Fréttablaðið - 03.02.2022, Side 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sveiflur
krónunnar
og sam-
felldur
veikleiki
hennar í
bland við
bækluð
hjálpar-
tækin, er
heimilisof-
beldið á
Íslandi sem
ekki má
tala um.
Bæjarfélag
á að skapa
góð upp-
eldisskil-
yrði, veita
nútímalega
þjónustu
og stuðla
að lýð-
heilsu
bæjarbúa.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Síðustu tvö ár höfum við þurft að breyta venjum
okkar og fórna lífsgæðum. Við höfum varið okkur;
einangrað, hlustað á fréttir um ógnir við heilsu og
efnahag.
Nú þarf að huga að virkni og velferð þeirra sem
faraldurinn hefur lagst þungt á. Unga fólkið hefur
ekki notið félagslífs á mótunarárum. Þau sem eldri eru
sakna tilbreytingar og samskipta við fólkið sitt. Ljóst
er að mikið hefur reynt á ákveðnar starfsstéttir og
þá sem fyrir bjuggu við áskoranir. Þegar Covid lýkur
þurfum við að vera tilbúin fyrir sókn því mannauður-
inn er grundvöllur velferðar.
Ungt fólk og þeir sem eldri eru
Við höfum öll fundið hversu mikilvægt er að upp-
lifa samveru með fjölskyldu og vinum, öryggi og
rútínu, tilbreytingu og tilhlökkun. Sköpum tækifæri
til að hittast, upplifa og njóta. Sveitarfélög og frjáls
félagasamtök geta lagt lið með því að bæta aðgengi
að viðburðum, heilsueflingu, menningu og samveru.
Í Garðabæ þar sem ég er bæjarfulltrúi og formaður
skólanefndar leggjum við mikla áherslu á að skóla-,
íþrótta-, tómstunda- og menningarstarf sé í fremstu
röð. Þar á sömuleiðis að vera gott að eldast.
Aðstæður og væntingar þessara aldurshópa hafa
breyst undanfarin ár. Við þurfum að taka ákvörðun
um að tryggja öflugt mannlíf; virkni og vellíðan eftir
heimsfaraldur. Útfærum næstu skref í samvinnu við
fólkið sjálft.
Vinnum með þeim sem nýta þjónustuna
Bæjarfélag á að skapa góð uppeldisskilyrði, veita
nútímalega þjónustu og stuðla að lýðheilsu bæjar-
búa. Ég vil sjá sveitarfélög styðja við félagslegt net
eldri borgara og hlúa sérstaklega að ungu fólki. Í
sumum tilfellum getur verið nægjanlegt að styðja
við góðar hugmyndir. Ýmislegt má gera án mikils
kostnaðar.
Förum úr (sótt)vörn í (gæða)sókn; tölum saman,
vinnum saman – bætum mannlífið og tilveruna eftir
krefjandi tíma. ■
Sókn eftir faraldurinn
Sigríður Hulda
Jónsdóttir
varaformaður
bæjarráðs og gefur
kost á sér í 1. sæti
í prófkjöri Sjálf-
stæðisfélaganna í
Garðabæ
Íslenskri efnahagspólitík er einkar lagið
að fjasa um afleiðingarnar, fremur en
að taka á orsökinni. Heita má að þessi
áráttuhegðun hér á landi hafi varað í
heilu og hálfu mannsaldrana, án þess
að nokkurn tíma hafi þótt ástæða til að
breyta um kúrs.
Af og til eru þó krónuflokkarnir á Alþingi
minntir á ángskotans orsökina – og ein-
mitt í þessari viku var síðast japlað á því af
hálfu stjórnarherranna, að kannski væri
húsnæðis liðurinn í vísitölunni helst til baga-
legur í heimilisbókhaldi almennings, og gott
ef ekki ósanngjarn.
Þessar stumrur heyrast nokkuð reglulega,
en eru aldrei settar í samhengi við þann
raunalega veruleika á Íslandi, að minnsti
gjaldmiðill í heimi þarf ekki einasta belti og
axlabönd um sig miðjan, heldur er nú svo
komið að það er ekki lengur tekið við honum
í öðrum löndum Evrópu, eins og Pólverjar
og aðrir Austur-Evrópumenn þekkja, sem
ferðast á milli vinnu sinnar á Íslandi og átt-
haga sinna í austri.
En þeir geta þó farið. Eftir sitja Íslending-
arnir í útnorðri og láta refsa sér sem nemur
nálega 200 milljörðum á ári, sem er kostn-
aður þeirra af notkun krónunnar, en það er
álíka upphæð og alþýða manna leggur sam-
neyslunni til í formi tekjuskatts á ári.
Sveiflur krónunnar og samfelldur veikleiki
hennar, í bland við bækluð hjálpartækin,
er heimilisof beldið á Íslandi sem ekki má
tala um. Þar hefur þöggunin verið miklu
vænlegri kostur en nokkru sinni að ræða til
þrautar um það sem getur komið almenningi
best í gjaldmiðilsmálum.
Það skal bara áfram barið á fólki. Og það
sem er kannski sárara en tárum taki, er að
þessi sama alþýða manna virðist vera orðin
vön þessu of beldi – og lætur sig að minnsta
kosti hafa það, ber sér fremur á brjóst en að
brotna.
Það er af þessum sökum sem þjóðin hefur
aldrei gert uppreisn gegn því að tengja hús-
næðisliðinn við verðlagsþróun, sem vel að
merkja þekkist hvergi annars staðar á sið-
menntuðu bóli, en hefur sennilega bara þótt
nokkuð þjóðlegt uppi á Fróni.
Og það er húsnæðisliðurinn í vísitölunni
sem knýr áfram verðbólguna að hálfu leyti,
enda þótt hækkun húsnæðisliðarins stafi ef
til vill af allt öðru en aðrir þættir sem ýta við
vísitölunni. Og þá þarf að hækka vexti, ein-
mitt svo alþýðan kosti meiru til. Og þetta er
kallað efnahagsstjórn. ■
Orsökin
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og glæsileiki endalaust úrval af hágæða flísum
gar@frettabladid.is
Púðurkerling
Sérsveitarmenn tóku ekki með
silkihönskum á manni sem
grunaður var um aðild að Rauða-
gerðismálinu. Taldi lögreglan
manninn hafa skotið af byssu, því
púður leyndist á höndum hans.
Var honum varpað í fangelsi í
hálfan mánuð að fengnu sam-
þykki dómstóla. Síðar kom í ljós
að púðrið á manninum var líkast
til komið af sérsveitarmönnunum
sjálfum, sem voru víst einmitt
að handleika byssur áður en þeir
settu manninn í járn. Hann var
ekki ákærður – enda játaði annar
maður ódæðið – og krefst nú tíu
milljóna króna í bætur. Hvernig
var þetta aftur með að skjóta fyrst
og spyrja svo? Eða var það öfugt?
Þrjú á palli
Baráttan um völdin í Eflingu
harðnar. Þrjú verða í kjöri til
formanns. Þeirra á meðal er ekki
núverandi formaður, Agnieszka
Ewa Ziólkowska, sem færði sig úr
varaformannsstól í aðalsætið, er
Sólveig Anna Jónsdóttir yfirgaf
sviðið eftir átök á skrifstofu
félagsins. Sólveig Anna býður sig
fram að nýju og það gerir einn-
ig hennar helsti gagnrýnandi,
Guðmundur Baldursson, og líka
hlaðkonan Ólöf Helga Adolfs-
dóttir, núverandi varaformaður,
sem er boðin fram af upppstill-
ingarnefnd félagsins. Sólveigu
Önnu var boðið sæti á lista Ólafar
en þáði ekki. Spennan er mikil og
von á góðri þátttöku í kjörinu. ■
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR