Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Page 7
Nokkrir þingfulltrúar.
Frá farartækjanefnd:
Þingið leggur áherzlu á eftirfarandi
atriði:
a) Að á næsta ári verði úthlutað til ör-
yrkja 350 bifreiðum 4—5 manna, þar
af 100 endurveitingar.
b) Að öryrkjar hafi frjálst val bifreiða-
tegunda.
Þingið er einhuga um, að heimilað verði
að merkja bifreiðir með lausum merkjum,
og að merki þessi verði eingöngu veitt því
fólki, sem ófært er til gangs eða getur
aðeins gengið út í farartæki við húshlið.
Frá tryggingarmálanefnd:
1. Að haldið verði áfram baráttu fyrir
löggjöf um endurhæfingu öryrkja á
grundvelli þess lagafrumvarps, sem
samþykkt var á þingi Sjáifsbjargar
1964.
2. Að beina því til nefndar þeirrar, sem
ráðgert er að skipuð verði af félags-
málaráðuneytinu til þess að gera til-
lögur um endurbætur og lagfæringar
á tryggingarmálum öryrkja, að hún
beiti sér fyrir eftirfarandi:
a) Að öryrkjar innan 16 ára aldurs
öðlist bótarétt.
b) Að bætur fyrir hvers konar ör-
orku verði greiddar eftir ákvæð-
um 36. gr. laga nr. 40 1963, að
svo miklu leyti sem við geti átt.
c) Að endurskoðuð verði 36. gr.
sömu laga um gjaldskyldu ör-
yrkja.
d) Að sett verði ákvæði sem tryggi
sjúklingum sem dveljast í heima-
húsum sama rétt til greiðslu
kostnaðar og hinum sem liggja á
sjúkrahúsum.
Sunnudaginn 5. júní var haldinn út-
breiðslu- og kynningarfundur í „Bjargi“,
vinnu- og félagsheimili Sjálfsbjargar.
Formaður Akureyrarfélagsins, frú Heið-
rún Steingrímsdóttir, setti fundinn og
stjórnaði honum.
Sigursveinn D. Kristinsson flutti fróð-
legt erindi um málefni samtakanna, og
öryrkja almennt, og er það birt á öðrum
stað 1 blaðinu.
Einnig voru til sýnis á fundinum ýmiss
konar hjálpartæki fyrir mikið fatlað fólk,
svo sem fyrir einhentar húsmæður, fólk
með stíf liðamót og skertar hreyfingar af
ýmsum ástæðum. Er þetta í fyrsta sinn
sem slík hjálpartæki eru kynnt hérlendis,
og munu sýnishorn af þeim verða til á
skrifstofu landssambandsins og reynt að
útvega slík tæki þeim sem þurfa.
Ennfremur var skemmt með prýðilegum
söng og upplestri.
SJÁLFSBJÖRG 1