Bændablaðið - 07.10.2021, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. október 202146
Fyrir nokkru síðan keyrði ég á
eftir Toyota Proace leigubíl sem
mér virtist vera hagnýtur og pláss
mikill bíll og fór í Toyota til að fá
að prófa og skoða bílinn nánar.
Eftir rúman 300 km akstur var
ég nokkuð sáttur við bílinn og tel
hann vænlegan kost fyrir þá sem
þurfa pláss fyrir marga farþega
og mikinn farangur.
Þegar ég settist inn í bílinn fann
ég strax að ökumannssætið var að
fara vel með mig og keyrði sem leið
lá upp í Þjórsárdal í þeim tilgangi
að finna hvernig manni líður við að
sitja lengi í bílnum. Eftir því sem
kílómetrarnir töldu leið mér betur
og betur og greinilegt að þessi bíll
er góður sem vinnubíll og í lengri
ferðir, hávaðamælingin kom vel út.
1,5 lítra dísilvélin nánast hljóðlaus
og bíllinn vel einangraður gagnvart
umhverfishljóðum. Á 90 km hraða
mældist hávaðinn inni í bíl vera
68,8 db. Fín mæling, en þess ber að
geta að bíllinn var á sumardekkj-
um, en ekki á heilsársdekkjum eins
og margir bílar sem umboðin hafa
reynsluakstursbíla á.
Uppgefin eyðsla á hundraðið er
á bilinu 5,6 til 6,2 á hundraðið við
bestu aðstæður, en að loknum 333
km akstri sýndi aksturstölvan að
ég hafði verið að eyða 6,6 lítrum á
hundraðið.
Á malarvegi heyrðist lítið steina-
hljóð undir bílnum, fjöðrunin tók vel
smærri holur og má keyra hann ansi
ákveðið í beygjur á lausri möl án
þess að hann missi grip á annaðhvort
fram- eða afturhjól, en þegar hann
missti grip voru það öll hjólin sem
misstu gripið á sama tíma þannig að
þyngdin virðist vera nokkuð jöfn á
öll hjól.
Vél, skipting og verð
Toyota Proace er framleiddur í sam-
starfi m.a. með Citroën og Peugeot
og eru bílarnir svipaðir í framleiðslu
og útliti. Hægt er að fá nokkrar
mismunandi stærðir og útfærslur
af Toyota Proace, en bíllinn sem
var prófaður er sjö manna bíll og
nefnist „family +“ (lengri gerðin),
er með 1,5 l dísilvél sem skilar 130
hestöflum (mætti alveg vera kraft-
meiri þegar kemur að brekkum og
íslenskum mótvindi).
Bíllinn er sjálfskiptur með 8
þrepa skiptingu og kostar 6.970.000.
Mikið er lagt upp úr öryggi og
er bíllinn m.a. með árekstrarvið-
vörunarkerfi, umferðarskiltaaðstoð,
akreinalesara, sjálfvirkan hraðastilli
og blindsvæðisskynjara.
Bíllinn kemur með fullbúið
varadekk sem er undir bílnum að
aftan. Smá ábending:
Af fenginni reynslu þá vill bolt-
inn sem festir varadekkið ryðga
fastur og hef ég snúið svona bolta í
sundur við að ná varadekkinu undan,
því er gott að setja vel af koppafeiti
á boltann og losa reglulega.
Hugsaður sem fjölnota bíll
Til að bíllinn nýtist á sem hagkvæm-
astan hátt er hugsað fyrir mörgu,
geymsluhólf fyrir smærri hluti eru
mörg bæði frammi í bíl og aftur í.
Hægt er að leggja niður sætin
þannig að möguleiki er að flytja
hluti sem eru allt að 3,5 metra langir.
Einnig er auðvelt að taka sætin úr
bílnum og val um að miðjuröð sæt-
anna séu 3 stök sæti (hægt að leggja
þau öll niður).
Rennihurðirnar á hliðunum virð-
ast við fyrstu sýn vera mjóar og litl-
ar, en eru í raun þægilegar að ganga
um og þægilegt að opna.
Fótarými er gott í miðjusætunum,
en síðra í öftustu tveim (mæli ekki
með þeim fyrir mjög stóra einstak-
linga í lengri ferðir).
Lokaorð
Álitlegur bíll til brúks, þægilegur
í akstri og rúmgóður, sparneytinn,
vel einangraður gagnvart umhverfis-
hljóðum utan frá. Þrátt fyrir ágætis
fjöðrun á malarvegum þá mundi ég
velja 16 tommu felgurnar undir bíl-
inn til að ná enn meiri fjöðrun út úr
dekkjunum á vondum vegum. Fær
góðan plús fyrir að vera með fullbúið
16 tommu varadekk.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Toyota Proace City Verso. Myndir / HLJ
Farangursrýmið er mikið og öftustu tvö sætin er auðvelt að taka úr bílnum
vilji maður enn meira rými.
Olnbogarými er gott og plássið er fínt í miðjusætunum.
Þykk járnplata er undir vélinni, en ekki plast sem er bara dæmt til að brotna
í íslenskri vetrarfærð.
Fyrst fannst mér þetta auka mæla-
borð vera óþarft þegar ég sá það,
en með öllum þessum upplýsingum
sem þar er hægt að fá, þykir mér
það bara gott.
Hljóðlátur á 90, ekki nema 68,8 db.
Stend oft sjálfan mig að því að vera
of nálægt næsta bíl, en þá skammaði
Proace mig.
Fullbúið 16 tommu varadekk er undir bílnum að aftan.
Þyngd 1.430-1.690 kg
Hæð 1.880 mm
Breidd 1.884 mm
Lengd 4.753mm
Helstu mál og upplýsingar