Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Side 6
til athugunar við endurskoðun liúsnæðis-
málalöggjafarinnar. Arkitelitafélagi ís-
lands var send áskorun þess efnis, að tek-
ið yrði tillit til fatlaðra við skipulag og
teikningu opinberra bygginga. Mikið var
unnið að undirbúningi að byggingu Sjálfs-
bjargar í Reykjavík. Vísast til sérstakrar
greinar í blaðinu um bygginguna.
Á alþjóðadegi fatlaðra flutti Ólöf Rík-
arðsdóttir fróðlegt erindi í Ríkisútvarpið.
Fjallaði það um endurhæfingu, umferðar-
hindranir fatlaðra o. fl. Ennfremur héldu
sum félögin upp á daginn með fróðleiks-
og skemmtisamkomum.
Tekjur landssambandsins eru, eins og
áður, aðallega sala blaðs, merkis og happ-
drættismiða, en einnig gjafir og áheit.
Fjáröflun krefst mjög mikillar vinnu, sem
skrifstofan innir af hendi. Hrein eign
landssambandsins í árslok 1965 var 1,8
milljón krónur.
fyrir sína vinnustofu og aðra starfsemi.
Öll félögin sjá um fjáröflun fyrir lands-
sambandið.
Helztu samþykktir þingsins eru þessar:
Frá félagsmálanefnd:
a) Að landssambandið styrki fólk til
náms í sjúkraþjálfun eða hliðstæðu
námi, enda njóti það starfskrafta
þess að námi loknu.
b) Að ýmiss konar hjálpartæki mikið
fatlaðs fólks önnur er gerfilimir,
hjólastólar og armstafir, séu viður-
kennd styrkhæf. (Því má bæta hér
við, að nú eru teknir tollar allt upp
í 90% af slíkum tækjum, og enginn
styrkur veittur út á þau).
c) Að samtök öryrkja eigi kost á að til-
nefna fulltrúa í allar opinberar
nefndir, sem fjalla um málefni ör-
yrkja.
Frá þinginu á Akureyri.
I flestum félögunum var mjög góð starf-
semi, svo sem föndurkvöld, spilakvöld,
skemmtifundir, almennir fundir, ferðalög
og fleira.
Vinnustofur eru reknar á vegum félag-
anna í Reykjavík, á Siglufirði, á Sauðár-
króki og á Isafirði í sameiningu við
vörn. Á Akureyri er í undirbúningi vinnu-
stofa í hinu vandaða húsi félagsins, Bjargi,
og félagið á Húsavík hefur eignast hús
Frá atvinnumálanefnd:
Nefndin beinir því til sambandsstjórnar,
að athugaðir verði möguleikar á að vextir
af lánum úr Erfðafjársjóði verði lækkaðir
frá því sem nú er, og hlutfalli styrkja og
lána verði breytt þannig að styrkir verði
að minnsta kosti helmingur af því fé, sem
fæst úr sjóðnum samkvæmt lögum, til
vinnustofanna.
6 sjÁlfsbjörg