Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 34
Fyrrum þjálfari kvenna-
landsliðsins og aðstoðar-
þjálfari karlalandsliðsins,
hefur áhyggjur af stöðugum
breytingum innan stjórnar
og meðal starfsfólks KSÍ í
aðdraganda ársþingsins, þar
sem ný stjórn verður kosin í
mánuðinum.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Freyr Alexandersson,
fyrrum þjálfari kvennalandsliðs-
ins og aðstoðarþjálfari karlalands-
liðsins, lýsti yfir áhyggjum sínum
í vikunni af því að það væri hættu-
legt að sjá lista yfir breytingarnar í
stjórn KSÍ á stuttum tíma. Gríðarleg
starfsmannavelta hefur átt sér stað
á undanförnum árum og er líklegt
að aðeins einn aðili verði í fram-
boði til stjórnar KSÍ á ársþinginu
síðar í mánuðinum, sem hefur verið
í stjórn KSÍ til lengri tíma. Um leið
hafa margir starfsmenn horfið á
braut á fimm árum.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður
KSÍ, hefur gefið það út að hún bjóði
sig fram að nýju í formannsstólinn.
Af þrettán stjórnarmeðlimum KSÍ
sem voru kosnir síðasta haust, eru
allavegana fimm á útleið. Fari svo
að Borghildur Sigurðardóttir, sem
er að íhuga kosti sína, gefi ekki kost
á sér á ársþinginu, verður enginn
eftir úr stjórn KSÍ sem sagði af sér
síðasta haust eftir að of beldismál
landsliðsmanna rötuðu í fjölmiðla.
Von er á endanlegum framboðslista
á næstu dögum.
Freyr lýsti yfir áhyggjum sínum
á Twitter, þar sem hann sagði að
þó að það væri ekki allt fullkomið
innan veggja KSÍ, væri sú þekking,
reynsla og færni sem væri ýmist
farin eða á útleið, hættuleg þróun og
óheilbrigð endurnýjun. Bætti hann
við að honum blöskraði að skoða
starfsmannalista KSÍ og hlutverk
innan sambandsins, með tilliti til
þess hversu mikil þekking væri ekki
lengur innan raða KSÍ.
Freyr ræddi stöðuna nánar í
samtali við Íþróttavikuna með
Benna Bó, en viðtalið í heild sinni
birtist á Hringbraut á föstudag.
Freyr, sem starfar í dag sem aðal-
þjálfari Ly ngby í Danmörku,
þekkir vel til mála innan veggja
KSÍ eftir að hafa sinnt ýmsum
störfum innan KSÍ undanfarin ár.
„Bæði stjórn og starfsfólkið hefur
verið undir miklu álagi og það
hefur verið of mikil velta á starfs-
fólki, eftir mikið jafnvægi á mann-
auði og stjórn þar áður. Ég er á því
að endurnýjun sé alltaf af hinu góða,
en hún þarf að vera heilbrigð. Þessi
rosalega velta sem hefur orðið á
stjórnarfólki, nefndarmönnum og
núna starfsfólki KSÍ, er ekki góð
þróun. Það er erfitt fyrir fólk sem
þekkir ekki innviði sambandsins
að átta sig á því hversu of boðslega
hæft þetta fólk er sem er að hverfa
á braut,“ segir Freyr aðspurður út í
tístið og starfsmannaveltuna.
„Eins og dæmi eru með Lars
Lagerbäck, Erik Hamrén, Roland
Andersson og Lassa markmanns-
þjálfara. Þarna erum við með fjóra
menn sem koma utan frá, sem eiga
það sameiginlegt, að ef þeir voru að
hrósa einhverju innan KSÍ, þá var
það yfirleitt þekkingin, færni og
dugnaður starfsmanna og stjórnar-
manna. Ég fékk að upplifa það í
lengri tíma og er margt af þessu fólki
vinir mínir í dag, þannig að þetta er
synd fyrir íslenska knattspyrnu og
við þurfum að gæta þess betur að
halda í þessa þekkingu."
Fyrrum stjórn sagði af sér á
einu bretti, eftir að í ljós kom að
þáverandi formaður KSÍ hafði farið
leynt með frásagnir af of beldis-
brotum leikmanns karlalands-
liðsins. Aðspurður út í hreinsunina
sem átti sér stað, sagði Freyr suma
einstaklinga vera farna, þó að þeir
hefðu ekki haft vitneskju um neitt.
„Stormurinn sem varð átti full-
komlega rétt á sér og það má ekki
gleymast, en hann snerti líka fólk
sem hafði enga aðkomu að þessum
málum, sem er sorglegt. Þetta fólk
hafði ekki neina vitneskju um þessi
mál og það er því leiðinlegt að sjá
það hrökklast úr starfi.“
Freyr segir að það sé margt sem
þurfi að læra í starfi og að þar sé
vitneskja að hverfa á braut.
„Það eru margir vinklar sem fólk
gerir sér ekki grein fyrir hvernig
virka, og það kemur með reynsl-
unni. Það er mikið talað um for-
mannsslaginn, en það er ekki síður
mikilvægt að hafa gott stjórnarfólk
og hvet ég alla þá sem hafa verið í
kring um stjórnir knattspyrnu-
félaga síðustu ár, að gefa áfram kost
á sér, því að íslensk knattspyrna þarf
á þessu fólki að halda, en á sama
tíma ber ég virðingu fyrir því að
þau eigi kannski erfitt með að halda
áfram.“ n
Stormurinn sem varð
átti fullkomlega rétt á
sér og það má ekki
gleymast, en hann
snerti líka fólk sem
hafði enga aðkomu að
þessum málum, sem er
sorglegt.
Freyr Alex
andersson,
fyrrverandi að
stoðar og lands
liðsþjálfari
Endurnýjun af því góða en
hún þarf að vera heilbrigð
Freyr segir að erlendu þjálfararnir sem hafa komið að þjálfun innan KSÍ undanfarin ár, hafi allir saman hrósað starfsfólki og stjórnarmeðlimum KSÍ fyrir þekkingu og dugnað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ársþing KSÍ fer
fram á Ásvöllum
þetta árið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Stjórn KSÍ árið 2016
Björn Friðþjófsson
Geir Þorsteinsson
Gísli Gíslason
Guðrún Inga Sívertsen
Gylfi Þór Orrason
Ingvar Guðjónsson
Jakob Skúlason
Jóhann Torfason
Jóhannes Ólafsson
Ragnhildur Skúladóttir
Róbert B. Agnarsson
Rúnar V. Arnarsson
Tómas Þóroddsson
Valdemar Einarsson
Vignir Már Þormóðsson
Þórarinn Gunnarsson
Enginn eftirstandandi sex
árum síðar.
Stjórn KSÍ árið 2019
Björn Friðþjófsson
Borghildur Sigurðardóttir
Gísli Gíslason
Guðni Bergsson
Guðrún Inga Sívertsen
Ingvar Guðjónsson
Jakob Skúlason
Jóhann Torfason
Jóhann Ólafsson
Kristinn Jakobsson
Magnús Ásgrímsson
Magnús Gylfason
Ragnhildur Skúladóttir
Rúnar V. Arnarsson
Tómas Þóroddsson
Vignir Már Þormóðsson
Borghildur ein eftirstandandi
þremur árum síðar, óvíst um
framhald hennar í stjórn.
Bráðabirgðastjórn KSÍ
Ásgrímur Helgi Einarsson
Borghildur Sigurðardóttir
Guðlaug Helga Sigurðardóttir
Helga Helgadóttir
Ingi Sigurðsson
Kolbeinn Kristinsson
Margrét Ákadóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Sigfús Ásgeir Kárason
Unnar Stefán Sigurðsson
Valgeir Sigurðsson
Vanda Sigurgeirsdóttir
Þóroddur Hjaltalín
Þrír hafa staðfest að þeir gefi
ekki kost á sér og óvíst með
framhald tveggja.
18 Íþróttir 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR