Morgunblaðið - 23.12.2021, Síða 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Ekki láta gæludýrið
fara í jólaköttinn
„HVAÐ ER Í EFTIRRÉTT – ELDMAURAR?“ „ÉG VINN SEM VAKTMAÐUR Í
RÚMDÝNUVERKSMIÐJU.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna að þú ert
elskuð og virt.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
OG FYRIR YKKUR SEM
MISSTUÐ AF ÞESSU …
HRÓLFUR, ÉG
VIL GANGA
TIL LIÐS VIÐ
YKKUR!
ÉG SKIL HVAÐ ÞÚ MEINAR!GOTTOG VEL, EN EF
ÞÚ GERIR ÞAÐ MÁTTU
BÚAST VIÐ ÞVÍ AÐ
VERA Í STÖÐUGRI
LÍFSHÆTTU!
MA
TU
RI
NN
ER
TI
LB
ÚI
NN
ROOOP! ROOOP!
er hrifinn af klassískri tónlist, og
er listrænn sjálfur, hefur mikið
málað af vatnslitamyndum og spil-
að á píanó í gegnum tíðina. Hann
spilar oft á munnhörpuna sína og
gerir vel.
Fjölskylda
Eiginkona Aðalsteins er Ragna
Sigurðardóttir Guðjohnsen, f. 25.10.
1941, tölvukennari. Þau giftust
24.5. 1974. Foreldrar Rögnu voru
hjónin Sigurður Kristjánsson, f.
14.4. 1885, d. 27.5. 1968, ritstjóri,
alþingismaður og forstjóri Sam-
ábyrgðar Íslands á fiskiskipum, og
Ragna Pétursdóttir, f. 14.8. 1904, d.
21.11. 1955, húsfreyja.
Dóttir Aðalsteins og Rögnu er
Auður, f. 20.9. 1975, söngkona og
söngkennari, gift Elís Þorgeiri
Friðrikssyni. Börn þeirra eru tvö
og Elís á einn son af fyrra hjóna-
bandi. Börn Aðalsteins frá fyrra
hjónabandi eru Einar Pétur Guð-
johnsen, f. 23.3. 1956, rafeindaverk-
fræðingur M.Sc. og forstjóri í Con-
necticut í Bandaríkjunum, kvæntur
Jane Alice Frey Guðjohnsen. Synir
þeirra eru tveir; María Kristín
Guðjohnsen, f. 12.10. 1959, íþrótta-
fræðingur B.Sc. í New Jersey í
Bandaríkjunum, gift Gene John
Miller. Börn þeirra eru þrjú; Davíð
Steinn Guðjohnsen, f. 28.5. 1961,
iðnaðarverkfræðingur B.Sc. í New
Jersey. Dætur Rögnu frá fyrra
hjónabandi og stjúpbörn Aðalsteins
eru Elín Helgadóttir, f. 24.10. 1964,
lögfræðingur og verkefnastjóri, gift
Kristjáni Þ. Vilhjálmssyni. Börn
þeirra eru tvö; Sigrún Ragna
Helgadóttir, f. 28.6. 1968, raf-
magnsverkfræðingur, gift Sigurði
Einarssyni. Börn þeirra eru fjögur.
Systkini Aðalsteins eru Stefán
Þórður, f. 29.11. 1926, d. 24.9. 1969,
lögfræðingur; Sigríður Guðrún, f.
28.8. 1928, húsfreyja; Kristín, f.
28.3. 1930, d. 19.5. 1990, skrifstofu-
stjóri; Elísabet, f. 23.10. 1933, fv.
framkvæmdastjóri.
Foreldrar Aðalsteins voru hjónin
Einar Oddur Guðjohnsen, f. 18.12.
1895, d. 30.9. 1954, kaupmaður á
Húsavík og í Reykjavík, og Guðrún
Snjólaug Aðalsteinsdóttir, f. 29.3.
1905, d. 30.11. 1982, húsfreyja.
Aðalsteinn
Guðjohnsen
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Stóru-Reykjum
Eyjólfur Brandsson
bóndi á Stóru-Reykjum í Reykjahverfi
Sigríður Guðrún Eyjólfsdóttir
húsfreyja í Haga og á Húsavík
Aðalsteinn Jóhannesson
bóndi í Haga í Aðaldal, síðar
trésmíðameistari á Húsavík
Guðrún Snjólaug
Aðalsteinsdóttir
húsfreyja á Húsavík
og í Reykjavík
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Efri-Dálksstöðum
Jóhannes Sigurðsson
bóndi á Efri-Dálksstöðum á Svalbarðsströnd
Elísabet Ólafsdóttir
húsfreyja á Vopnafirði
Jakob Helgason
kaupmaður á Vopnafirði
Kristín Jakobsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Stefán Guðjohnsen
kaupmaður á Húsavík
Halldóra Margrét Sveinbjörnsson
húsfreyja á Húsavík
Þórður Guðjohnsen
verslunarstjóri á Húsavík, síðar kaupmaður í Kaupmannahöfn
Ætt Aðalsteins Guðjohnsen
Einar Oddur
Guðjohnsen
kaupmaður á Húsavík
og í Reykjavík
Guðmundur Sveinsson á Sauð-
árkróki yrkir um vetr-
arsólhvörf:
Langir skuggar lækkar sól
lítið birtu miðar.
Höldum bráðum heilög jól
hátíð ljóss og friðar.
Lengjast dagar lyftist brá
létt er yfir spori.
Draumar mínir dvelja hjá
dýrðarinnar vori.
Og Sigrún Haraldsdóttir yrkir
„Sólhvörf“ á Boðnarmiði:
Skuggsýnt er á skemmstum degi,
skortir lit og hýru,
þó ei svo dimmt að aldrei megi
eygja nokkra týru.
Broddi B. Bjarnason yrkir blátt
áfram:
Á morgun meiri birtu ber
blessuð sól á menn og grundir.
Því stysti dagur ársins er
einmitt nú um þessar mundir.
Reir frá Drangsnesi:
Bráðum líður lengst árs nátta
ljós og myrkurs sátt þá finn.
Klukkan fimmtán fimmtíu og átta
ferðast sól á lágpunkt sinn.
Um jólaleytið ljóssins dagur
lengist um eitt hænufet,
við það finn að vænkast hagur
von um sumar fundið get.
Og að síðustu Davíð Hjálmar
Haraldsson um „Vetrarsólstöður“:
Fullur máni fer á ról,
fjör og stuð hjá peyja:
Þykist vera sumarsól
er sest við fjörðinn Eyja.
Á Boðnarmiði skrifar Gunnar J.
Straumland „VARÚÐ! – Skötuveisl-
ur fram undan“:
Afbragðsgott í iðralos,
allt fer þar úr skorðum.
Kæst og úldið, óætt tros,
er nú víða á borðum.
Á gæðin fæst við getum sæst,
gorið æst við hötum.
Ýldan kæst svo aldrei þvæst
eða næst úr fötum.
Farið varlega á aðventunni!
Philip Vogler, Egilsstöðum, bætti
við:
Sker í nefið skatan mín,
skemmtun ætíð fín.
Ef prófar þú, ei gerir grín
gleði af vörum skín.
Árni V. Snævar kvað:
Stundum grætur gömul mey
glópsku sína og villu
þegar ung hún þóttist ei
þekkja gott frá illu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á vetrarsólhvörfum og
skötuveislur fram undan