Bændablaðið - 07.10.2021, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. október 2021 31
FJÓSAINNRÉTTINGAR
DSD fjósainnréttingar sem
framleiddar eru í Hollandi eru
sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi
sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar
og prófaðar eftir ströngustu
gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng
reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
Til á lager
Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri
bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
JIII HVAÐ ÉG
HLAKKA TIL AÐ
FLETTA ÞESSUM
EGGrún er ný fóðurlína
fyrir unga og varpfuglaLely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGSUGU-
DÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR
LÍF&STARF
Sveppahringurinn á lóð sundlaugarinnar á Selfossi búinn til úr sveppum,
mjög sérstakt að sjá. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Sérstakur sveppa-
hringur á Selfossi
Starfsmenn og gestir Sundhallar
Selfoss hafa velt því mikið fyrir
sér í haust af hverju sveppir hafa
myndað hring á lóðinni, fallegan
hring þar sem enginn er að troðast
fram yfir og reyna að vera meira
áberandi en aðrir í hringnum.
„Sveppir vaxa út frá einum punkti
í allar áttir og úr verður hringur.
Síðan þegar þeir hafa vaxið í nokkra
áratugi þá verður hringurinn nokkuð
bein lína og oft drepst einhver hluti
svepps og þá vantar hluta í hringinn.
Af myndinni að dæma finnst mér
líklegast að þetta sé einhver ljóska,
Hebeloma-tegund. Þær tegundir
mynda svepprót með ýmsum
trjám og eru aspir og birki meðal
þeirra trjáa sem tengjast ljóskum í
svepprótarsambandi. En þá ætti að
vera tré í miðjum hringnum þannig
að þetta getur líka verið einhver
annar sveppur með brúnt gróduft
sem vex þarna.
Á myndinni sér maður hattsvepp
í sveppabaug en það er ekki séns
að sjá hvaða sveppur þetta gæti
verið,“ segir Guðríður Gyða
Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands. /MHH
Íslenska fyrirtækið Betri svefn:
Borgar starfsfólki
sínu fyrir að sofa vel
– Eitt fyrirtæki og eitt embætti fengu svefnvottun
Mikil vitundarvakning hefur átt
sér stað meðal íslenskra fyrirtækja
varðandi svefnheilsu starfsmanna.
Ef fólk kemur illa sofið í vinnuna
er meiri hætta á mistökum hjá
starfsfólki og slysahætta eykst.
Að sama skapi veikir svefnleysi
ónæmiskerfið og svefnlausir
starfsmenn taka allt að 100% fleiri
veikindadaga heldur en þeir sem
sofa vel.
„Það er því ánægjulegt að sjá
hversu margir íslenskir stjórnendur
eru farnir að taka þennan þátt inn í
almenna heilsueflingu starfsmanna
og sífellt fleiri fyrirtæki sem bjóða
starfsmönnum upp á fræðslu um
svefn, skimun fyrir svefnvanda og
meðferð fyrir þá sem komnir eru í
vanda,“ segir Erla Björnsdóttir hjá
Betri svefni.
Borgað fyrir svefninn
Fyrirtækið Klaki gerði nýlega
skemmtilega tilraun með sínu
starfsfólki þar sem starfsmönnum
var greiddur bónus vikulega ef þeir
sváfu nóg. Verkefnið hefur farið vel
af stað og er starfsfólk að ná við-
miðum u.þ.b. aðra hverja viku að
meðaltali. Starfsfólk lýsir áhrifum
þannig að þreyta sé minni og að vart
sé við aukna vellíðan. Miklar vonir
eru bundnar við langtímaáhrif bættra
svefnvenja hjá starfsfólki og hefur
fyrirtækið því ákveðið að gera launa-
viðbæturnar varanlegar. Þá segir
Erla að embætti ríkislögreglustjóra
hafi einnig verið að vinna markvisst
með svefnheilsu sinna starfsmanna
en þar fengu allir starfsmenn fræðslu
um svefn, skimað var fyrir svefn-
vanda meðal starfsmanna og þeim
sem sváfu illa var boðin aðstoð til
að bæta svefninn. Það vita það allir
að álag í starfi hjá lögreglumönnum
er mikið, vaktir oft óreglulegar og
verkefni sem þeir fást við sem krefj-
ast mikillar einbeitingar, snerpu og
úthalds og því er sérstaklega mikil-
vægt að þeir sem sinna þessu starfi
séu vel úthvíldir. Bæði þessi fyr-
irtæki hlutu í dag gæðastimpil frá
fyrirtækinu Betri svefn um að vera
svefnvottuð fyrirtæki. Þessi vottun
staðfestir að stjórnendur hafa lagt
sig fram um að fræða starfsfólk um
svefn og bjóða uppá aðstoð fyrir þá
sem glíma við svefnvanda. /MHH