Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Side 15
Fr. Knudsen
SAMBYGGING FATLAÐRA í DANMÖRKU
Skrifað fyrir íslenzka tímaritið „Sjálfsbjörg"
Húsnæðisskorturinn hefur haft meiri
áhrif á líf hins almenna borgara en flest
önnur vandamál síðustu ára, jafnt í
Danmörku sem í öðrum Evrópulöndum.
Þó að við höfum verið svo gæfusöm að
losna algjörlega við hina hræðilegu eyði-
leggingu styrjaldarinnar, hefur okkur
samt ekki tekizt að leysa húsnæðisvanda-
málið á þann veg, að til séu hæfar íbúðir
handa öllum, sem þörf hafa fyrir þær og
á verði, sem hver og einn getur greitt.
Hinn verst setti í þjóðfélaginu, sem er
án efa öryrkinn, hefur þrátt fyrir þær
framfarir, sem orðið hafa í okkar nútíma-
velferðarríki, orðið harðast úti vegna hús-
næðisskortsins, eins og á flestum öðrum
sviðum. Það getur í rauninni haft úrslita-
þýðingu fyrir hinn fatlaða mann, hvort
hann getur yfirleitt unnið fyrir sér, hvort
sem hann heldur alveg óskertum starfs-
kröftum sínum eða að nokkru, að hann
búi í hentugri íbúð, þar sem hann getur
athafnað sig sjálfur, án utanaðkomandi
hjálpar. Þetta á að sjálfsögðu ekki sízt
við um hina fötluðu húsmóður.
Sem viðurkenning á þessari þörf sér-
íbúða handa mikið fötluðu fólki skipaði
danska ríkisstjórnin nefnd manna árið
1952, er skilaði áliti 1954, um byggingu
íbúða handa fötluðum. I álitinu segir
m. a. að hinir fötluðu eigi að geta greitt
húsaleiguviðbót sjálfir, að undanteknum
örorkulífeyrisþegunum, sem vegna sinnar
miklu fötlunar, verði að búa í dýrari íbúð-
um með lyftum og öðrum hjálpartækjum.
Þetta hefur reynzt framkvæmanlegt, þó
með mismunandi húsaleiguviðbót í sam-
ræmi við tekjurnar.
Til þess að tryggja sér, að álit nefndar-
innar yrði framkvæmt, skipuðu félög fatl-
aðra nefnd (Húsbygginganefnd fatlaðra)
og samtímis gekkst Landssamband fatl-
aðra (Landsforeningen af Vanföre) fyrir
stofnun byggingarfélags fatlaðra, sem
skyldi taka að sér að láta reisa og útbúa
séríbúðir handa fötluðu fólki.
SAMBYGGING 1 KAUP-
MANNAHÖFN
Fyrsta hlutverk byggingarfélagsins var
að byggja sambyggingu í Kaupmanna-
höfn (Kollektivhuset í Kaupmannahöfn),
þá fyrstu sinnar tegundar í veröldinni, svo
að reynslan varð að skera úr, hversu vel
tækist til. I þessu 16.500 fermetra, 13
hæða háhýsi eru 170 íbúðir, sem allar eru
sérstaklega útbúnar fyrir mikið fatlað
fólk. Til þess að koma í veg fyrir, að húsið
líktist um of stofnun eða hæli fatlaðra,
var aðeins 1/3 af því notaður undir íbúðir
þeirra. Mikið tillit var tekið til hins fatl-
aða einstaklings, því að 60 íbúðir eru 1
herbergi með forstofu, baði og eldhúskrók,
SJÁLFSBJÖRG 15