Bændablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. október 20212 FRÉTTIR Um 60 þúsund fjár í Skaga- og Húnahólfi: Varnarlína við Blöndu var lögð niður 2018 – Bændur kalla eftir endurskoðun á þeirri ákvörðun Varnarlína við ána Blöndu var lögð niður þann 1. febrú- ar 2018. Það var gert að tillögu Matvæla stofnunar og með því var Húna- og Skagahólf gert að einu varnarhólfi sem er merkt nr. 9. Samtals eru um 60 þúsund fjár innan hólfsins, sem skiptast gróf- lega þannig að um 20 þúsund fjár eru í Skagahólfi og um 40 þúsund í Húnahólfi. Í ljósi þeirrar umræðu sem nú á sér stað um útbreiðslu riðu á svæðinu hafa bændur kallað eftir því að þessi ákvörðun verði tekin til endurskoðunar. Samkvæmt 12. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim er ráðherra falið að ákveða, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, hvaða varnarlínum skuli haldið við og ef nauðsyn krefur hvort setja eigi upp nýjar varnarlínur. Breytingar hafa nokkrum sinnum verið gerðar á varnar línum. Í mars árið 2017 kom út skýrsla um endurskoðun á varnarlínum vegna sauðfjársjúkdóma. Í skýrslunni leggur héraðslæknir umdæmisins til að varnarhólfin Húnahólf og Skagahólf verði sameinuð því áin Blanda, sem skilur hólfin að, er engan veginn nægur farartálmi fyrir sauðfé. Þá vantaði ristarhlið við báðar Blöndubrýrnar og sjúkdómsstaða í báðum hólfum væri hin sama. Skortur á fjármagni til viðhalds og endurbóta á girðingunni Meginrökin fyrir því að leggja niður varnarlínu við Blöndu var skortur á fjármagni til viðhalds og endurbóta á girðingunni. Bændur á svæðinu mótmæltu harðlega áformum um niðurfellingu á Blöndulínu á sínum tíma. Niðurstaða nefndarinnar sem vann að tillögum um endurskoðun á varnarlínum var í samræmi við kröfur bænda. Nefndin lagðist gegn því að línan yrði lögð niður, en lagði jafnframt til að tryggt yrði fjármagn til að gera línuna fjárhelda og viðhalda henni. Í ummælum nefndarinnar er á það bent að sjúkdómastaða í varnarhólfunum tveimur væri ólík. Riða hafi þannig greinst síðast í Húnahólfi árið 2007 en hafði greinst árið 2016 í Skagahólfi, ári áður en skýrslan kemur út. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu nefndarinnar fór það þannig að Blöndulína var lögð niður og hólfin sameinuð með innleiðingu á nýrri reglugerð 1. febrúar 2018. Landinu skipt upp í 25 varnarsvæði Landinu er nú skipt upp í 25 varnar- svæði með svonefndum varnarlínum sem ýmist eru girðingar eða nátt- úrulegar hindranir. Um tíma voru varnarlínurnar 29 talsins og auka- línur innan svæða. Upphaflegur tilgangur þessa fyrirkomulags var sá að varna útbreiðslu sauðfjársjúk- dóma sem borist höfðu til landsins með innflutningi á karakúlfé frá Þýskalandi árið 1933, garna- og mæðuveiki. Varnarhólfin voru liður í aðgerðum sem ráðist var í til að út- rýma sjúkdómum og það tókst hvað mæðiveikina varðar. Ekki tókst jafn- vel upp með garnaveikina sem enn er til staðar. Bólusetning hefur dregið mjög úr tíðni garnaveiki á liðnum árum og henni útrýmt á nokkrum svæðum. /MÞÞ Eins og sjá má á þessu korti eru bæði Húnahólf og Skagahólf með sama númer (9) eftir að varnarlína við Blöndu var aflögð 2018. Hugmyndir Halldórs Runólfssonar, fyrrverandi yfirdýralæknis, um niðurskurð, snerta eldi á um 60 þúsund fjár og kostnaður ríkisins gæti numið um 6 milljörðum króna. R iðuveiki er ólík mörgum öðrum smitsjúkdómum í sauðfé að því leyti að um breytt prótein er að ræða en ekki vírus. Riðuveiki er talin hafa borist til landsins með enskum hrúti sem fluttur var inn frá Danmörku að Veðramóti í Skagafirði árið 1878. Veikin breiddist í allar áttir með hrútum undan þeim enska, en hún virtist ekki smitandi í fyrstu. Útbreiðslan var hæg um Norðurland fyrstu 75 árin, en varð að smitfaraldri sem óð yfir stóran hluta landsins yfir tveggja áratuga skeið. Svo hröð útbreiðsla hafði ekki sést í öðrum löndum. Tjón varð líka stórfelldara en menn áður þekktu, 10–15% dauðföll voru algeng árlega á fullorðnu fé og stundum meira. Riðuveiki hefur lagst á ýmsar tegundir dýra í öðrum löndum, en sauðfé er eina dýrategundin hér á landi sem vissa er um að hafi tekið sjúkdóm í þessum flokki, þ.e. TSE, sem er smitandi heilasjúkdómur. Bændur í Kinn og Útkinn komnir heim – Mjólk tókst að bjarga á öllum bæjum Bændur í Kinn og Útkinn eru komnir heim eftir að rýmingu var aflétt á þriðjudagskvöld. Allri mjólk tókst að bjarga á kúabúun- um sex. Eftir gríðarlega úrkomu á Norður- landi var hættustigi almannavarna lýst yfir í Kinn og Útkinn í Suður- Þingeyjarsýslu aðfaranótt sunnudags vegna skriðuhættu. Rýma þurfti tólf bæi í Útkinn og Kinn um helgina, en talið er að tugir skriða hafi fallið á svæðunum og nokkrir bæir urðu innlyksa. Á þriðjudaginn var komið að þolmörkum hjá kúabændum varð- andi geymslu mjólkur. Mjólkurbíll Auðhumlu sótti mjólkina á þriðju- daginn á öll sex kúabúin í Kinn og Útkinn, fyrir utan Björg en þangað var ófært. Ökuleið var svo rudd í gegn þangað í gær á miðvikudegi og mjólk- inni bjargað. Ræktarlögn á kafi í vatni og aurbleytu Var þyrla Landhelgisgæslunnar notuð til að hjálpa til við rýmingu og fengu bændur aðstoð björgunarsveita til að komast í aðkallandi bústörf eins og mjaltir. Samkvæmt upplýsingum frá Hermanni Karlssyni, aðalvarðstjóra í aðgerðarstjórn lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, var ekki tilkynnt um tjón á húsakosti né ollu skriður skaða á búfé bænda en ræktarlönd eru mörg hver á kafi í vatni og aurbleytu. Mjólkurtjón ekki bætt Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi á Björgum og fyrrverandi formaður Samtaka ungra bænda, segir að fjöl- skyldan hafi haldið til á Húsavík frá aðfaranótt sunnudags og á meðan rýming stóð yfir. „Við fengum að fara heim í mjaltir í fylgd björg- unarsveita, enda bannað að fara inn á svæðið. Systir mín og mágur sáu um mjaltir og gjafir en við fengum einnig að fara til að sækja föt og annað sem við þurftum á að halda. Undir venjulegum kringumstæðum hefði mjólkurbíll átt að sækja þriggja daga mjólk til okkar á þriðjudaginn, en það var ekki mögulegt því hér eru erfiðustu aðstæðurnar. Hefði mjólk- urbíllinn ekki komist til okkar í dag hefði þurft að hella mjólkinni niður og það tjón hefði ekki verið bætt,“ segir Jóna, en hún telur að um þrjú þúsund lítrar hafi verið í stútfullum tankinum á Björgum þar sem 40 mjólkandi kýr eru. Aurinn liggur á fjölda túna Að sögn Jónu hafa aðstæður lítið breyst frá helginni, áfram hefur haldið að rigna eitthvað, þótt það sé mun minna en um helgina. Hún segir að það hafi staðið frekar tæpt með eina skriðuna sem teygði sig mjög nærri bænum, en fólk var við mjaltir þegar sú skriða féll. „Sauðféð var úti – og er reyndar enn þá. En það var fjarri fjallinu og því ekki í hættu beinlínis af henni. Við höfð- um hins vegar áhyggjur af þeim ef það myndi koma eitthvert flóð í Skjálfandafljóti. Hins vegar er mest allt á floti hjá okkur á túnunum, ýmist undir vatni eða aurbleytu og leðju. Aurinn og leðjan nær alveg yfir fjölda túna og svo eru slettur á öðrum. Við erum hins vegar bjartsýn á framhaldið og engan bilbug á okkur að finna þegar við fáum loksins að fara heim. Tækin til að koma þessu í samt lag eru til þannig að það verð- ur bara ráðist í verkin eins fljótt og hægt er. Tilfinningatjónið er hins vegar erfitt að bæta, því ásýndin umhverfis bæinn er auðvitað gjör- breytt. Svo þarf að meta margt upp á nýtt varðandi hættusvæði og annað með tilliti til þess að það bendir ýmislegt til að veðurfar sé breytt í ljósi loftslagsbreytinga, með þessum óhemjumiklu rigningum.“ /smh Kýrnar kætast þegar bændur og björgunarsveitarmenn koma á bæinn. Svona voru aðstæður við bæinn Björg í Útkinn á mánudaginn. Mynd / Landhelgisgæslan Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi á Björgum, og sonurinn Hlöðver Þór Jónuson. Myndir / Aðsendar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.