Fréttablaðið - 10.02.2022, Page 16
Allt eru þetta skref í
rétta átt sem við getum
verið stolt af og eru í
anda jafnaðarstefnu.
Samkvæmt stefnu um stafræna
þjónustu hins opinbera frá 2021 er
markmiðið að Ísland verði meðal
allra fremstu þjóða heims í staf-
rænni þjónustu. Metnaðurinn
stendur til þess að bjóða þegnum
landsins upp á skilvirka og heild-
ræna opinbera þjónustu sem ein-
faldar líf þeirra þar sem einstakl-
ingar þurfa ekki að skila aftur og
aftur gögnum á pappírsformi eða
senda tölvupósta þegar þeir þurfa
á þjónustu hins opinbera að halda.
Samband íslenskra sveitarfélaga er
aðili að þessari stefnu f.h. sveitar-
félaga og sveitarfélög þurfa nú að
bretta upp ermar til að ná þeim
markmiðum sem þar eru sett.
Stafrænt umbreytingarteymi
sveitarfélaga hefur verið stofnað hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
sem vinnur með sveitarfélögum
og styður þau í þeim fjölmörgu
verkefnum sem tækniframfarir
bjóða upp á. Teymið vinnur náið
með sérfræðingum sveitarfélaga
um stafræna þróun og stafrænu
ráði sveitarfélaga sem er skipað
f ramk væmdastjór um sveit ar-
félaga og pólitískt kjörnum full-
trúum úr öllum landshlutum. Auk
þess vinnur teymið með Stafrænu
Íslandi og fjármálaráðuneytinu til
að stuðla að samnýtingu og sam-
hæfingu þvert á opinbera geirann.
Gríðarlega mikilvægt er fyrir
sveitarfélög og hið opinbera að
leggja áherslu á stafræna umbreyt-
ingu enda er varla nokkurt verkefni
eða áskorun leyst nema með tækni.
Stafræn umbreyting felur í sér
nýtt og breytt verklag með nútíma-
legri tækni. Þetta þýðir að sveitar-
félög, opinberir aðilar og fyrirtæki
eru að ganga í gegnum róttækar
breytingar með það að markmiði
að bæta notendaupplifun með
snjallari og skilvirkari lausnum.
Hún byggist á samtengingu tækni-
lausna til að fá betri yfirsýn og
betri nýtingu á mannafla og fjár-
magni. Þessi vegferð getur falið í
sér að breyta þurfi skipulagi, færa
til ábyrgð, endurskrifa reglur eða
endurhanna ferla. Þetta snýst því
alls ekki bara um tækni heldur jafn
mikið um breytingastjórnun, þekk-
ingaruppbyggingu og breytingu á
skipulagi, stefnumótun og stjórn-
sýslu.
Starfsmenn og fastir stjórnendur
sveitarfélaga eru í auknum mæli
farnir að átta sig á þeim tækifærum
sem stafræn þróun og nútímatækni
getur haft á rekstur sveitarfélaga, á
verkferla, vinnubrögð og afgreiðslu
mála til að ná meiri skilvirkni, en
kjörnir fulltrúar þurfa líka að átta
sig á þessum tækifærum og þessari
hröðu þróun og möguleikum sem
tæknin býður upp á.
Nú fer senn að líða að sveitar-
stjórnarkosningum og vona ég að
þeir sem bjóða sig fram til sveitar-
stjórna geri sér grein fyrir því hvað
framfarahugsun er mikilvæg og
skilningur og þekking á tækifær-
um tækninnar til að búa til öf lug
sveitarfélög.
Íbúar gera oft ekki greinarmun
á því hvaða þjónustu ríkið veitir
og hvaða þjónustu sveitarfélög
veita, auk þess sem þjónusta ríkis
og sveitarfélaga tengist oft. Íbúinn
ætti ekki að þurfa að byrja upp á
nýtt þegar hann færir sig á milli
stjórnsýslustiga. Þjónusta hins
opinbera þarf að birtast íbúum sem
ein heild og því eru gríðarlega mikil
tækifæri fólgin í samstarfi ríkis og
sveitarfélaga í endurhönnun þjón-
ustu með nýrri tækni til að einfalda
líf einstaklinga.
Að nota ólíka styrkleika og
þekkingu stafrænna leiðtoga mis-
munandi sveitarfélaga og ríkisins
fyrir heildarárangur stafrænnar
þróunar landsins.
Það hefur þegar sýnt sig að sam-
tal og samstarf sveitarfélaga í staf-
rænni umbreytingu hefur borgað
sig og ávinningurinn á eftir að
koma enn betur í ljós. Ísland er
hálfgert þorp þó sveitarfélögin
séu býsna mörg en þau eru mörg
hver lítil og standa ekki vel að vígi
í þekkingu á stafrænni þróun. Fag-
hópur um stafræna umbreytingu
sveitarfélaga hefur nú hist a.m.k.
mánaðarlega í um tvö ár og lagt
grunninn að samstarfi sveitar-
félaga og þeirri stefnu sem er í
mótun í stafrænni umbreytingu.
Innan hópsins hefur átt sér stað
deiling á þekkingu, upplýsingum
og reynslu sem hefur verið ómetan-
legt fyrir ákvarðanir og framþróun.
Á lokaðri Facebook-síðu hafa sveit-
arfélögin einnig getað deilt upp-
lýsingum og reynslu og nú á nýrri
og glæsilegri vefsíðu samstarfsins,
stafraen.sveitarfelog.is, sem sett
var upp sl. sumar. Þar deila þau
reynslusögum af lausnum og snjöll-
um lausnum sem öll sveitarfélög
geta nýtt sér til að bæta þjónustu
sína. Þar er einnig að verða til verk-
færakista með leiðbeiningum og
sniðmátum sem sveitarfélög geta
nýtt sér í stafrænum verkefnum.
Stafræn færni er stór og mikilvægur
þáttur í stafrænni umbreytingu og
eru upptökur af hinum ýmsu fyrir-
lestrum um stafræna þróun sveit-
arfélaga og ríkisins aðgengilegar
á síðunni. Markmiðið er að bæta
og þróa síðuna jafnt og þétt þar
sem stafrænt umbreytingarteymi
sambandsins og sveitarfélögin
styðja hvort annað í þessari hröðu
stafrænu þróun og ef la færni og
getu sveitarfélaganna svo þau geti
nútímavætt vinnuumhverfi sitt og
þjónustu.
Samstarf er lykillinn og þannig
munum við halda áfram. n
Það þarf heilt þorp til að koma
stafrænum sveitarfélögum á legg
Fjóla María
Ágústsdóttir
leiðtogi stafræns
umbreytingar-
teymis og breyt-
ingastjóri hjá Sam-
bandi íslenskra
sveitarfélaga
Það er alltaf mikilvægt en sjaldan
eins og í heimsfaraldri að standa
sérstakan vörð um jöfnuð í mennta-
kerfinu, ekki síst með því að verja
börn í viðkvæmri stöðu. Þetta er
leiðarljós okkar jafnaðarmanna við
stjórn menntamála í borginni.
Það er forgangsverkefni til að
auka jöfnuð í menntakerfinu að
styðja betur við bakið á börnum
með annað móðurmál en íslensku. Í
Reykjavík höfum við þrefaldað fjár-
magn til þess málaflokks á undan-
förnum árum og erum að innleiða
nýtt úrræði sem kallast íslenskuver.
Markviss móttaka barna sem flytja
til borgarinnar að utan getur skipt
sköpum um að þau nái að blómstra
í okkar skólakerfi.
Þess vegna höfum við stigið nýtt
skref á þessu skólaári með því að
stofna íslenskuver í tveimur borgar-
hlutum þar sem þessi börn fá mikla
og markvissa íslenskukennslu
fyrstu mánuðina eftir f lutning til
borgarinnar. Á þessu ári munum
við bæta við tveimur íslenskuverum
til viðbótar í austurborginni, þar á
meðal í Breiðholti.
Aukið tillit til félagslegra
aðstæðna
Við höfum lagt sérstaka áherslu á
það að bæta kjör og starfsaðstæður
í leikskólum, grunnskólum og frí-
stundastarfi og varið til þess meira
en 5 milljörðum frá 2017. Nú um
áramótin bætist við árleg aukning
upp á 1,5 milljarða í fjárframlög til
grunnskóla og við úthlutun á fjár-
magni verður nú meira tillit tekið til
félagslegra aðstæðna í hverju skóla-
hverfi.
Þannig verður 425 milljónum
króna úthlutað í fyrsta sinn á
grundvelli upplýsinga um mennt-
unarstig foreldra, ráðstöfunartekjur
heimila og hlutfall innflytjenda af
heildarfjölda fjölskyldna í við-
komandi hverfi. Skólar fá þannig
meira fjármagn í hverfum þar sem
félags- og efnahagsleg staða heimila
er þrengri.
Allt eru þetta skref í rétta átt
sem við getum verið stolt af og
eru í anda jafnaðarstefnu. Stóra
verkefnið verður áfram að jafna
aðstöðu barna og lyfta þeim sem
standa höllum fæti svo þau geti látið
drauma sína rætast. n
Jöfnuður og menntun
Skúli Helgason
borgarfulltrúi og
frambjóðandi í
3. sæti í f lokksvali
Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík
Gætið þess að börn nái ekki í vöruna. www.msb.is
illjant
þvottaefni fyrir
16 Skoðun 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ