Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Side 22
Öll í sólskinsskapi.
molum, Stanzað var við Skógaskóla og
skoðað hið gagnmerka byggðasafn þar.
Það ber af öðrum þess háttar söfnum,
enda er Þórður Tómasson, safnvörður,
réttur maður á réttum stað. Áfram var
haldið, og nú ekið inn í Þórsmörk. Krossá
var góð yfirferðar, og þegar við komum
upp úr henni, kom ráðsmaður staðarins
og vísaði okkur til gistingar 1 Slyppugili.
Það er hið fegursta og bezta tjaldstæði
á sléttum bala milli lækjarins og skógar-
brekknanna. — Skúraveður hafði verið
um daginn, en gott á milli, en þegar við
Palli vorum að bisa við að reisa stóra
tjaldið, gerði slíka úrhellisrigningu, að lík-
ast var sem allar flóðgáttir himinsins
hefðu opnazt og allt vatn veraldarinnar
væri að steypast yfir okkur, ekki minna
en Nóaflóðið sællar minningar. Við höfð-
um ekki við að skirpa út úr okkur. Leit
helzt út fyrir að við myndum drukna þarna
á balanum. En sem betur fór tók Krossá
við rennslinu og innan skamms stytti upp.
Eftir það komust tjöldin upp, og þó allir
blotnuðu nokkuð, hækkaði hagurinn þegar
prímusarnir og gastækin tóku að suða og
hita frá sér. Að lokum leið öllum vel og
var sofið ágætlega um nóttina við ljúfa
drauma.
Að morgni næsta dags var aftur komið
bezta veður. Áttu nú allir annríkt við að
snyrta sig og búast til heimferðar, því að
nú var síðasti dagur ferðarinnar runninn
upp. — Fegurð Þórsmerkur eða annarra
staða, sem leið okkar lá um, ætla ég ekki
að lýsa, hvorki gróðri, formum né litum,
þess verður betur notið með því að sjá
það en lesa um það. Við sáum í ferðinni
ótalmargt sem augað gladdi, og munum
lengi minnast ferðarinnar með ánægju. —
Miðdegis lögðum við af stað heimleiðis.
Gerðist ekkert frásagnarvert, allt gekk
eftir áætlun.
Ég vil svo að endingu geta þess, að
þessir félagar sem fóru í þessa fyrstu
óbyggðaferð, voru til fyrirmyndar að
glaðværð og samhjálp alla þessa fimm
daga.
Happdrætti
Sjálfsbjargar
Vinningur í happdrætti SJÁLFSBJARGAR 1964, sem var bifreið af gerðinni
Buick Special, kom á miða nr. 28760, og var afhentur í marz s. I.
Nú stendur yfir happdrætti og er vinningurinn bifreið af gerðinni Plymouth,
Belverede 1, að verðmæti kr. 345 þús., og er SKATTFRJÁLS.
22 SJÁLFSBJÖRG