Morgunblaðið - 23.12.2021, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
V
öld vesalingsins er vestræn
dramamynd frá árinu
2021, skrifuð og leikstýrt
af Jane Campion. Kvik-
myndin er byggð á samnefndri
skáldsögu frá 1967 eftir Thomas
Savage. Sagan hefst árið 1925 í
Montana þar sem áhorfendur fylgja
auðugum bræðrum, Phil (Benedict
Cumberbatch) og George (Jesse
Plemon), sem eru sameiginlegir eig-
endur búgarðs í Burbank. Á ferða-
lagi með nautgripi gista þeir hjá
ekkjunni og gistihúsaeigandanum,
Rose Gorden (Kirsten Dunst), og
verður hinn ljúfi maður, George,
fljótt heltekinn af henni. Skömmu
síðar giftast þau og Rose flytur,
ásamt syni sínum, Peter (Kodi Smit-
McPhee), á búgarð bræðranna. Phil
líkar ekki við Rose og trúir því að
hún hafi einungis gift sig til fjár og
kemur illa fram við bæði hana og
son hennar. Peter er mjög kven-
legur, sem er ekki vinsælt þar sem
ráðandi karlmennska er ríkjandi, og
gera Phil og vinnumenn hans reglu-
lega grín að Peter fyrir hans kven-
legu hlið. Þeir, rétt eins og áhorf-
endur, vanmeta mátt hans sem
verður þeim síðar að falli.
Kvikmyndin er tekin upp í Nýja-
Sjálandi og hin harða en jafnframt
áhrifamikla náttúra passar vel inn í
hinn karllæga vestræna heim. Þessi
vindblásna náttúra getur átt að
tákna flótta Phils frá forréttinda-
lífinu sem hann tilheyrir en vill ekki
taka þátt í. Náttúran og umhverfið
er hins vegar áminning til Peters
um þá tegund karlmennsku sem
hann tilheyrir ekki. Peter lítur þó
ekki á karlmennskuna sem ógn
heldur áskorun, eitthvað sem hann
þarf að sigrast á og gerir. Phil er
fullkomið dæmi um það sem hefur
oft verið kallað eitruð eða neikvæð
karlmennska. Hann reynir í sífellu
að sanna að hann sé harðasti og um
leið grófasti leiðtoginn í úlfaflokki
kúrekanna. Hann drottnar yfir
goggunarröðinni hvert sem hann
fer, með hroka og grimmum um-
mælum, meira að segja gagnvart
yfirvaldinu. Þessi ruddalega fram-
koma hans líkist helst hegðun
krakka sem er hræddur um að fólk
sjái í gegnum hann og efist um karl-
mennsku hans. Mæðginin, Rose og
Peter, eru tákn fyrir hið kvenlega á
þessum mjög karllæga stað og ögra
því ríkjandi valdi. Í myndum sínum
hefur Campion iðulega skoðað vald
sem fyrirbæri og þá ekki síst hver
hefur valdið hverju sinni.
Phil tekur því ekki vel þegar hann
missir bróður sinni til fátækrar
konu og Rose ógnar Phil af því að
hann getur ekki haft stjórn á henni
auk þess sem kyn hennar höfðar
ekki til hans. Peter táknar innri ótta
Phils þar sem Phil sér sig í Peter.
Munurinn á Phil og Peter er sá að
Phil leitar allra leiða til að ná sem
bestri frammistöðu í karlmennsku-
hlutverkinu á meðan Peter leitar
annarra ráða til að fella niður þessa
hugmynd um karlmennsku, þ.e.
hann reynir að afvopna karlmennsk-
una með öðrum, oft kvenlegum
leiðum.
Einn ljúfan sumarmorgun finnur
Peter geymslu með klámtímaritum
af berum karlmönnum. Tímaritin
eru öll merkt Bronco Henry, sem
var lærifaðir Phils. Stuttu síðar sér
Peter Phil í læk skammt frá þar
sem hann er nakinn ef frá er talinn
klútur sem hann ber um hálsinn og
áður tilheyrði Bronco Henry. Phil
verður Peters var og byrjar eftir
þetta að sýna stráknum vinaþel.
Áhorfendur vita ekki hvort hin nýja
vinsemd Phils stafar af því að hann
óttast að Peter muni koma upp um
hann eða af því að hann vonast til
þess að geta átt sambærilegt sam-
band við Peter eins og hann átti áð-
ur með Bronco Henry. Phil býðst til
að flétta Peter snöru úr kýrhúð og
kenna honum að ríða á hesti og
fljótt verða þeir mestu mátar. Bæði
áhorfendur og móðir Peters, Rose,
hafa áhyggjur af þessum nýja vin-
skap. Hvað ætlar Phil að gera? Ætl-
ar hann að lokka drenginn í burtu
og drepa hann? Eða eru áhorfendur
að verða vitni að gagnkvæmri ást
sem myndast á milli þeirra? Allt í
lausu lofti og áhorfendur bíða í of-
væni eftir að hryllingurinn eða
gleðin eigi sér stað. Hvað ætlar Phil
að gera? Áhorfendur og Rose hafa
hins vegar verið að spyrja rangra
spurninga. Áhorfendur, rétt eins og
allar aðrar persónur kvikmyndar-
innar, vanmeta Peter. Rétta spurn-
ingin er því; hvað er Peter að
plotta?
Karlmennskan afvopnuð
Efi „Áhorfendur vita ekki hvort hin nýja vinsemd Phils stafar af því að hann óttast að Peter muni koma upp um
hann eða af því að hann vonast til þess að geta átt sambærilegt samband við Peter eins og hann átti áður með
Bronco Henry,“ segir um The Power of the Dog. Kodi Smit-McPhee og Benedict Cumberbatch leika Peter og Phil.
Netflix
The Power of the Dog / Völd
vesalingsins bbbbn
Leikstjórn: Jane Campion. Handrit: Jane
Campion. Aðalleikarar: Benedict
Cumberbatch, Kirsten Dunst, Jesse
Plemons og Kodi Smit-McPhee. Nýja-
Sjáland, Ástralía, Bretland, Bandaríkin
og Kanada, 2021. 126 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Kvikmynd Valdimars Jóhanns-
sonar, Dýrið, sem var framlag Ís-
lands í ár til keppni um bestu er-
lendu kvikmyndina í Óskars-
verðlaununum, hefur verið valin á
15 mynda langan lista keppninnar.
Hátt í eitt hundrað þjóðir lögðu
kvikmynd fram í keppnina.
Athygli vekur að meðal þeirra
mynda sem ekki hlutu náð fyrir
augum valnefndar er hin franska
Titane sem hreppti Gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes. Sam-
kvæmt bandarískum kvikmynda-
fagritum þykja hin japanska Drive
My Car eftir Ryusuke Hamaguchi,
Flee eftir hinn danska Jonas Poher
Rasmussen og The Hand of God eft-
ir Ítalann Paolo Sorrentino líklegar
til að hreppa Óskarinn.
Á flugi Noomi Rapace í Dýrinu. Myndin
hefur verið sýnd víða við mikið lof.
Dýrið á 15 mynda
lista Óskarsins
Athygli vakti
fyrr á árinu þeg-
ar gamalt mál-
verk sem til stóð
að selja á upp-
boði á Spáni fyrir
um 200 þúsund
krónur, og var
talið málað af
lærisveini mál-
arans Josés de
Ribera, var dreg-
ið til baka vegna sterks gruns um
að það væri eftir ítalska meistarann
Caravaggio. Ef það reynist rétt er
verkið að minnsta kosti sjö millj-
arða króna virði. Spænsk stjórn-
völd hafa nú sett sérstaka vernd á
málverkið, þar sem það kunni að
vera afar mikilvægt fyrir spænska
menningu. Fyrir vikið þarf leyfi
standi til að selja verkið úr landi.
Vernd á mögu-
legan Caravaggio
Hluti málverksins
umtalaða.