Opnar í Münch- en - Kehrer gef- ur út nýja bók Virtur Í Kunstfoyer er fjöldi verka frá ferli Ragnars Axelssonar. Hittingur / Encounter / Spotkanie er yfirskrift sýningar fjögurra lista- manna, Önnu Pawłowska, Gíslínu Daggar Bjarkadóttur, Hlyns Helga- sonar og Elínar Eddu Árnadóttur, sem hefur verið opnuð í Grafík- salnum Tryggvagötu 17, hafnar- megin í Hafnarhúsinu. Listamennirnir fjórir eiga það sameiginlegt að hafa nýlega gengið til liðs við Íslenska grafík. Í tilkynn- ingu segir að þrátt fyrir að að tilurð sýningarinnar og samsetning sé til- viljunarkennd „er áhugavert að sjá að þar birtist bæði áhugaverður kontrast í efnistökum í því hvernig ólíkir listamenn ná að spila saman á sýningunni, nokkuð sem er dæmi um það sem kallast getur tíðarandi.“ Anna sýnir þrjú stór abstrakt litó- grafíuprent sem unnið hefur verið í með vatnslitum, Elín Edda sýnir röð sjálfsmynda unnar með tækni silki- þrykks og ljósmynda, Gíslína Dögg sýnir myndir unnar með fjölbreyttri tækni þar sem sögulegur veruleiki kvenna og íslenskar mynsturhefðir eru áberandi og Hlynur sýnir þrjár ljósmyndaraðir unnin með svipuðum aðferðum og svonefndir pictoralistar nýttu um og fyrir aldamótin 1900. Sýningin er opin fram á Þorláks- messu frá fimmtudegi til sunnudags kl. 14-17. Lukkuleg Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni, Gíslína Dögg Bjarka- dóttir, Anna Pawłowska, Hlynur Helgason og Elín Edda Árnadóttir. Sýna fjölbreytileg verk í Grafíksalnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.