Fréttablaðið - 03.02.2022, Side 18

Fréttablaðið - 03.02.2022, Side 18
Dóra segist kaupa mikið notað og hún er hrifin af því þegar fatamerki framleiða úr endurunnum efnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Nokkrar festar úr skart gripalínu Licorice. Hrá efnin eru gúmmíslöngur og latex. MYND/AÐSEND Dóra Pacz kom til Íslands 2020, rétt áður en faraldurinn hófst. „Mér bauðst starf í ferðabransanum á Íslandi. Ég féll fyrir landinu sem ferðamaður og ákvað því að hætta í draumastarfinu í Ungverjalandi og flytja hingað til að gera eitthvað nýtt. Mig hafði líka lengi langað til að búa erlendis,“ segir Dóra. „Ég er með BA í menningarstjórnun og lærði markaðsfræði með og hafði lengi unnið við sölustörf. Rétt áður en ég kom til Íslands vann ég sem sölu- og markaðsfulltrúi hjá innan- hússhönnunarverslun í Búdapest. Annars langar mig til þess að búa hér áfram svo lengi sem ég nýt þess að búa á Íslandi. Menningargeir- inn á Íslandi lofar góðu þannig að ég sé fram á að halda áfram í námi hér á landi. Núna er planið að fara í mastersnám á Íslandi í sýninga- gerð í LHÍ. Aðalmarkmiðið núna er því að læra íslensku og byrja á mínu eigin verkefni til að vinna að sem umsókn inn í háskólann.“ Ungverskur lakkrís Dóra var á tímabili markaðs- fræðingur hjá ungverska hönn- unarmerkinu Licorice, eða lakkrís á ylhýra. „Merkið byggir á hugmyndafræði endurvinnslu, sköpunargleði, umhverfisvernd og fjölskyldu. Stofnendur merkisins eru þær Hajnal Szolga og Erika Pataki. Þær byrjuðu að selja vörur sínar í Ungverjalandi, og síðar í Berlín og Dresden. Ég kynntist fyrst þessu merki árið 2016 á hönnunarmörkuðum í Búdapest. Upphaflega féll ég fyrir skartinu þeirra sem var einstakt, fallegt og nýstárlegt. Síðar, þegar merkið stækkaði og varð að fyrir- tæki, hjálpaði ég aðeins við fram- leiðsluna en vann annars mest í markaðssetningu fyrir merkið.“ Gómsætt en óætt skart Licorice hönnunargripirnir eru úr gúmmíi úr hjólaslöngum. „Fyrstu munirnir urðu til árið 2014 og voru skart úr svörtu gúmmíi. Það fyrsta sem maður hugsar um þegar maður klippir niður svarta hjólaslöngu í litla búta er gómsætt lakkríssælgæti. Hráefnið sem slíkt var því innblásturinn að nafninu. Í Ungverjalandi hugsa margir hlýtt til æskuáranna þegar þeir borðuðu áhyggjulausir lakkrís á vor- mörkuðunum. Því var það einnig skemmtileg viðbót að tengja saman fólk sem kann að meta nafnið í gegnum minningar sínar. Árið 2016 gáfu þær út vor/sumar línu með fatnað úr púðruðum og lituðum latex hjólaslöngum. Latex er einstaklega viðkvæmt efni og jafnmjúkt og húð mannsins. Þessi lína kom mörgum á óvart og var algert tilraunaverkefni hjá þeim stöllum.“ Hajnal og Erika notuðu þetta tiltekna hráefni því það er aðgengilegt, auðmótanlegt og vekur upp skemmtilegar minn- ingar. „Notkun þessa óvenju- lega og teygjanlega efnis gefur á sama tíma mjög sterk og marg- brotin skilaboð, enda býr þarna að baki sjálf bærnihugsjón og spurningar um úrgang. Hjólreiðar eru umhverfisvænn ferðamáti og lífsstíll, en að sjálfsögðu framleiða þær einnig úrgang. Hjólaslangan gaf þeim frelsi til að skapa mismunandi form og áferð. Hráefnið sjálft er dökkt og öfgakennt en lokaútkoman getur verið einföld, glæsileg og vakið athygli sem listaverk. Ferlið að nýrri línu var mjög skapandi hjá þeim og þær voru alltaf að skapa hluti sem höfðuðu einnig til þeirra persónulega. Ég myndi segja að skartgripirnir þeirra séu algerlega tímalausir og klassískir.“ Hugmyndafræði án hagnaðar Licorice er ekki lengur starf- andi. „Eftir árið 2018 hættu þær Hajnal og Erika að búa til nýjar vörur og merkið varð meira eins og verkefni. Í dag eru þær báðar Jóhanna María Einarsdóttir jme @frettabladid.is sjálfstætt starfandi listamenn. Mig langar enn þá til þess að kynna þessi síðustu eintök merkisins fyrir þeim sem eru áhugsamir. Að mínu mati er mikilvægt að sýna listaverk áfram, þrátt fyrir að markmiðið sé ekki lengur að hagnast á því, og þetta merki einblíndi hvort eð er aldrei á peningahliðina. Síðustu eintökin frá merkinu eru enn frábær og standa fyrir sínu. Þau eru úr góðum efnum og fullkomin fyrir íslenskt veður, þar sem þau eru búin til úr vatnsheldum og teygjanlegum efnum. Licorice var og er enn þá tækifæri til þess að kanna heim sjálfbærra og töff hönnunargripa, í stað lélegra og verðlausra skynditískuhluta.“ Hvaða skilaboð myndir þú vilja bera áfram frá Licorice? „Hugsaðu út fyrir kassann þegar kemur að tísku. Kauptu einstaka og þýðingarmikla hluti sem endast. Ef þig langar ekki lengur til þess að eiga þá, reyndu þá að finna þeim nýjan eiganda sem kann að meta þá. Rusl getur verið fjársjóður og framtíðin mun fela í sér að nota það sem við höfum til þess að búa til nýja hluti.“ Eru einhverjar reglur sem þú fylgir þegar kemur að tísku? „Mér finnst gaman að kaupa notuð föt en á sama tíma reyni ég að vera meðvituð um val mitt. Ég para oft saman litríkar og stundum frekar skrítnar flíkur við beisik flíkur. Þá á ég nokkrar flíkur sem ég keypti fyrir tíu árum og eru enn í frábæru ástandi. Fyrir stuttu fann ég nokkrar mjög svalar flíkur úr fataskápnum hennar ömmu. Hún yrði örugglega mjög hissa á að sjá mig í fötunum sínum.“ En hvernig tengir þú við fyrir- bærið tísku? „Fyrir mér er tíska eins og tækifæri. Ég kann vel að meta skilgreiningu Hundertwassers um Fimm húðir mannsins (e. Men‘s five skin), sem kemur inn á tengingu einstaklingsins við félagslegt og náttúrulegt umhverfi sitt. Önnur húðin er fötin sem sýna að hver einstaklingur eigi rétt á því að njóta hönnunar og sköpunar sem er eitthvað annað og meira en ríkjandi siðir, venjur og einsleitni. Samfélagið í dag sýnir fram á aðra hlið tískunnar, en offram- leiðsla og ofneysla er orðið stórt vandamál um allan heim. Frá því ég byrjaði að vinna í ferða- mennskubransanum á Íslandi, þá sé ég hversu margar flíkur enda líf sitt í ruslinu eftir stutt frí. Við tengjum ekki lengur við fötin okkar og við skiljum ekki hvernig vel hannaður fataskápur virkar. Og við vitum ekki hvað við eigum að gera ef við ákveðum að við viljum ekki nota flíkurnar lengur.“ Endurvinnsla er framtíðin Dóra segir að hlaðborðið sé stórt þegar kemur að endurvinnslu. „Það væri frábært ef fjölmiðlar beindu kastljósinu að fyrirtækjum og framleiðendum sem sýna fram á sjálfbærni og bestu starfsemi sem hugsast getur á sínu sviði. Dan- mörk er þar í forrystu og ég held að Íslendingar gætu staðið sig vel á þessu sviði. Við eigum ógrynnin öll af efnislegum hlutum og spurn- ingin er ekki bara hvernig eigi að endurvinna þá, heldur hvernig eigi að halda neyslunni niðri á lægra stigi. Þess vegna kann ég að meta hugmyndina um að endurhanna fötin okkar. Ef þig langar ekki til þess að nota kjólinn þinn lengur, þá gæti fyrsta skrefið kannski verið að búa til bol úr honum. Ein af meginskilaboðum hönn- unarmerkja eins og Licorice eru að draga athygli að „slow fashion“. Það er einstök tilfinning að virða fyrir sér nokkra hluti og finna og velja þann eina rétta. Þetta snýst ekki um að vilja alla hlutina án nokkurrar merkingar. Þetta snýst um að eiga eitthvað einstakt. Það er alltaf áhugaverð saga og dýpri merking á bak við „slow fashion“ merki og það er þess virði að kynn- ast fólkinu sem býr til hlutina, skilja hönnunina og kunna að meta gæðin sem þau bjóða upp á. Back2Bag er annað ungverskt merki sem notar bílaparta sem endurunnið hráefni. Einnig kann ég að meta Balkan Tango sem breyta hjólaslöngum í veski, töskur og símahulstur. Á Íslandi mæli ég með kertunum hennar Birnu, en hún býr til kerti úr endur- unnu vaxi. Gracelandic er annað íslenskt merki sem byggir ekki bara á gæðum heldur sjálfbærni og siðferði og jöfnum skiptum (e. fair trade). Það væri frábært að kenna næstu kynslóð hvað þessi orð merkja raunverulega.“ ■ Að mínu mati er mikilvægt að sýna listaverk áfram þrátt fyrir að markmiðið sé ekki lengur að hagnast á því, og þetta merki einblíndi hvort eð er aldrei á peningahliðina. Dóra Pacz 2 kynningarblað A L LT 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.