Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 30
Nikolai
prins sem
er 21 árs er
ekki
nýupp-
götvaður
því hann
hefur verið
viðloðandi
módel-
bransann
frá því
hann var
18 ára.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Danska útivistarmerkið
Rains sýndi haust- og vetrar-
línu sína fyrir 2022-2023 á
tískuviku í París fyrir stuttu.
Athygli vakti að Nikolai
prins kom fram í lokaatriði
sýningarinnar en hann er
orðinn eftirsótt fyrirsæta.
Þetta var í fyrsta skipti sem Rains
sýnir í París. Rains kynnti línu sína
Skywatcher, þar sem sýndar voru
púffaðir nælonjakkar og annar
útivistarfatnaður. Neongrænn
litur var áberandi ásamt bleikum
en þeir eiga að vera tákn norður-
ljósanna þaðan sem hönnuðurinn
sækir innblástur. Tískusérfræðing-
ar segja að Rains sé nýskandinav-
ísk fagurfræði, nýstárleg og flott.
Nikolai prins sem er 21 árs er
ekki nýuppgötvaður því hann
hefur verið viðloðandi módel-
bransann frá því hann var 18
ára og hefur sýnt fyrir mörg af
þekktustu merkjum heims svo sem
Danski prinsinn í bleiku á pöllunum
Prinsinn í bleikri, síðri úlpu í lokaatriði sýningarinnar. MYND/RAINS
Hér sýnir prinsinn fyrir Dior á tískusýningu í París áður en
Covid breiddi úr sér í janúar 2020. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Hér kemur prinsinn með föður sínum og stjúpmóður í
fimmtugsafmæli Friðriks krónprins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Prinsinn mun
skreyta forsíðu
Vogue Scandi
navia í febrúar.
Burberry og Dior. Nikolai er sonur
Jóakims prins og fyrri konu hans,
Alexöndru greifynju. Prinsinn
prýðir forsíðu Vogue Scandi navia
í febrúarmánuði. Hinn ungi prins
hefur heillað tískuheiminn, segir á
Instagram-síðu tímaritsins.
Nikolai prins er elsta barnabarn
Margrétar drottningar og Hinriks
prins. Þegar hann fæddist var hann
þriðji í röð arftaka drottningar á
eftir Friðriki krónprins og bróður
hans, Jóakim prins, föður sínum.
Hann er núna sjöundi í þessari
röð. Nikolai hefur stundað nám í
Copenhagen Business School.
Tískusýning Rains var haldin
í Palais de Tokyo í París. Hún var
stíliseruð af áhrifavaldinum Pern-
ille Teisbæk en hún er með yfir 1,2
milljónir fylgjenda á Insta gram.
Hún er gift Philip Lotko sem er
einn af stofnendum Rains. Pernille
valdi að klæða prinsinn í bleika,
síða úlpu sem var sérstaklega
áberandi. ■
Byggingariðnaðurinn
Nánari upplýsingar veitir:
Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is • Sími 694 4103
Miðvikudaginn 23. febrúar gefur Fréttablaðið út sérblað um allt sem
viðkemur byggingariðnaðinum á Íslandi, hvort það eru bæjarfélög,
verktakafyrirtæki, trésmiðjur og söluaðilar byggingarvöru.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér got glýsingaplá s
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 kynningarblað A L LT 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR