Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 4
Ég er hrædd um að
stórútgerðin sé að
reyna að sölsa þetta
kerfi undir sig.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, vara-
þingmaður Vinstri grænna
Pólskir ríkisborgarar
voru um 21 þúsund
talsins um síðustu
mánaðamót.
Ef ástandinu er leyft að
grassera er hættan sú
að það komi miklu
almennari krafa um
launahækkanir sem
verða mun dýrari fyrir
fyrirtæki og ríkið.
Kristrún Frosta-
dóttir, þingmað-
ur Samfylkingar
Met halda áfram að falla í hús-
næðiskrísunni og ungt, tekju-
lágt fólk skuldsetur sig um
milljarða króna. Samkvæmt
stjórnarandstöðunni er hætta
á að neyðarástand skapist
verði ekki brugðist við.
kristinnhaukur@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Íbúðum í sölu heldur
áfram að fækka og krísan á húsnæð-
ismarkaði harðnar. Stjórnarand-
staðan hefur lagt fram þingsálykt-
unartillögu um að stjórnvöld greini
vandann og bregðist við í tæka tíð.
Samkvæmt mánaðarskýrslu Hús-
næðis- og mannvirkjastofnunar
eru nú 74 prósent færri íbúðir á sölu
en fyrir tæpum tveimur árum. Á
höfuðborgarsvæðinu eru nú aðeins
440 íbúðir í sölu, miðað við 600 í
desember. Það er samdráttur upp á
27 prósent.
Af leiðingarnar eru verð sem
rýkur stjórnlaust upp. 39,6 prósent
íbúða seljast á yfirverði, þar af 43,2
prósent á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er nýtt Íslandsmet. Árshækk-
un íbúðaverðs er 16,6 prósent og á
aðeins þremur mánuðum, frá októ-
ber til desember, hækkaði meðal-
kaupsverð um 5 milljónir króna.
Í gær hækkaði Seðlabankinn svo
stýrivexti um 0,75 prósent.
Níu þingmenn Samfylkingar,
Flokks fólksins, Pírata og Viðreisnar
hafa lagt fram þingsályktunartil-
lögu um að ríkisstjórnin grípi til
mótvægisaðgerða til að kortleggja
vandann og grípi til mótvægisað-
gerða. Eigi þetta að liggja fyrir eigi
síðar en 8. mars.
„Vandinn er hversu hratt þessar
breytingar hafa átt sér stað. Vextir
voru lækkaðir um tvö prósent á
einu ári og skömmu seinna hækk-
aðir aftur upp um tvö. Á þessum
tíma hefur fólk, sérstaklega tekju-
lágt ungt fólk, bætt við sig mörgum
milljörðum í skuldir,“ segir Krist-
rún Frostadóttir, þingmaður Sam-
fylkingar og f lutningsmaður til-
lögunnar. „Hættan við að hringla
svona mikið með hagstjórnina á
skömmum tíma er sú að það skapist
ójafnvægi í samfélaginu sem leiðir
til meiri kostnaðar síðar meir.“
Kristrún bendir á að þriðjungur
þeirra sem hafa keypt fasteign í
þessu ástandi séu fyrstu kaupendur.
Að stærstum hluta ungt fólk sem er
í fyrsta skipti að komast í gegnum
greiðslumat. Hættan er sú að neyð-
arástand geti skapast hjá þeim sem
hafa skuldsett sig hátt á dýrum fast-
eignamarkaði.
Ofan á ástandið á fasteigna-
markaði blasir við verðbólga upp á
5,7 prósent og boðaðar verðhækk-
anir birgja næstu mánuði. Kristrún
segir tekjulága viðkvæmari fyrir
Neyðarástand geti skapast hjá ungu
skuldsettu fólki í húsnæðismálum
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U F J Ó R H J Ó L A D R I F
JEEP COMPASS LIMITED TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI 7.479.000 KR.
ÁRA ÁBYRGÐ
8 ÁRA ÁBYRGÐ Á
DRIFRAFHLÖÐU
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX. KOMDU OG REYNSLUAKTU!
Jeep rafknúnu jepparnir henta íslenskum aðstæðum um allt land
Íbúðum í
sölu á höfuð-
borgarsvæðinu
fækkaði um
27 prósent á
2 mánuðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANDRI
þessu þar sem nauðsynjavörur eru
mun hærra hlutfall af innkaupum
þeirra. Rétt eins og með afborganir
af húsnæði.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær er fyrirséð að kjarasamninga-
gerð gæti orðið þung í haust vegna
ástandsins.
„Við höfum sértækar leiðir til að
koma peningum til þeirra sem þess
þurfa, svo sem vaxtabætur, barna-
bætur og húsaleigubætur,“ segir
Kristrún. „Ef ástandinu er leyft að
grassera er hættan sú að það komi
miklu almennari krafa um launa-
hækkanir sem verða mun dýrari
fyrir fyrirtæki og ríkið.“
Auk þess að fara í sértækar
aðgerðir fyrir viðkvæma hópa
sé hægt að dreifa greiðslum yfir
lengra tímabil. Þá leið hafi breska
íhaldsstjórnin kynnt síðastliðinn
fimmtudag vegna orkukrísunnar
þar í landi. n
kristinnhaukur@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Lilja Rafney Magn-
úsdóttir, varaþingmaður Vinstri
grænna, telur það hættulega þróun
að stórútgerðin sé að kaupa upp
smábátana og kvótann.
„Ég er hrædd um að stórútgerðin
sé að reyna að sölsa þetta kerfi undir
sig. Kerfið var byggt til að vera mót-
vægi við þá stóru,“ segir Lilja. „Þetta
er ekki auðvelt því mönnum er
frjálst að selja sín fyrirtæki. En það
er mikilvægt að koma upp girð-
ingum til að allar af laheimildir í
landinu fari ekki á örfárra hendur.“
Sem dæmi keypti FISK Seafood
smábáta í Ólafsvík, Höfn í Horna-
firði og Stöðvarfirði á síðasta ári.
Rúm tvö ár eru síðan Brim keypti
hafnfirsku félögin Kamb og Grá-
brók og fóru þar með yfir lögbundið
kvótaþak í krókaaflamarki, sem er
kerfi handfærabátanna.
Lilja Rafney bendir á að stórút-
gerðin sé komin yfir kvótaþakið í
aflamarkskerfinu, sem er almenna
kerfið, og ekki virðist hægt að koma
böndum á hana. Þetta séu stór
hlutafélög sem hugsi einungis um
að skapa arð fyrir hluthafana.
Arthur Bogason, formaður Lands-
sambands smábátaeigenda, harmar
þróunina. Stórútgerðin pressi á að
eyðileggja krókaaf lamarkskerfið
og sameina það aflamarkskerfinu.
Rótin sé í stækkun skilgreiningar
á smábátum í lögum árið 2004 í 15
tonn sem olli því að stærri bátar
urðu ofan á. Rúmlega 700 smábátar
verið í landinu en séu um 200 í dag.
„Stjórnvöld ættu að efla sem frjáls-
asta sókn lítilla báta, svo sem með
strandveiðum, og hafa úrræði til að
almenningur hafi aðgang þessari
auðlind,“ segir Arthur. „Þetta er eini
glugginn inn í greinina fyrir þá sem
eru ekki moldríkir eða erfingjar.“ n
Stórútgerðin kaupir upp bæði smábátana og kvótann
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG Alls var 55.181 erlendur
ríkisborgari skráður með búsetu hér
á landi 1. febrúar síðastliðinn. Þeim
fjölgaði um 202 frá 1. desember 2021
eða um 0,4 prósent.
Á sama tímabili fjölgaði íslensk-
um ríkisborgurum sem eru með
skráða búsetu hér á landi um 572
einstaklinga eða um 0,2 prósent.
Pólskum ríkisborgurum fækkaði
á ofangreindu tímabili um 89 ein-
staklinga og voru 21.102 talsins um
síðustu mánaðamót og eru nú 5,6
prósent landsmanna.
Tölurnar eru byggðar á skráningu
þjóðskrár um einstaklinga með
búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. n
Erlendum fjölgar
hér á landi
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Í gær voru 10.100 manns
í einangrun með Covid-19 hér á
landi og ríf lega 8.700 manns voru
í sóttkví. Sólarhringinn á undan
greindust yfir tvö þúsund smit
innanlands.
Frá því að fyrsta smit greindist á
Íslandi í lok febrúar 2020 hafa hér
verið staðfest tæplega 82 þúsund
Covid-19 smit. Það þýðir að 22 pró-
sent íbúa landsins hafa greinst með
sjúkdóminn. n
Yfir tíu þúsund í
einangrun
4 Fréttir 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ