Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Page 33
Frá járnsmíðadeild í iðnskólanum í Sulkava.
í kjölfar laganna hófst svo smátt og
smátt alhliða endurhæfing, starfsprófun,
starfshæfing og rekstur verndaðra vinnu-
stofa.
Eftir því sem tímar liðu varð starfsemi
bandalagsins æ yfirgripsmeiri. Auk þess
að gæta hagsmuna gagnvart samfélaginu,
hefur bandalagið á hendi alla upplýsinga-
þjónustu og endurhæfingu fatlaðra.
Samvinna bandalagsins og hins opin-
bera er mjög sérstök. Endurhæfing fatl-
aðra hefur frá upphafi verið aðalmarkmið
bandalagsins. I því skyni hefur það, sem
áður segir, komið á fót fjölda skóla, en
ríkið síðan styrkt þá fjárhagslega. Sama
máli gegnir um flestar aðrar hliðar á mál-
efnum öryrkja. Þar hefur frá upphafi
ríkt náin samvinna og skilningur milli
Bandalags fatlaðra og ríkisins.
Bandalag fatlaðra í Finnlandi, var sem
fyrr segir stofnað árið 1938. Innan þess
eru nú 80 deildir og félagatala um það bil
20 þúsund. Rúmlega þrjú hundruð manns
eru starfandi við hinar ýmsu stofnanir
sambandsins.
Bandalagið rekur fjóra heimavistar-
skóla, eina endurhæfingarstöð og eitt
vinnuheimili. Auk þess á bandalagið og
deildir innan þess 23 orlofsheimili. Heima-
vistarskólinn í Westend tekur 70 nemend-
ur, skólinn í Járvenpáá tekur 300 nem-
endur, skólinn í Sulkava 100 nemendur og
verzlunarskólinn í Kolmiranta 80 nem-
endur.
I heimavistariðnskólanum eru eftirfar-
andi iðngreinar kenndar: málmsmíði, og
járnsmíði margs konar, bifreiðaviðgerðir,
úrsmíði, fatasaumur, leðurvinna, rafvirkj-
un, trésmíði, vélaviðgerðir, gullsmíði og
leturgröftur.
Að öllu samanlögðu nær kennslan til 27
iðngreina. Námstími í flestum iðngreinum
sjalfsbjörg 33