Morgunblaðið - 23.12.2021, Side 57

Morgunblaðið - 23.12.2021, Side 57
æskuástin mín, hún er mamma barnanna okkar og amma barna- barnanna okkar en hún er mér svo miklu, miklu meira en það. Hún er sálufélagi minn og besti vinur minn. Ég kveð þig elsku Þráinn minn, þú ert og verður alltaf bróðir minn. Ástvinum öllum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hafið bláa hafið hugann dregur, hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur; bíða mín þar æsku draumalönd. Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyrr. Brunaðu nú bátur minn, svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum, fyrir stafni haf og himinninn. (Örn Arnarson) Þín Magný (Magga) systir. Elsku besti frændi minn í öll- um heiminum. Mig langar að minnast þín og þakka þér allt það sem þú hefur verið mér í gegnum tíðina. Það er svo erfitt því orðin eru svo fátæk- leg og þau ná ekki utan um það sem ég vil segja. Þú varst svo mikið meira en „bara“ frændi minn. Ég var þeirr- ar gæfu aðnjótandi að fá að alast að miklu leyti upp í kringum þig, bæði hjá ömmu og afa en líka hjá þér, Beggu og stelpunum sem mér hefur alltaf fundist ég eiga svo mikið í. Þetta er svo ósann- gjarnt og sárt, að maður sem elsk- aði lífið og fólkið sitt eins og þú gerðir sé hrifsaður burt á besta aldri. Sumt fær maður aldrei skil- ið. Ég stend í eilífri þakkarskuld við þig þegar kemur að ýmiss konar ráðgjöf í gegnum tíðina, sérstaklega hvað snertir skrítin ljós í mælaborðinu eða furðuleg hljóð í bílunum. Þá var það fyrsta að heyra í þér yfir hafið og alltaf var greiningin rétt: „Þetta er al- ternatorinn, Kristín.“ Eða: „Það er greinilega kominn tími á bremsuborðana, bílaböðull.“ Þú kenndir mér í gegnum símann að gera waldorfsalat og sósu frá grunni og einhverra hluta vegna tókstu óumbeðinn (ok, grátum- beðinn) að þér að fara með mér í æfingaakstur! Stóri, sterki frændi minn sem fram að því hló framan í hætturnar þeystist náfölur um borg og bæ með mig við stýrið, oft í viku í marga mánuði. Þrautseigj- an í einum manni. Eftir á að hyggja hefur þú örugglega gert þetta fyrir ömmu (til að forða henni sjálfri frá þessu hlutverki) en þó örugglega vegna þess að hún hefur beðið þig og aldrei sagðir þú nei við hana. Þið voruð svo náin, stóðuð saman í lífsins ólgusjó og alla tíð einkenndist samband ykkar af svo miklum kærleik og vináttu. Missir ömmu er mikill. Missir allra sem þekktu þig er mikill. Frá því að ég man eftir mér hefur þú alltaf verið mesti töffari í heimi. Þú sendir mig eitt sinn fimm ára gamla út í Skaganesti að kaupa fyrir þig Camel. Ég fékk seðil í hendur og mátti kaupa nammi fyrir afganginn. Ég gleymi ekki svipnum á þér þegar ég sneri heim með kanilstauk (camel/kanil … poteito potato) og fullan poka af nammi. Besti frændi í heimi. Ég var bara lítil skotta þegar þið Begga leyfðuð mér að passa Kolbrúnu, fara með hana einn Sandabrautarhring í vagninum. Ég sveif hringinn af monti og stolti og frá þeirri stundu var ég sjálfkjörin barnapía allra stelpn- anna ykkar. Þú baðst mig eitt sinn um að passa upp á stelpurnar þínar og vera til staðar fyrir þær þegar þær voru að sigla inn á unglings- árin. Ég vona að ég hafi staðið mig í því og ég vona að þið Begga hafið vitað hversu dýrmæt þið tvö og fjölskyldan ykkar hefur alltaf verið mér. Ég vildi að ég gæti deyft þessa óbærilegu sorg sem fólkið þitt er að ganga í gegnum, að missa þig – sem ert ómissandi. Takk fyrir allt og allt elsku Þrá- inn. Elsku amma, Begga, Kolbrún, Þórdís og Særós. Elsku Katrín afastelpa og elsku afastrákarnir. Ég samhryggist ykkur af öllu hjarta. Þú, sem eldinn átt í hjarta, yljar, lýsir, þó þú deyir. Vald þitt eykst og vonir skarta, verk þín tala, þótt þú þegir. Alltaf sjá menn bjarmann bjarta blika gegnum húmsins tjöld. (Davíð Stefánsson) Kristín Edda. Elsku fallegi og frábæri frændi minn. Það er svo sárt að sitja hér og reyna að finna einhver fátæk- leg orð til að kveðja þig. Ég leit alltaf upp til þín. Fannst þú svo mikill töffari. Þegar ég var í heim- sókn hjá ömmu og afa á Skaga- brautinni stalst ég stundum inn í herbergið þitt til að skoða öll flottu Kiss-plakötin á veggjunum. Seinna flissaði ég að því þegar þið Begga voruð að byrja saman, allt- af að kyssast, passaði Kollu á Sandabrautinni á meðan þið voruð í vinnunni. Þið eigið það sameig- inlegt að hafa alltaf verið óskap- lega dugleg til vinnu. Þú naust þín í mannfögnuðum og varst mikill partígaur. Minnis- stæðast af einu slíku hjá mér var á ættarmóti á Hólmavík, þú að taka lag með Pöpum eins og þér einum var lagið. Ég hugsa alltaf til þín þegar ég heyri þetta lag og það hefur glumið í höfðinu á mér síð- ustu daga. Við hringdumst stundum á og spjölluðum þá lengi um allt milli himins og jarðar. Síðasta símtal okkar var í sumar, þá var ég alltaf á leiðinni að skoða allt það sem þú varst búinn að vera að gera og græja í Eyktarásnum. Tilefni sím- talsins var eitthvert snappið sem ég hafði séð frá þér úti á Þing- vallavatni að mokveiða með Aroni, afastráknum þínum. Ég veit að þú varst óendanlega stoltur af dætrum þínum og barnabörnum og yfir þig ástfang- inn af Beggu þinni og þú skilur eftir stórt skarð en einnig mikið ríkidæmi í afkomendum þínum. Mamma sendi mér skilaboð um snögg veikindi þín á mánudags- morgun. Á þriðjudaginn varstu farinn. Síðustu dagar hafa verið daprir. Þinn tími var ekki kominn en þú ert samt farinn í síðustu siglinguna. Góða ferð elsku Þrá- inn minn. Elsku Begga, Kolla, Þórdís, Særós og fjölskyldur. Elsku amma mín. Megið þið öðlast styrk til að takast á við ykkar missi. Þín frænka, Harpa Björg Sævarsdóttir. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Elsku Þráinn, orð mín eru fá- tækleg á svona stundu en ég vil fá að kveðja þig á prenti. Þakka þér fyrir viðkynnin og það sem þú lit- aðir líf mitt. Mér finnst ég heyra þig segja við mig „þú passar Beggu“, heyri tóntegundina og áhersluna sem þú setur í orðin. Þú veist að það er fullt af fólki sem heldur utan um Beggu þína, stelpurnar og elsku barnabörnin þín. Missir þeirra er mikill. Elsku Begga mín, Kolbrún, Þórdís, Særós, Ísak, Aron, Katrín, Hilmir, Emil, Jökull, Árni, Hulda og aðrir ástvinir. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Allar fallegu minningarnar lifi með ykkur. Elsku Þráinn, góða ferð. Kveðja Sonja. Í dag kveðjum við hjartkæran mág, svila og vin sem þurfti að lúta í lægra haldi í baráttu við afar snörp veikindi. Við sem elskuðum hann sitjum eftir ráðvillt með dapran hug og hjarta og reynum að meðtaka þessa nýju heimssýn okkar. Þráinn var góður maður og ein- staklega skemmtilegur, hann var ósérhlífinn, harðduglegur, var alltaf boðinn og búinn til aðstoðar ef hennar var einhvers staðar þörf en var ekki eins duglegur að þiggja aðstoð sjálfur. Þráinn var töffari af allra bestu gerð, með harða skel en mjúkur sem sykurp- úði hið innra. Það er eiginlega ekki hægt að sitja og skrifa minningarorð um Þráin, það er svo langt því frá að vera tímabært. En minningarnar streyma samt fram, minningar um ferðalög innanlands og utan sem voru alltof fá og áttu eftir að verða svo miklu fleiri. Minnis- stæðar eru stórfjölskylduferðirn- ar til Tenerife – sem urðu þó ekki nema tvær. Þar lék Þráinn á als oddi, var hrókur alls fagnaðar og það er nokkuð ljóst að sölumenn- irnir á Tene munu gráta Þráin með okkur. Þráinn sýndi á sér nýjar hliðar síðustu misserin, ekki bara að hann hafi riggað upp húsi fyrir elsku Beggu sína heldur var hann á góðri leið með að verða vinsæl- asti snapparinn í fjölskyldunni og þó víðar væri leitað. Hann átti ein- staklega auðvelt með að sjá spaugilegar hliðar á tilverunni og var sögumaður af guðs náð þegar hann tók sig til. Þráinn var mikill náttúrumað- ur, hann undi sér best við veiðar hvort sem var sem aflasæll skip- stjóri á línubát, sem fengsæll veiðimaður með stöng í hönd, ekki hvað síst í Veiðivötnum og á Þing- vallavatni, eða á skytteríi. Þráinn var eins og fjallageit hlaupandi upp og niður heiðar, Viktor reyndi stundum að fylgja honum eftir en varð alltaf að játa sig sigraðan – Þráinn átti þá til að staldra við og gala: Viktor, ertu nokkuð að drep- ast? Svo hélt hann áfram að eltast við gæs eða rjúpu án þess að blása úr nös. Fyrst og fremst var hann Þrá- inn samt fjölskyldumaður, hann elskaði Beggu sína og lífið sem þau voru búin að skapa sér saman. Þráinn var stelpunum sínum alla tíð ómetanleg stoð og stuðningur, hann var góður tengdafaðir og einstakur afi allra barnabarnanna. Móður sinni reyndist hann vel og var natinn sonur. Þeirra er sorgin og söknuðurinn allra mestur. Við Viktor þökkum samfylgd- ina og vináttuna sem aldrei hefur brugðið skugga á. Farðu í friði, kæri Þráinn, minning þín lifir í hugum okkar og við munum passa upp á fólkið þitt. Þangað til næst, elsku Þráinn. Íris og Viktor. Í dag kveð ég minn æsku- og besta vin, hann Þráin Þór Þórar- insson. Við höfum verið vinir síðan ég var fimm ára eða síðan 1971. Við eigum margar góðar minning- ar saman, eins og þegar Dúdó heitinn (Þórarinn, faðir Þráins) fór með okkur í mörg ævintýrin. Það var farið í Svínadalinn á sleða með segli á Svínadalsvatn á vetr- artímum, veiðiferðir á ýmsa staði og svo var verið að leika sér dag- inn út og inn; smíða dúfnakofa og rækta dúfur. Allt svo skemmtilegt með honum Þráni. Svo þegar Dúdó fór í siglingar til útlanda að selja fisk þá kom hann alltaf heim með gjafir og fengum við vinirnir alltaf eins frá honum. Ég fékk oft að gista heima hjá Þráni – við átt- um að fara snemma að sofa, en þegar góð mynd var í sjónvarpinu þá skriðum við fram úr og reynd- um að horfa á myndina, en vorum alltaf reknir aftur upp í rúm. Það er líka ógleymanlegt þegar Hulda (móðir Þráins) kom með skemmdu bananana úr Haraldar- búð þar sem hún vann og við vin- irnir átum þá með bestu lyst. Þráinn fór á sjó með pabba sín- um á Krossvíkinni og eitt sumarið var ég boðinn með og varð ég sjó- veikur fyrstu þrjá dagana. En Þráinn, aldrei fann hann fyrir sjó- veiki. Hann var sjómaður í húð og hár og áttum við það sameiginlegt að laðast að sjómennskunni. Þrá- inn og Begga keyptu sér fokhelt hús í sumar og unnu að því af mik- illi natni að gera það að sínu heim- ili. Þráinn var alltaf jákvæður, ósérhlífinn og duglegur maður og var svo sannarlega vinur vina sinna. Þráinn hugsaði vel um Beggu og fjölskyldu sína. Hann var mikill afi og hugsaði mikið um afabörnin sín. Nú nýlega var Þráinn farinn að huga að því að draga aðeins í land og fara að njóta meira lífsins með Beggu sinni og fjölskyldu. Hann var búinn að segja mér að stefnan væri að fjárfesta í eign á Spáni. En svona getur lífið verið hverfult og ósanngjarnt. Lífið verður ekki eins án þín, kæri vinur. Að geta hvorki hringt né kíkt í heimsókn og fengið kaffi og rætt aflabrögð og sportveiði sem var þér svo kær. Elsku vinur, þín verður sárt saknað og það er mikill harmur að þú skyldir falla frá á besta aldri. Ég votta Beggu, börnum og fjölskyldum mína dýpstu samúð. Ég vona að þú og pabbi þinn hafið sameinast á ný í sumarland- inu og stúderið saman veiði og allt sem ykkur fannst svo skemmti- legt að gera. Að eiga vin er vandmeðfarið, að eiga vin er dýrmæt gjöf. Vin, sem hlustar, huggar, styður, hughreystir og gefur von. Vin sem biður bænir þínar, brosandi þér gefur ráð. Eflir þig í hversdagsleika til að drýgja nýja dáð. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þinn vinur, Gísli Geirsson á Sandó. MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Okkar ástkæri EINAR G. GUÐMUNDSSON, áður bóndi á Neðri-Mýrum, lést á HSN Blönduósi föstudaginn 17. desember. Útför hans fer fram frá Blönduóskirkju þriðjudaginn 28. desember klukkan 13 en vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Hægt verður að nálgast streymi frá athöfn á facebook-síðu Blönduóskirkju. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök HSN Blönduósi. Sonja G. Wüum Sólveig Ruth Bjarni Guðmundur Björn Páley Sonja Jófríður Eva Steinunn Agnes Sigurbjörg Sigríður Guðrún Björg og fjölskyldur þeirra Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, LEIFUR EIRÍKSSON bifvélavirkjameistari, Hlaðbrekku 19, Kópavogi, lést föstudaginn 17. desember. Útför hans fer fram frá Hjallakirkju þriðjudaginn 28. desember klukkan 11. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir en athöfninni verður streymt og hægt að nálgast streymið á www.promynd.is/leifur Una Sigurðardóttir Bára Leifsdóttir Ásta Leifsdóttir Sigurður Leifsson Hallfríður Ólafsdóttir Eiríkur Leifsson afabörn, langafabörn og langalangafabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, GUÐBERGUR GUÐNASON frá Flateyri, Önundarfirði, lést á Landspítalanum föstudaginn 10. desember. Útförin fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 10. janúar klukkan 13. Framvísa þarf neikvæðu gildu covid-prófi við komu í kirkjuna. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bendum á Styrktarsjóð Katrínar Bjarkar kt. 470515-1710, banki 0515-14-410407 ef fólk vill minnast hans. Margrét Ósk Guðbergsdóttir Ásta María Guðbergsdóttir Brynjar Valgeir Steinarsson Íris Ósk Oddbjörnsdóttir Ólafur Jakobsson Alda Sigríður Guðnadóttir Aðalgeir Finnsson og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN HÁKON JÓNSSON, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 13. desember. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. desember klukkan 15. Gestir eru hjartanlega velkomnir, en eru beðnir að framvísa neikvæðu Covid-prófi sem er innan við 48 klst. gamalt. Streymt verður frá athöfninni á streyma.is. Jón Ingi Gunnsteinsson Parpai Inlert Kjartan Jónsson Sólveig Jónasdóttir Hulda Jónsdóttir Hrannar Jónsson Berglind Ósk Magnúsdóttir Brynhildur Jónsdóttir Ingibjörg Hjálmfríðardóttir Óskar Björn Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri, EINAR E. SIGURÐSSON kjötiðnaðarmaður, Hvassaleiti 22, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum 13. desember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 28. desember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu aðeins nánustu aðstandendur verða viðstaddir athöfnina. Þorgrímur E. Sigurðsson Ingvi Jón Einarsson Berglind M. Njálsdóttir Ásta V. Njálsdóttir Anna V. Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.