Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 1
2 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 2
Blóðug kanína
Elísabetar Jökuls
Daft Punk
heyrði í orgeli
Menning ➤ 24 Lífið ➤ 28
FJÖLNOTA POKAR
Á TILBOÐSVERÐI
DAGANA 7.-14. FEB.
99 kr.
Velkomin í
Svansvottaða
verslun!
Pssst ...
kynntu þér
málið betur á
kronan.is
Andstaða við kvótakerfið er
enn mikil samkvæmt nýrri
könnun. Framkvæmdastjóri
Samtaka fyrirtækja í sjávarút-
vegi efast um að andstæðingar
kvótakerfisins vilji að athug-
uðu máli taka upp annað kerfi.
adalheidur@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Yfir 60 prósent
landsmanna eru andvíg núverandi
kvótakerfi í sjávarútvegi, ef marka
má niðurstöður nýrrar skoðana-
könnunar Prósents. Af þeim sem
tóku afstöðu segjast aðeins 20 pró-
sent vera mjög eða frekar hlynnt
kerfinu en 61 prósent frekar eða
mjög andvígt því.
„Ég hef séð svona spurningar
og niðurstöður áður, þannig að
þetta kemur mér ekki á óvart,“
segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi. Hún segir erfitt
að draga skýrar ályktanir af þessu
enda kunni fólk að hafa margar og
misjafnar skoðanir á því hvernig
megi breyta því kerfi sem er við lýði.
„Í svona umræðu finnst mér hins
vegar mikilvægt að hafa alla söguna
í forgrunni. Markmið fiskveiði-
stjórnunarkerfisins var að koma á
sjálf bærum veiðum. Of mörg skip
voru að eltast við of fáa fiska. Þorsk-
stofninn hrundi, afkoman var afleit
og hið opinbera þurfti ítrekað að
veita fyrirtækjum fjárhagslegt lið-
sinni. Verkefnið var því að tryggja
umhverfislega, efnahagslega og
samfélagslega sjálfbærni,“ segir hún
og bendir á að kerfið hafi ekki orðið
til í einu vetfangi árið 1983. Leiðin
að markmiðinu hafi verið bæði löng
og erfið.
„En okkur Íslendingum tókst
þetta – og okkur tókst það sem
f lestum þjóðum hefur mistekist.
Mér er því til efs að sá hópur sem
segist andvígur kvótakerfinu hafi,
þegar betur er að gáð, vilja til þess
að hverfa af braut og taka upp eitt-
hvert annað kerfi, jafnvel með
óljósu markmiði og ófyrirséðum
afleiðingum,“ segir hún.
Þá segist Heiðrún ekki finna fyrir
andstöðu við sjálf bærar veiðar,
heldur þvert á móti. Enda sé sjálf-
bærni forsenda þess að villtur fiskur
eigi greiða leið á markað.
Könnunin var gerð á netinu 14. til
26. janúar. Úrtak var 2.300 einstakl-
ingar og svarhlutfall 50 prósent. n
Nánar á frettabladid.is
Einn af hverjum fimm hlynntur kvótakerfinu
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir,
framkvæmda-
stjóri SFS
n Hlynnt
n Hvorki né
n Andvíg
19%
20%
61%
Hversu hlynnt(ur) eða
andvíg(ur) ertu núverandi
kvótakerfi í sjávarútvegi?
Björgunarsveitin hefur komið upp búðum fyrir kafara og björgunarfólk við Þingvallavatn. Í dag er stefnt að því að ná fjórmenningunum úr vatninu eftir að TF-ABB missti flugið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR