Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Síða 12
Ólöf Ríkarðsdótfir
ENDURHÆFING OG UMFERÐARHINDRANIR
Útvarpserindi flutt 17. marz 1966
Samtök fatlaðra á Islandi eiga sér ekki
langa sögu. Þar sem bræðraþjóðir okkar
á Norðurlöndum eiga allar áratugastarf
að baki á þessu sviði, eru aðeins tæp átta
ár síðan fyrsta félag Sjálfsbjargar var
stofnað, en það var á Siglufirði í júní
árið 1958.
Á fyrsta árinu urðu félögin fimm og
mynduðu þau með sér landssamband árið
1959. Nú eru deildirnar innan þess orðnar
tíu og félagatala um átta hundruð. Styrkt-
armeðlimir eru sex hundruð.
Þörfin fyrir samtök fatlaðra var orðin
mjög brýn. Þótt ýmislegt hafi auðvitað
verið unnið að þessum málum af hálfu
hins opinbera og annarra, þá veit maður
bezt sjálfur hvar skórinn kreppir og það
er verkefni landssambands Sjálfsbjargar
að hafa forystu á baráttumálum fatlaðs
fólks og leita samvinnu við þá aðila, sem
þar eiga hlut að máli. Þau eru mörg við-
fangsefnin, sem bíða úrbóta. Má þar nefna
atvinnumál, húsnæðismál, tryggingamál,
bætt umferðaskilyrði og bifreiðamál, en á
hinu síðastnefnda hefur þegar fengizt
noltkur leiðrétting.
Verkefni hinna einstöku sambands-
deilda Sjálfsbjargar er í höfuðdráttum tví-
skipt. I fyrsta lagi er sú hlið, er lýtur að
félagsmálum, í öðru lagi stofnun og rekst-
ur vinnustofa. Mikil áherzla hefur verið
lögð á félagslegu hliðina og hefur sú starf-
semi þegar borið allgóðan árangur. Ennþá
vantar þó mikið á að náðst hafi til alls
fatlaðs fólks í landinu, enda félög ekki
fyrir hendi á stórum svæðum.
Fjórar vinnustofur eru nú reknar á veg-
um félaganna, á Isafirði, Siglufirði, Sauð-
árkróki og í Reykjavík og hið fimmta
hefur nú einnig stofnun vinnustofu í und-
irbúningi. Á Isafirði eru framleiddar
prjónavörur, sloppar og fleira, á Siglu-
firði vinnuvettlingar, í Reykjavík karl-
manna- og barnanærfatnaður og á Sauð-
árkróki er unnið að frágangi rafmagns-
dósa.
Sjálfsbjörg á ísafirði, sem kom á fót
fyrstu vinnustofu samtakanna, hefur einn-
ig haft samvinnu við félag berklasjúkl-
12 SJÁLFSBJÖRG