Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.2020, Side 104

Strandapósturinn - 01.06.2020, Side 104
103 Orðrómur var um að Snorri væri fjölkunnugur og áður en hann dó, sagð ist hann ekki vilja vera fluttur í kirkju; heldur vera grafinn heima. Þegar lík hans var flutt í kirkjugarðinn var kistan óeðlilega þung og miðja vegu urðu menn að hvíla sig. Þegar þeir lyftu kistunni aftur, var hún hins vegar eins létt og fjöður. Rætt var um að opna kistuna og skoða, en mennirnir ákváðu að raska ekki ró þess látna. Svo var kistan grafin. Sagan segir síðan: Nokkuð löngu seinna var bærinn á Svanshóli rifinn. Fannst þá í veggnum milli búrs og eldhúss beinagrind af kvenmanni í heilu líki, og hugðu menn, að Snorri hefði látið stúlkuna, sem hvarf, ganga þar inn í vegginn. Það er trú manna, að Kölski hafi sótt Snorra í kistuna. Þannig birtist líka atriði í þessari sögu, sem nú er að verða kunnuglegt. Það leiðir ekki til hamingju, ef hinir ríku virða ekki þá ábyrgð sem þeir hafa gagnvart fátækum. Sú krafa fátækra að fá aðstoð þeirra sem eru aflögufærir er rétt bæði að guðs og manna lögum. Þannig virka örnefni og sögustaðir í landslaginu sífellt sem áminning um þessa skyldu, hvort sem um er að ræða Lákaklett, Sesselju, Dauðastein eða kirkjugarðinn á Kaldrananesi. Skilaboð um rétt og rangt felast þannig í sögustöðum og örnefnum landsins. Heimildir: Gísli Jónatansson: „Nokkur örnefni í Kirkjubólshreppi.“ Strandapósturinn 23 (1989), 121-126. Grímur Bendiktsson: Svör við spurningum Örnefnastofnunar. Ódagsett. Varðveitt hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Jón Thorarensen: Rauðskinna hin nýrri. Reykjavík: Þjóðsaga, 1971, I, 171-174. Sigurður Nordal og Þórbergur Þórðarson: Gráskinna hin meiri. Reykjavík: Bókaútgáfan Þjóð- saga, 1962, I, 148-150. Þýski fræðimaðurinn dr. Matthias Egeler var gestafræðimaður hjá Rannsóknasetri HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu og dvaldi á Ströndum við rannsóknir hálft árið 2019. Matthias starfar við rannsóknir hjá Stofnun um skandinavísk fræði og trúarbrögð hjá Ludwig-Maximilians háskólanum í München í Þýskalandi. Á Ströndum vann Matthias að rannsóknum fyrir ritun bókar um samspil landslags, trúarbragða og hins yfir náttúru- lega. Rannsóknir hans á Ströndum voru studdar af Heisenberg-áætlun þýsku rann- sóknar sjóðsins og þakkar hann Þjóðfræðistofu, sveitarfélaginu Strandabyggð og öllu góðu fólki á Ströndum fyrir góðan stuðning og gestrisni þeirra.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.