Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Síða 32
M. VAYRYNEN
BANDALAG FATLÁÐRA í FINNLANDI
Samtök fatlaðra í Finnlandi voru stofn-
uð árið 1938. Um það leyti var ekki til
nein sérstök löggjöf fyrir öryrkja í land-
inu. Örorkubætur voru aðeins einn liður í
sameiginlegri tryggingalöggjöf. Bandalag
fatlaðra skildi þegar í upphafi nauðsyn
þess, að sérstök löggjöf yrði sett, þar sem
endurhæfing og atvinnumál fatlaðra eru
mjög frábrugðin grundvelli almennra
trygginga.
Þegar finnska þjóðin lenti í síðari
heimsstyrjöldinni árið 1939, var endur-
hæfing stríðsöryrkja mjög aðkallandi.
Þetta hafði í för með sér endurbætur á
tryggingalöggjöfinni almennt, en jafn-
hliða því var hafinn undirbúningur að sér-
stakri endurhæfingalöggjöf.
Bandalag fatlaðra átti mikinn þátt í að
undirbúa og semja endurhæfingalögin, en
þau gengu í gildi árið 1947. Samtímis hóf
það sjálft að vinna að endurhæfingu
stríðsöryrkja, með námskeiðum í ýmsum
starfsgreinum.
Þetta varð upphafið að hinu víðtæka
iðnskólakerfi, sem bandalagið hefur nú
komið á fót.
Frá sumarbúðum fatlaðra barna, sem eru undir skólaskyldualdri. Þarna dveljast árlega um 200 börn
þeim að kostnaðarlausu. Fyrirkomulag er þannig, að jafnvel hin mest fötluðu geta dvalist þarna.
Þar er m. a. kennt sund, tómstundaiðja o. fl.
32 SJÁLFSBJÖRG