Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Qupperneq 14
minnast á endurhæfingarlöggjöf Dana,
sem landssamband fatlaðra í Danmörku
hefur átt mikinn þátt í og telur merkan
áfanga.
Endurhæfingarlögin gengu í gildi árið
1960. Þau eru mjög víðtæk og fela í sér
endurbætur á eldri lögum og margar nýj-
ungar. Það voru fyrst og fremst þrjú
atriði, sem lögð voru til grundvallar við
setningu þeirra. í fyrsta lagi, að allir sem
þarfnast endurhæfingar og náms, hafi til
þess jafnan rétt. f öðru lagi var hin knýj-
andi nauðsyn að mynda f járhagsgrundvöll
til stofnunar og reksturs stöðva, til endur-
hæfingar ásamt kennslu í bóklegum og
verklegum greinum. í þriðja lagi var
stofnun og rekstur verndaðra vinnustofa,
þar sem öryrkjar geta fengið atvinnu við
sitt hæfi, þótt þeir eigi erfitt um starf á
almennum vinnumarkaði. Með orðinu
verndaðar vinnustofur er átt við stofn-
anir, þar sem ríki og bær taka þátt í
reksturskostnaði. Víða er sá háttur hafður
á, að ríkið greiðir einn þriðja hluta af
reksturskostnaði, viðkomandi bæjarfélag
1/3 hluta og framleiðslan sjálf 1/3 hluta.
Aðstoð við endurhæfingu hvers ein-
staklings felur í sér sjúkrameðferð, hjálp-
artæki, æfingu og menntun ásamt fram-
færslustyrk, meðan á endurhæfingu stend-
ur. Hjálpartæki, það er að segja, umbúðir,
gervilimi, hjólastóla, ritvélar og segul-
bandstæki fyrir blinda, vélknúin farar-
tæki og svo framvegis, má veita án tillits
til, hvort það er nauðsynlegt vegna vinnu-
getunnar, það er aðeins skilyrði, að tæki
þessi bæti eða dragi úr afleiðingum fötl-
unarinnar.
Eitt veigamesta atriði löggjafarinnar
eru atvinnumálin. Það er starf hinna tólf
endurhæfingarstöðva að sjá um, að hver
einstaklingur nái eins miklum framförum
og kostur er á. Fylgst er með sjúklingn-
um, meðan á læknismeðferð og kennslu
stendur og einnig um tíma, eftir að hann
er kominn til starfa.
í lögunum er að finna ýmsar reglur og
ráðstafanir, sem eiga að tryggja varan-
lega atvinnu að endurhæfingu lokinni.
Þau veita til dæmis aðgang að verkfær-
um, vinnuvélum og öðru slíku, sem nauð-
synlegt kann að vera atvinnunnar vegna.
Ennfremur er hægt að fá aðstoð við stofn-
un sjálfstæðs atvinnureksturs, þegar
ástæður þykja fyrir hendi. Þessi laga-
grein nær einnig yfir heimilistæki fyrir
fatlaðar húsmæður.
Eins og áður er sagt hefur sjúklingur-
inn framfærslustyrk, meðan á endurhæf-
ingu stendur. Áherzla er lögð á að við-
komandi geti staðið straum af þeim út-
gjöldum, er leiða af endurhæfingunni og
að honum og fjölskyldu hans sé tryggður
sanngjarn framfærslulífeyrir. Þar er einn-
ig átt við afborganir af skuldum og yfir-
leitt aðstoð við að halda f járhag f jölskyld-
unnar á réttum kili. Hið síðastnefnda er
álitið mjög mikilvægt atriði, ef afkoma
og f jármál f jölskyldunnar eru tvísýn með-
an á endurhæfingu stendur, getur það
orðið til þess að viðkomandi gefist upp,
eða að hún verði árangurslaus.
Hér hefur verið drepið á nokkur helztu
atriði hinnar nýju löggjafar. Reynslutími
hennar er stuttur og margt hefur komið
í ljós, sem betur mætti fara, en yfirborg-
arstjóri Kaupmannahafnar, Urban Han-
sen, sagði í fyrirlestri, sem hann hélt hér
í fyrra um þessi mál, að menn væru nú
fyrst að gjöra sér ljóst hvílík feikna þörf
.hefði verið fyrir slíka lagasetningu.
Sjálfsbjörg hefur látið þýða dönsku
endurhæfingarlögin og hún hefur jafn-
framt látið semja frumdrög að lögum um
endurhæfingu á Islandi og komið þeim
á framfæri við opinbera aðila.
Hinn 1. apríl næstkomandi verður enn
stigið framfaraspor hjá Dönum, en þá
FRAMHALD á bls. 28.
14 SJÁLFSBJÖRG