Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Page 8

Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Page 8
UM ALMANNATRYGGINGAR Lög þau sem í gildi eru um almanna- tryggingar voru sett á Alþingi árið 1963, en nú eru liðin 30 ár síðan lög voru fyrst sett um þetta efni. Þótt nokkuð vanti til þess að þau séu eins og bezt gjörist annars staðar (t. d. í Danmörku), þá hafa þau tekið miklum breytinginn til bóta og eru mörgum f járhagsleg stoð. Vegna óska sem blaðinu hafa borist verða hér á eftir birt þau ákvæði almannatryggingalaganna, sem mest varða fatlaða. 13. gr. — Rétt til örorkulífeyris eiga þeir menn á aldrinum 16—67 ára, sem eru öryrkjar til langframa á svo háu stigi, að þeir eru ekki færir um að vinna sér inn 1/4 þess, er andlega og líkamlega heilir menn eru vanir að vinna sér inn í því sama héraði við störf, sem hæfa líkamskröftum þeirra og verkkunnáttu og sanngjarnt er að ætlast til af þeim, með hliðsjón af upp- eldi og undanfarandi starfa. Heimilt er Tryggingastofnuninni að verja allt að 10% þeirrar heildarfjárhæð- ar, sem árlega er greidd í örorkulífeyri samkvæmt 1. málsgr. þessarar greinar, til greiðslu örorkustyrkja handa þeim, sem misst hafa 50—75% starfsorku sinnar. Tryggingayfirlæknir metur örorku þeirra, sem sækja mn örorkubætur . . . 14. gr. — Greiða má maka elli- og ör- orkulífeyrisþega makabætur allt að 80% einstaklingslífeyris, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. 15. gr. — Fjölskyldubætur eru greiddar með öllum börnum yngri en 16 ára . . . 16. gr. — Barnalífeyrir er greiddur með Á sunnudagskvöld sátu þingfulltrúar kvöldverðarboð bæjarstjórnar Akureyrar í Skíðahótelinu, Hlíðarfjalli. Bæjarstjór- inn, Magnús E. Guðjónsson, bauð fulltrú- ana velkomna með ávarpi. Theodór A. Jónson þakkaði fyrir hönd fulltrúanna. Þingstaðurinn liggur utan við ys og þys þéttbýlisins, rólegur staður með útsýn til f jalla og f jarðar. — Þá gerði það dvölina ánægjulegri og þingheim samstilltari, að aliir dvöldu á þingstaðnum allan tímann. Öll þjónusta, tillitssemi og viðurgern- ingur af hendi hótelsins var með ágætum, svo á betra verður ekki kosið. Á mánudag voru rædd nefndarálit, sam- þykktar ályktanir og kosin stjórn fyrir næsta ár. Sambandsstjórn: Formaður: Theodór A. Jónsson. Varaform.: Zophanias Benediktsson. Ritari: Ölöf Ríkarðsdóttir. Gjaldkeri: Eiríkur Einarsson. Meðstjórnendur: Jón Þór Buch, Húsavík, Ingibjörg Magnúsdóttir, Isafirði, Heiðrún Stein- grímsdóttir, Akureyri, Eggert Theo- dórsson, Siglufirði, Sigurður Guð- mundsson, Reykjavík. Til vara: Sigursveinn D. Kristinsson, Reykja- vík, Pálína Snorradóttir, Hveragerði, Egill Helgason, Sauðárkróki, Gestur Auðunsson, Keflavík, Adolf Ingimars- son, Akureyri. 8 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.