Bændablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. október 20218 FRÉTTIR Hvítlauksuppskeran um eitt tonn á Efri-Úlfsstöðum – Tilraunasumar sem gefur vísbendingar um að þetta sé hægt Nýr íslenskur hvítlaukur frá hvít- lauksbóndanum Herði Bender á Efri-Úlfsstöðum í Austur- Landeyjum er nú kominn í versl- anir. Hann áætlar að setja um eitt tonn á markað. Hörður segir að vorið hafi verið mjög kalt og sumarið blautt. Þá hafi illgresið verið talsvert til vandræða – sérstaklega arfinn. „Þetta tilraunasumar er hins vegar ágætis vísbending um að þetta muni virka, það þarf að huga vel að því að drena akrana og svo ræktun skjólbelta – sem ég er reyndar þegar kominn af stað með. Við gróðursettum tíu þúsund tré í sumar og stefnum á að tvöfalda þann fjölda á næsta ári.“ Kalt vor og blautt sumar Áform voru uppi hjá Herði að selja almenningi aðgang að akrinum nú í haust, en vegna þess hversu blautur akurinn var og vegna þess að horfur voru um lakari uppskeru, hætti hann við það þetta árið. „Það liggur fyrir að eitt af þessum sex yrkjum virkaði almennilega. Ég geri ráð fyrir núna að þetta muni taka fimm ár, að gera aðstæður hér ákjósanlegar og finna hentug yrki áður en framleiðslan verður það sem kalla megi stöðug,“ segir Hörður. Hvítlauksolíugerð úr því sem ekki fer í búðir Sem fyrr segir mun um eitt tonn af góðum hvítlauk fara í almenna sölu. Hörður segir að minni hvítlaukurinn, sem hentar ekki á markað, verði not- aður til framleiðslu á hvítlauksolíu og hann er strax kominn af stað í undirbúningsferil fyrir þá vöru- þróun. /smh Útlitið var ágætt snemma sumars. Mynd / smh Hvítlaukurinn hér í þurrkun á Efri-Úlfsstöðum. Myndir / úr einkasafni Starfshópur skipaður um CBD-olíu – Semur frumvarp um heimild til notkunar í matvælum Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp um framleiðslu og markaðssetningu á CBD-olíu, sem er óheimil í dag. Kemur ákvörðunin í kjölfar álits velferðarnefndar í vor sem lagði til að skoðað yrði hvort eitthvað í regluverkinu hér á landi hindri sölu á CBD-vörum, sem unnar eru úr blómum og blöðum iðnaðarhamps. CBD er einn fjölmargra kannabínóða sem þar er að finna og er þeirra þekktastur og mest rannsakaður vegna mögulegra heilsusamlegra áhrifa. Frumvarp um heimild til notkunar á CBD-olíu í matvælum Hefur ráðherra óskað eftir tilnefningum á fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins, Lyfjastofnunar og Matvælastofnunar í starfshóp. Í tilkynningu úr ráðuneytinu kemur fram að hópnum verður falið að yfirfara núgildandi löggjöf og semja frumvarp um heimild til notkunar CBD-olíu í matvælum. „Í júní var gerð lagabreyting sem heimilar innflutning á fræjum til ræktunar á iðnaðarhampi. Þær tegundir iðnaðarhamps sem heimilt er að rækta á Íslandi innihalda lágt THC gildi og fyrir vikið flokkast þær ekki sem vímugjafar. Engu að síður heimilar núgildandi löggjöf ekki framleiðslu og markaðssetningu á CBD-olíu sem fæðubótarefni á Íslandi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Þar kemur fram að ráðuneytið hafi orðið vart við mikinn áhuga á CBD- olíu hjá Íslendingum, mögulegri framleiðslu og markaðssetningu á henni. /smh Hampsblóm í Gautavík í Berufirði, þar sem framleiðsla á hamp-tei fer fram. Mynd / Gautavík Rekstrarfélag Hótels Sögu tekið til gjaldþrotaskipta Félagið Hótel Saga ehf., sem er rekstrarfélag Hótels Sögu, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið er í eigu Bændasamtaka Íslands, sem og Bændahöllin ehf. sem rekur fasteignina. Gjaldþrot rekstrarfélagsins hefur hvorki bein áhrif á starfsemi BÍ, né afdrif fast- eignarinnar. Hótelinu lokað í nóvember Hinu sögufræga hóteli, Hótel Sögu, var lokað 1. nóvember 2020 vegna rekstrarerfiðleika í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Hótelreksturinn hófst árið 1962, þegar fyrstu hæðir þess voru teknar í notkun. /smh Hótel Saga við Hagatorg. Mynd / HKr. Breytingar hafa orðið á rit- stjórn Bændablaðsins en Þórdís Una Gunnarsdóttir er nýr auglýsingastjóri. Þórdís Una kemur klyfjuð reynslu inn í starfsmannahóp blaðsins en hún hefur unnið í 26 ár innan auglýsinga- og markaðs- geirans, síðast sem auglýsinga- stjóri hjá Birtingi útgáfufélagi. Þórdís Una mun hefja störf á blaðinu nú í október og hefur aðsetur í Bændahöllinni á skrifstofum Bændasamtakanna. Netfangið hennar er thordis@ bondi.is Guðrún Hulda Pálsdóttir, fráfarandi auglýsingastjóri, mun færa sig um set inni á ritstjórn blaðsins og einbeita sér að efnis öflun, greinaskrifum og hlaðvarpsgerð. Nýr auglýsingastjóri Bændablaðsins Þórdís Una Gunnarsdóttir. á bbl.is og líka á Facebook Skimun Matvælastofnunar fyrir sjúkdómsvaldandi örverum í kjöti: Hvorki salmonella né kampýló- bakter fannst í kjúklingakjöti Matvælastofnun hefur frá árinu 2018 birt niðurstöður úr skimunum kjöts á mark- aði fyrir sjúkdómsvaldandi örverum. Nýverið var birt skýrsla fyrir síðasta ár þar sem fram kemur að hvorki salmonella né kampýló- bakter greindist í þeim sýnum sem tekin voru af kjúklingakjöti. Salmonella fannst heldur ekki í svína- kjöti. Í sambærilegri skýrslu fyrir árið 2019 fannst kampýló- bakter í þremur sýnum af frosnu kjúklingakjöti og í einu sýni af inn- lendu svínakjöti. Niðurstöðurnar nú þykja benda til að forvarnir og eftirlit hafi skilað árangri í eldi og við slátrun alifugla og svína. Meinvirknigen í um fjórðungi sýna Tekin voru sýni af innlendu og erlendu kjöti á markaði þar sem skim að var fyrir salmonellu í ófrosnu kjúklingakjöti og ófrosnu svínakjöti, kampýlóbakter í ófrosnu kjúklingakjöti yfir sumarmánuðina og shigatoxín myndandi E. coli (STEC/VTEC) í frosnu og ófrosnu nautgripa- og lambahakki. Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að skimun á STEC bendi til að að shigatoxín mynd- andi E. coli bakteríur séu hluti af náttúrulegri örveruflóru nautgripa. „Meinvirknigen greindust í um fjórðungi sýna af nautakjöti og gen afbrigða (sermisgerða) O026 og O157 greindust í 12 sýnum (13,2% nautakjötsýna). Í flestum þeirra greindist einnig bindigenið eae, sem eykur sýkingarhæfni E. coli. Meinvirknigen greindust einnig í þeim fáu sýnum sem tekin voru af lambahakki, og sermisgerðin O103 greindist í einu sýni. Ekki er hægt að draga ályktanir af svo fáum sýnum,“ segir í niður- stöðunum. Vakta þarf STEC í kjöti Þar kemur einnig fram að vakta þurfi reglulega STEC-bakteríur í kjöti og skerpa þurfi á fyrirbyggj- andi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum til að minnka líkur á að STEC berist í kjötið. „Hreinleiki gripa skiptir hér einnig máli og því þarf að koma í veg fyrir að óhreinir gripir séu fluttir í sláturhús. Neytendur geta dregið verulega úr áhættu vegna smits frá salmon- ellu, kampýlóbakter eða E. coli með því að gegnumelda kjöt fyrir neyslu og koma í veg fyrir krossmengun við meðferð og geymslu matvæla. Sjúkdómsvaldandi bakteríur eru á yfirborði kjöts og drepast við steik- ingu/grillun á kjötstykkjum, en bakt- eríurnar dreifast um allt kjötið þegar það er hakkað. Því er mikilvægt fyrir neytendur að forðast krosssmit við matreiðslu og gegnumsteikja ham- borgara og annað hakkað kjöt, sem og kjúklinga- og svínakjöt,“ segir í niðurstöðunum. /smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.