Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Page 28

Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Page 28
ENDURHÆFING OG UMFERÐARHINDRANIR FRAMHALD af bls. 1\\. ganga í gildi lög um aðskilnað elli- og örorkulífeyris, og jafnframt er um miklar endurbætur að ræða. Eitt þeirra höfuðmála, er Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra hefur á stefnuskrá sinni, er að koma upp byggingu í Revkja- vík fyrir samtökin. Lóð er þegar fengin á ágætum stað og teikningu byggingar- innar miðar vel áfram. Standa vonir til, að unnt verði að hefjast handa um fram- kvæmdir á næstu mánuðum. Miðstöðin er í höfuðdráttum fyrirhuguð þannig. Vist- heimili fyrir fatlaða, verndaðar vinnu- stofur, húsnæði fyrir utanbæjarfólk, sem stundar nám, eða er undir iæknishendi, skó- og gervilimaverkstæði, húsakynni fyrir starfsemi landssambandsins og Reykjavíkurfélagsins og endurhæfingar- stöð. Ennfremur er ætlunin að byggja eina íbúðarálmu og verður fyrirkomulag hennar sniðið eftir sambýlishúsum danska lands- sambandsins, en þar er öll innrétting mið- uð við þarfir fatlaðs fólks og þá fyrst og fremst þeirra, er nota hjólastóla. Fyrsti áfangi verður vistheimilið. Ekk- ert er eins aðkallandi og það. Hér á landi er talsverður hópur fatlaðra, sem ekki á i annað hús að venda en að dvelja á elli- heimilum. Þótt enginn efist um, að þeim sé þar veitt öll sú aðhlynning, sem tök eru á, er þetta ástand með öllu óviðun- andi. Getur hver og einn reynt að setja sig í spor fatlaðs æskumanns, sem verður að una ævinni við slík skilyrði. Væntir landssambandið skilnings allra á því mikla nauðsynjamáli að stofna reglulegt heimili fyrir einstæða og ósjálfbjarga öryrkja. Það er tilefni þessa erindis, að næst- komandi sunnudag, 20. marz, verður Al- þjóðadagur fatlaðra haldinn hátíðlegur víða um heim í sjöunda sinn, en það er FIMITIC, Alþjóðasamband fatlaðra, sem átt hefur frumkvæðið að því að kynna þannig með ýmsu móti málefni fatlaðs fólks. Sjálfsbjörg gjörðist aðili að þessum samtökum fyrir hálfu öðru ári og minntist dagsins í fyrsta sinn í fyrra. Alþjóðasamband fatlaðra er í sinni nú- verandi mynd tólf ára gamalt. Það hefur miklu hlutverki að gegna, því að innan vébanda þess eru félög, sem telja hundruð þúsunda stríðsöryrkja frá báðum heims- styrjöldum, auk fólks, sem hefur fátlast af öðrum orsökum og munu þessir hópar samanlagt skipta milljónum. Að þessu sinni verður alþjóðadagurinn helgaður málefninu umferðahindranir fatlaðra, sem er mjög tímabært umhugs- unarefni. Það er víst óhætt að slá því föstu, að allt okkar samfélag er skipu- lagt og byggt fyrir ófatlað fólk. Það hef- ur algjörlega gleymzt, eða verið vanrækt að taka tillit til þess, að það eru fleiri, sem þurfa að komast leiðar sinnar, sem sé þeir, sem að einhverju leyti eiga óhægt um gang. Alls staðar eru tröppur og stigar, víða ekki einu sinni handrið. Tökum til dæmis sjálft Þjóðleikhús fslands, háskólann og þjóðminjasafnið. Þangað er mörgu fötluðu fólki algjörlega fyrirmunað að komast hjálparlaust. Sá hópur fólks, sem taka þarf tillit til, er í rauninni miklu stærri en virðist í fljótu bragði. Vil ég fyrst telja þá, sem fatlast hafa af völdum sjúkdóma, þá kem- ur sá hópur, sem eykzt með hverju ári, en það eru þeir sem fatlast vegna slysa, en þau virðast óhjákvæmilega ætla að fylgja okkar vélaöld, ekki má heldur gleyma þeim, sem þjást af hjartasjúkdóm- um, né heldur gömlu fólki og mæðrum með barnavagna. Af þessu sést, að það er 28 SlÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.