Bændablaðið - 07.10.2021, Page 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. október 202142
Hönnun fjósa hefur tekið miklum
breytingum á undanförnum ára-
tugum en frekar litlar breytingar
hafa þó orðið á því hvernig fjósin
eru byggð. Langoftast hafa fjós
bæði hér á landi og víða í norður-
hluta Evrópu verið annaðhvort
staðsteypt eða einhvers konar
form af yleiningahúsum og þá
oftast annaðhvort límtrés- eða
stálgrindahús.
Fyrir nokkrum árum fór að bera
á meiri fjölbreytileika við byggingu
fjósa erlendis og þannig eru til í dag
fjós sem eru í raun í grunninn byggð
sem gróðurhús, þ.e. með glerþaki,
svo dæmi sé tekið, en slík hönnun
bygginga er nokkuð ódýrari en ger-
ist og gengur um fjósbyggingar.
Nýverið var svo byggt áhugavert
fjós í Svíþjóð, en það er klætt með
dúk og var sú lausn valin þar sem
hún var mun hagkvæmari en aðrar
lausnir. En það er meira en byggingin
sem slík sem er áhugaverð við þetta
fjós, því í fjósinu er notað trjákurl í
allar stíur en ekki hálmur eins og
oft er gert.
Kanadísk hönnun
Þessi tegund bygginga er hönnuð í
Kanada og er í dag notuð í raun víða
sem gripahús fyrir bæði nautgripi
og annað búfé og byggingarnar eru
afar bjartar enda kemst dagsbirta í
gegnum dúkinn sem gefur einstakt
umhverfi fyrir búféð.
Þessar byggingar, sem eru auð-
vitað óeinangraðar, eru oft einnig
án allra veggeininga þ.e. ekki með
fasta útveggi heldur bara dúk alveg
niður að jörð. Dúkurinn sem er á hlið
fjósanna er svo upprúllanlegur og
þegar og ef heitt er í veðri má opna
hliðarnar alveg sem gerir nærum-
hverfi nautgripanna enn betra.
Steypa álagsstaði
Þó svo að þessi fjósgerð sé nán-
ast laus við alla steypu þá sleppa
bændur ekki alveg svo vel því bæði
þarf að steypa sökkuleiningar sem
stoðirnar festast við sem og þar sem
álagssvæði gripanna eru eins og t.d.
fóðurgang og mögulega gangsvæði
í og við mjaltaþjóna svo dæmi sé
tekið auk þess sem setja þarf steypta
palla undir drykkjarsvæði svo ekki
sé hætta á því að vatn sullist niður
í undirlagið.
Trjákurl
Trjákurl er aukaafurð sem fellur
til við skógrækt og framleiðsla á
því mun einungis vaxa á Íslandi á
komandi árum. Þetta gæti því verið
einkar áhugavert fyrir búfjáreigendur
að kynna sér frekar. Þegar búnar eru
til stíur fyrir trjákurlsmottur eru þær
í raun gerðar eins og hálmstíur, þ.e.
djúpar stíur sem kurlið er sett í og
svo unnið með og bætt við jafnt og
þétt þar til stían er tæmd og byrjað
upp á nýtt.
Í Svíþjóð má byggja fjós án þess
að vera með botn í þeim ef jarðveg-
urinn undir er leirskotinn og sparast
því mikið magn af steypu. Rétt er að
Á FAGLEGUM NÓTUM
Nú er nýafstaðin verkefna-
vika á Garðyrkjuskólanum á
Reykjum.
Nemendur fá þá verklega
kennslu í ýmsum fögum og fara
í heimsóknir í gróðrarstöðvar
og önnur fyrirtæki sem tengjast
garðyrkjunáminu, vinna verklegar
æfingar og spreyta sig á ýmsum
verkefnum. Í öllum hornum eru
nemendahópar við störf, á nám-
skeiðum eða í annarri fræðslu.
Hér eru nokkrar svipmyndir
sem sýna brot af því sem nemend-
ur tóku sér fyrir hendur.
GARÐYRKJUSKÓLINN Á REYKJUM
Líf og fjör í Lotuviku á Reykjum
Nemar á blómaskreytingabrautinni útbúa fallegar skreytingar sem
prýða Garðyrkjuskólann.
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Tjaldfjós getur í raun litið út líkt og hefðbundið fjós eins og sjá má.
Tjaldfjós með trjákurli
Í tjaldfjósum þarf að steypa álagsfleti.
Vegna þess hve dúkurinn er léttur, er þakbyggingin einnig léttbyggð.
Trjákurl þarf að meðhöndla rétt svo það henti sem undirlag fyrir nautgripi.
Hálmur úr iðnaðarhampi sem
ræktaður var á Reykjum sl. sum-
ar, ætlaður til jarðgerðarverkefna.
Garð- og skógarplöntubrautin við plöntugreiningar og fræsöfnun á
Reykjum.
Fuglaskoðunarferðir eru fastur
liður í kennslu í dýrafræði.
Athugun á mismunandi jarðvegs-
blöndum með lífrænum og tilbún-
um áburði og uppeldi elriplantna.
Skógtækninemar fræðast um öryggisatriði í meðferð véla til grisjunar
og skógarhöggs.
Molta úr mötuneytinu á Reykjum
ásamt stoðefni er notuð í ræktun-
artilraunir í gróðurhúsunum.
Býflugnarækt er kennd á Reykjum.
Hér er verið að setja saman ramma
í býflugnabú.
Skrúðgarðyrkjunemar við æfingar
í verknámshúsi.