Morgunblaðið - 23.12.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 23.12.2021, Qupperneq 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Faxafeni 14, 108 Reykjavík www.z.is Nú liggja fjárlög frammi á Alþingi til umræðu og sam- þykktar. Í lögum nr. 100/2007, 69. gr., er tekið fram að hækkun bóta almannatrygg- inga skuli vera tiltekin í fjárlögum og skuli vera samkvæmt launaþróun en aldrei lægri en verð- lagsþróun. Allt frá 2009 hefur sú hækkun sem hefur verið tiltekin í fjárlögum verið án skýringa á hvernig hún er fengin og yfirleitt verið lægri en launaþróun, einkum hin síðari ár. Eins og komið hefur fram í fyrri greinum mínum um þetta hef ég frá lokum mars 2021 verið að leita eftir því hvernig hækkun á fjárlögum fyrir árið 2021, 3,6%, var fengin, en í raun getur sú leit átt við allar hækkanir frá 2010. TR var spurð, úrskurðarnefnd vel- ferðarmála var spurð. Þessir aðilar vísuðu á stjórnvöld. Félagsmálaráð- herra, sem var ráðherra mála- flokksins en kallaði sig barna- málaráðherra, virtist ekki hafa hugmynd um þetta þrátt fyrir að hann gæfi út reglugerð um hækk- unina og vísaði á efnahags- og fjár- málaráðuneytið. Spurningin fór þangað. Ekkert svar er enn komið en beðið hefur verið um frest. Í grein minni 24.10. benti ég á að um- boðsmaður Alþingis hefði sent bréf til Alþingis eftir skoðun máls nr. 9818/2018 að beiðni Öryrkjabanda- lagsins, bréfið dagsett 1. okt. 2019. Ekki er að sjá annað en umboðs- maður sé að vanda um við Alþingi og fara þess á leit að það bæti vinnubrögðin í sambandi við með- ferð þess á 69. gr. laga nr. 100/2007. Ráðherrar fengu líka bréfið, en ekki er að sjá nein viðbrögð við því, hvorki frá Alþingi né ráðherrum. Þingmenn og ráðherrar spurðir Eftir að fyrirliggjandi fjárlaga- frumvarp var lagt fram og umræð- ur hófust um hækkun bóta al- mannatrygginga blöskraði mér að heyra að þingmenn teldu að rík- isstjórnin hefði heim- ild til að ákveða að nánast hvaða aðferð- um sem er væri beitt við að finna út hver hækkunin ætti að verða vegna ársins 2022. Greip ég nú til þess ráðs að senda tölvu- póst á nokkra þing- menn úr bæði stjórn og stjórnarandstöðu og ráðherra og biðja þá að spyrja um þetta fyrir mig vegna áranna 2021 og 2020. Ekki reiknaði ég með við- brögðum, því mér sýndist þing- menn hvorki hafa skilning á málinu né áhuga. En þar skjöplaðist mér. Einn maður stendur vaktina greini- lega þegar kemur að málum aldr- aðra og öryrkja. Enginn ráðherra. Þessi eini sem svaraði mér brá hratt við, það tók hann ekki nema einn til tvo daga að draga þetta fram. Hann heitir Björn Leví Gunn- arsson og er þingmaður Pírata. Hafðu miklar þakkir fyrir, Björn, og ég vona að mér fyrirgefist að birta svar þitt án leyfis. Svar Björns Levís „Ég spurði um þetta. 1% hækk- unin er sérstök ákvörðun rík- isstjórnarinnar, 0,8 viðbótin út af vanmati á verðlagsþróun síðasta árs er ný túlkun, sem er mjög jákvæð. Vandinn er að launaþróun hefur verið hærri, rúmlega 7% á síðasta ári. Það sem er að gerast er: Spá um verðlagsþróun 2021 var 3,6%, raun- in varð 4,4. Þarna vantar semsagt 0,8. Spá um launaþróun 2022 er 3,8 (verðlagsþróun er 3,3) þegar búið er að bæta við því sem vantar frá síð- asta ári, þá er hækkunin 4,6%. Svo bætir ríkisstjórnin 1% við aukalega umfram skyldu skv. 69. gr. Þetta væri allt gott og blessað og rétt gert ef launaþróun 2021 væri lægri en verðbólga ársins 2021.“ Ég er ekki sammála því hjá Birni að þarna sé allt rétt gert samkvæmt 69. gr., hvað þá að verið sé að greiða umfram skyldu 69. gr., heldur lít ég svo á að Tryggingastofnun skuldi samkvæmt 69. gr. þar sem skýrt er kveðið á um að greiða skuli sam- kvæmt launaþróun ef hún er meiri en verðlagsþróun, eins og verið hef- ur í það minnsta í þrjú ár. Maðurinn sem ræður hefur að mínum dómi náð að plata þig, Björn, eins og hann er búinn að gera í mörg ár gagnvart þinginu. Hvergi er minnst á í 69. gr. að hægt sé að blanda sam- an verðlagsþróun og launaþróun til að fá út einhverja tölu. Líka stangast þessi túlkun á við það sem fjármálaráðherra sagði varðandi fjárlög fyrir árið 2021: „Það er mat hverju sinni í fjár- lagagerðinni hvernig taka skuli mið af launaþróun, en almennt má segja að gengið sé út frá meðalhækk- unum í kjarasamningum á almenn- um vinnumarkaði að teknu tilliti til þess hvenær hækkanirnar taka gildi á árinu.“ Þarna er hvergi minnst á verðlagsþróun eins og gert er nú, þótt lögum um hækkun bóta almannatrygginga hafi ekki verið breytt. Þetta sýnir að gert er nán- ast það sem mönnum dettur í hug. Ég lít svo á að TR skuldi mér þann mismun sem er á launaþróun sem Hagstofan gefur út eftir ára- mót hvers árs vegna ársins á undan og á þeirri ágiskun sem kemur fram í fjárlagafumvarpi fyrir það ár. Um- boðsmaður hefur bent á, eins og fyrr er sagt, að Alþingi þurfi að bæta vinnubrögðin hvað viðkemur 69. gr. Ekki vantar lögfræðinga á Alþingi sem ættu að geta undið sér í þetta, með fjölda aðstoðarmanna að auki. Líka spurning hvort sá félags- málaráðherra sem nú situr geti ekki sett í reglugerð að TR sé gert að greiða þennan mismun. Reglugerð hefur verið sett af minna tilefni. En svo vikið sé að manninum sem ræður. Ég held að hann sé hvorki þingmaður né ráðherra. Hafðu aftur þakkir Björn Leví. Hver ræður? Eftir Sigurgeir Jónsson »Maðurinn sem ræður hefur verið að plata þig, Björn, eins og hann er búinn að gera gagnvart Alþingi og jafnvel ráðherrum und- anfarin ár. Sigurgeir Jónsson Höfundur er sjómaður í Suð- urnesjabæ. Árið 2009 urðu landsmenn þeirrar gæfu aðnjótandi að Al- þingi samþykkti að koma á veiðikerfi sem heimilar hand- færaveiðar í atvinnu- skyni án þess að eiga kvóta. Þeim útgerðum sem mestar höfðu afla- heimildirnar mislíkaði ákvörðunin og bentu á að verið væri að rýra þeirra hlut. Í dag er þetta viðhorf vart að finna nema hjá örfáum að- ilum. Flestum sem starfa við sjávar- útveginn er löngu ljóst hversu strandveiðar hafa auðgað mannlíf, tilveru og þjónustu hinna dreifðu byggða. Fjölmargar hafnir fyllast af smábátum yfir sumarið, þaðan sem þeir streyma á miðin árla morguns og landa árangri dagsins síðar sama dag. Líf og fjör við höfnina. Smábát- arnir koma inn til löndunar, gestir og gangandi forvitnast um afla- brögðin, þar sem sjá má nýveiddan þorsk baðaðan ís og oftar en ekki ánægða sjómenn með dagsverkið. „Takmarkanir“ Veður og fiskgengd á grunnslóð eru stærstu þættirnir sem takmarka veiðar með handfærum. Auk þeirra ákváðu stjórnvöld að stýra því magni sem veitt yrði með eftirfar- andi takmörkunum: . Lengd róðurs að hámarki 14 klukkustundir . Hámarksafli í hverjum róðri 774 kg af þorski (650 þorskígildi) . Óheimilt að nota fleiri en fjórar rúllur við veiðarnar . Veiðar óheimilar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum . Róðrafjöldi takmarkaður við 12 í hverjum mánuði. Það er ekki á færi allra að stunda sjómennsku við slíkar takmarkanir og að sjálfsögðu ekki öllum gefið að fiska og gera út bát með þeim kostn- aði sem því fylgir. Það er aftur á móti greypt í sál fjölmargra þeirra sem stunda eða stundað hafa fisk- veiðar að láta drauminn rætast, kaupa sér smábát og verða sjálf- stæðir útgerðaraðilar. „Mikill áhugi og atvinnusköpun“ 672 bátar stunduðu strandveiðar á liðnu sumri. Alls fóru þeir í 18 þúsund róðra á þeim fjórum mánuðum, maí-ágúst, sem leyfið til strandveiða nær til. Hundruð starfa skap- ast þannig á sjó og hjá vinnslum og þjón- ustuaðilum um land allt. Áhugi fyrir strand- veiðum gengur í bylgj- um eins og í öðrum at- vinnugreinum. Um þessar mundir er hann mikill eins og tölur síðastliðins sum- ars bera með sér. Karlar og konur á öllum aldri stunda strandveiðar, konunum mætti gjarnan fjölga í stéttinni. „Tryggja verður 48 daga“ Undanfarin tvö sumur hefur auk fyrrgreindra takmarkana verið grip- ið inn í veiðarnar áður en ágúst er allur. Veiðar voru stöðvaðar 19. ágúst 2020 og 18. ágúst í ár. Saman fór góð veiði og gæftir þannig að heildarafli náði því magni sem ætlað var til veiðanna. Þessu verður að breyta svo jafnræðis verði gætt. Öll- um, hvar á landinu sem þeir gera út, þarf að tryggja 48 daga á strand- veiðum, 12 í hverjum mánuði. „Ímyndin“ Ímynd sjávarútvegs á Íslandi væri heldur fátækleg ef öflugrar smábátaútgerðar nyti ekki við. Hér væru að öðrum kosti örfá skip sem veiddu allt það sem heimilt væri að taka úr auðlindinni hverju sinni. Slíkt umhverfi, sem sumir segja bestu hagfræðina, hagræðinguna, má aldrei líta dagsins ljós. Öflug útgerð smábáta er tákn um heilbrigðan sjávarútveg. Strandveiðar gulls ígildi fyrir sjávarútveginn Eftir Örn Pálsson »… greypt í sál fjölmargra þeirra sem stunda eða stundað hafa fiskveiðar að láta drauminn rætast, kaupa sér smábát og verða sjálfstæðir útgerðaraðilar. Örn Pálsson Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda orn@smabatar.is SMARTLAND
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.