Morgunblaðið - 23.12.2021, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 23.12.2021, Qupperneq 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Fallinn er frá lit- ríkur persónuleiki, Fjölnir Geir Bragason. Við erum bræðrasynir og þar sem töluverður samgangur var á milli feðra okkar, Braga Ásgeirs- sonar og föður míns Guðmundar Ásgeirssonar, lágu leiðir okkar Fjölnis oft saman. En einnig eftir að feður okkar létust héldum við áfram að hittast, nú síðast fyrir nokkrum vikum þar sem við snæddum hádegismat saman og fórum síðan upp í vinnustofu föð- ur Fjölnis í Austurbrún og fórum yfir stórkostlegt málverkasafn Braga sem þar er. Skammt er stórra högga á milli því ekki er langt síðan ég bar Braga föður hans til grafar. Nú er það Fjölnir, borinn til graf- ar hinn 21. desember, vetrarsól- stöðudaginn. Fjölnir var afskaplega vel gef- Fjölnir Geir Bragason ✝ Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður, Fjölnir tattú, fædd- ist 5. febrúar 1965. Fjölnir lést 11. des- ember 2021. Útför Fjölnis fór fram 21. desember 2021. inn og reyndar vel gerður á allan hátt. Hann vissulega lit- aði líf samferðafólks síns, bæði hvað varðaði útlit og framkomu, en einn- ig liggur eftir hann fjöldinn allur af lit- ríkum listaverkum í formi húðflúrs á fjölda manns, hér- lendis sem erlendis. Það er sárara en tárum taki að barnsmóðir Fjölnis að yngsta syninum lést á síðasta ári og nú þegar hann Fjölnir hefur einnig kvatt situr eftir kornungur drengur sem hefur misst báða foreldra sína með skömmu milli- bili. Fjölnir átti tvo aðra uppkomna syni sem syrgja hann sárt sem og systkini hans og móðir. Fjölnir var einstaklega vin- margur og eftir því er tekið að um er að ræða fólk úr öllum þjóð- félagshópum. Sem dæmi má nefna að fjöldi þjóðþekktra Ís- lendinga minnist Fjölnis Geirs í fjölmiðlum þessa dagana. Fjölnir hafði mikil samskipti við föður sinn alla tíð. Fjölnir lýsti honum þannig af sinni al- kunnu snilld og orðfæri þegar blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við feðgana um listina, lífið og fleira árið 2009: „Pabbi er mjög sérstakur. Hann er mjög góðhjartaður, góð- ur karl, en þungur og íbygginn. Er alltaf í eigin hugarheimi, al- varlegur.“ Bragi lýsti syni sínum svona í þessu sama viðtali: „Eins og margur veit er Fjölnir Geir reffi- legur maður, sem hefur komið víða við. Hann er þekktur fyrir að láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna og hefur frá unga aldri haft yfirmáta mikið aðdráttarafl á hitt kynið. Hvað föðurætt hans snertir er hann kominn af Snæ- fellingum og Hnappdælum ásamt smásneið af Húnvetningum.“ Fjölnir lifði hratt, sumir myndu segja að hann hefði brennt kertið í báða enda og vissulega gerði hann glappaskot þegar verst lét. En hans verður engu að síður minnst sem góð- hjartaðs, lífsglaðs einstaklings sem vildi öllum vel og litaði líf okkar hinna í öllum regnbogans litum. Hann var ljúfur og skemmtilegur höfðingi. Það er mikil eftirsjá að mönn- um eins og Fjölni. Votta fjölskyldu Fjölnis Geirs Bragasonar mína dýpstu samúð. Sigurður Bragi Guðmundsson. Ég hafði heyrt hjá bróður mín- um sögu af manni sem gengi um bæinn með sítt hár, í leðurbuxum og hlýrabol á tímum sem allir menn gengu um í bleikum skyrt- um með uppbrettar ermar og með Wham í vasadiskóinu. Þetta voru fyrstu kynnin af Fjölni töff- ara. Söguna góðu bar ég upp á hann nokkrum árum síðar þegar ég kynntist honum fyrir alvöru og hann hló þessum djúpa smit- andi hlátri enda sagan góð. Elskulegi kallinn minn, það er leitt að missa þig svona snemma. Ég hef hugsað mikið til þín og fundið fyrir tómleika en best er að rifja upp tímana sem við náð- um og gerðu okkur að vinum að eilífu. Manstu þegar við fórum til Færeyja til að skreyta Færey- inga með bleki en gleymdum tattúbyssunum? Hver fer til Færeyja að húðflúra án þess að taka húðflúrsgræjurnar með! Við gerðum það. Við þurftum að fá tattúbyssurnar með næsta flugi en þá voru flugsamgöngur ekkert sérstakar þannig að við vöppuð- um um bæinn í nokkra daga að skoða landann. Það var mikið gónt á okkur. Tveir dökkhærðir og síðhærðir menn í sérsaumuð- um fötum; Fjölnir glæsimenni og Helgi hinn fagri eins og þú kall- aðir mig nokkrum sinnum, mér þótti vænt um þá nafngift. Þessi ferð var upphafið að Fo Tatt Fest. Vörumerki sem þú byggðir upp og varst stoltur af. Manstu þegar þú sagðir mér að þú hefðir heyrt að ungar stúlk- ur færu sérferð í bæinn til að skoða sætu tattúbræðurna! Ég kunni ekkert að húðflúra en kannski leit ég út fyrir að kunna það. Stofan var oft full af ungum stúlkum að skoða tattúteikning- ar, græjurnar í botni og þú söngst með Tom waits „… I hope that I don’t fall in love with you …“ eða Thin Lizzy „… whack for my daddy-o the- re’s whiskey in the jar-o…“. Ég var DJ og þú þrykktir blekinu í liðið eða eins og þú orðaðir það: „Ég stappa í þau stálinu á meðan ég stappa í þau stálinu.“ Héldum við ekki fyrstu tattú- sýninguna á Íslandi á árshátið í Gym80? Þar gengum við fatalitlir á sviði fyrir framan bólgið vaxt- arræktarfólk. Þetta var skemmtilegt augnablik. Tattú- sýningar eru eitthvað öðruvísi í dag. Góða ferð, vinur minn, ég á eft- ir að sakna þín og mun þá hugsa hlýlega til þín. Læt eitt af þínum ljóðum, þau eru víst til í hundraðatali, fylgja með: Sigurinn svo sætur Að gleðin grætur Fjarlægar vonarglætur Eru grímulausar Fyrir allar aldir Fara á fætur Í nóttinni færast nær Og það var í gær næringin æðir Um fornar rætur vindurinn blæðir Um hæstu hæðir laufin taka á loft Og svífa á Úr norðri hann næðir Fingurkossinn kalinn kvalinn Sárin græðir Enda afbragðs Vel upp alinn Þéttir þræðir Yljandi ull Hjartarót hnuggin snót Áhyggjufull Af von Sem borin var út Á vorin Vafin um lítinn mallakút Í frosnum vaðmálsklút Móðurmálið þagnað Lífið fjarað út Um græna grundu Upp á sig undu Slæmar minningar Lifa í skömminni Hvar þær fundu Sér farveg Og árásum öllum Að orðanna höllum Frá sér hrundu Hendingin ein því réði Og máls því réði Að orðið var lagt á borðið Sem barið var í Á líðandi stundu Tilfinningarnar það umsvifalaust Á sér fundu Og létu sér fátt um finnast Léttar í lundu Helgi Örn Jacobsen. Útför í kirkju Allt um útfarir utforikirkju.is Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR KJARTANS OTTÓSSONAR. Fjölskyldan þakkar starfsfólki hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir hlýja og góða umönnun og óskar öllum gleðilegra jóla og gæfu í framtíðinni. Guðríður Þorvalds Jónsdóttir Ottó Guðmundsson Inga Jónsdóttir Guðný Guðmundsdóttir Jóhannes Stefánsson Lárus Guðmundsson María Jóhanna Sigurðardóttir Örn Guðmundsson Ingunn Þorvarðardóttir Sigurður Guðmundsson afabörn og langafabörn Bestu þakkir til allra þeirra sem vottuðu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, BJARGAR JÚLÍÖNU ÁRNADÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks heima- hlynningar Heru og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, fyrir hlýja og góða umönnun í hennar erfiðu veikindum. Kristján Ólafsson Sigrún Hildur Kristjánsdóttir Örnólfur Jónsson Ólafur Þór Kristjánsson Hildur Sólveig Ragnarsdóttir Aldís Lilja, Jón Kristinn, Kristján Ágúst, Styrmir, Ragnar Freyr og Gylfi Örn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐMUNDU JÓHÖNNU DAGBJARTSDÓTTUR, Sörlaskjóli 9. Jóhanna Pétursdóttir Ingimar Þorkelsson Magnús Pétursson Kristín Guðmundsdóttir Ólöf Pétursdóttir Þorsteinn Njálsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför elskulegrar frænku okkar, JÓHÖNNU BJARNADÓTTUR frá Eyjólfsstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks á HSN Blönduósi fyrir einstaka umönnun og góðvild. Aðalheiður Ingvarsdóttir Jenný Th. Ingvarsdóttir Steingrímur Ingvarsson Bjarni Ingvarsson Lárus B. Jónsson Bjarni J. Jónsson Jakob J. Jónsson Sveinn E. Jónsson Jón Baldvin Jónsson og fjölskyldur Okkar innilegustu þakkir fyrir sýnda samúð vegna andláts okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÍSLEIFS ÞORBJÖRNSSONAR bifvélavirkja, Gnoðarvogi 56. Fjölskyldan vill færa þakkir til allra sem komu að útför Ísleifs og óskar öllum gleðilegra jóla og gæfuríkrar framtíðar. Hafdís Sigurðardóttir Sveinlaug Ísleifsdóttir Magnús Daníel Karlsson Hrefna Dröfn Ísleifsdóttir Kári Skúlason Dagbjört, Lovísa og Ísey Káradætur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elsku eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AUÐAR ÓLAFSDÓTTUR ritara, sem lést 11. nóvember og verður jarðsett í dag, 23. desember. Sérstakar þakkir fær HERA líknarheimaþjónusta Landspítalans og taugadeild Landspítalans fyrir aðhlynningu og vináttu. Stefán Bjarnason Ólafur Stefánsson Guðlaug Eiríksdóttir Helga Stefánsdóttir Jóhann Ingi V. Magnússon ömmubörn og langömmubörn Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GEIR ÁGÚSTSSON húsasmíðameistari frá Raufarhöfn, áður til heimilis í Goðheimum 22, Reykjavík, lést mánudaginn 13. desember á Hrafnistu Laugarási. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 29. desember klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir útförina. Streymt verður á laef.is/geir-agustsson. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat. Ágúst Geirsson Ingibjörg Sigurðardóttir Ingi Örn Geirsson Soffía St. Sigurðardóttir Guðmundur Geirsson Ásta Snorradóttir Magni Þór Geirsson Fjóla Kristín Halldórsdóttir afa- og langafabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.