Fréttablaðið - 10.02.2022, Page 18
Kínversku jakkafötin mín eru
klárlega bestu kaupin. Verstu
kaupin eru úr þessum ódýru stóru
keðjum því þær flíkur eiga það til
að minnka í þvotti og missa allt
shine-ið fljótlega.
Notar þú fylgihluti?
Ég er oft með úr, hálsmen og af
og til með hringi og eyrnalokka.
Eyðir þú miklum peningum í föt
miðað við jafnaldra þína?
Ætli það fari bara ekki eftir
aðstæðum en yfirleitt er ég ekki að
eyða miklum peningum í föt.
Er einhver ein f lík sem þú ætlar
að kaupa á næstunni?
Það er ekkert planað en augun
rekast örugglega á eitthvað. n
Svört, sérsaumuð jakkaföt sem hann keypti í Kína þegar hann og unnusta
hans voru á ferðalagi þar. Skyrtan er úr Zöru á Spáni. Úrið er frá Michael Kors.
Þessi fallegi brúni jakki var keyptur í Zöru á Spáni. Rósaskyrtan var sérsaumuð í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Tónlistarmaðurinn og upptöku-
stjórinn Birgir Örn Magnússon,
betur þekktur sem Bixxi, hefur
haft nóg að gera undanfarið við
að taka upp tónlist fyrir ýmsa
listamenn. Auk þess er hann að
vinna að eigin tónlist og semja
með unnustu sinni, Álfrúnu Kol-
brúnardóttur, en hægt er að hlusta
á tónlistina á Spotify og YouTube
undir Bixxi.
„Helsta áhugamál mitt er auð-
vitað tónlist en ég stunda líka
ræktina og les eitthvað. Mestur
frítími minn fer þó í að semja tón-
list, læra eitthvað nýtt sem tengist
tónlist og æfa mig á píanó, gítar
eða bassa.“
Um miðjan janúarmánuð kom
út lagið I’ll wait með honum og
söngkonunni Alyriu sem hefur
gefið út tónlist undanfarin tvö
ár við góðar viðtökur. „Lagið var
samið af okkur báðum og ég sá um
upptökur og gekk frá öllu saman.
Lagið sjálft er sexí og dularfullt
ástarlag sem snertir þær mörgu
tilfinningar sem fylgja ástinni en
með blæ af frelsi og yfirvegun í
ást.“
Árið fram undan verður hans
stærsta hingað til að eigin sögn.
„Ég geri ráð fyrir að gefa út mikið
efni sem ég hef unnið að síðustu ár
þar sem ég er loks orðinn rosalega
ánægður með hljóðheiminn og
þann stíl sem ég hef þróað með
mér í gegnum tíðina. Næsta lag
kemur út 10. mars en það ber heitið
ÚAA/Labbar inn.“
Bixxi sýnir lesendum Frétta-
blaðsins inn í fataskápinn og
svarar nokkrum spurningum í
tengslum við tísku.
Hvernig hefur tískuáhugi þinn
þróast undanfarin ár?
Maður var náttúrlega algjör
skoppari áður fyrr og það var
mikið um svona bling bling og
baggy-föt, hettupeysur og svo-
leiðis. Í dag er ég meira klassí og
ekki að reyna of mikið. Ég klæðist
oftast fötum sem mér finnst fara
vel með persónuleikanum mínum
þó svo að ég elski líka að vera
stundum extra.
Hvernig fylgist þú helst með
tískunni?
Ég fylgist aðallega með því sem
er í gangi í kringum mig og yfirleitt
gerist eitthvað skemmtilegt. Um
daginn var ég að horfa á Bachelor-
ette með konunni og sá þar einn
keppandann með flotta klippingu.
Þá hugsaði ég með mér að hún gæti
farið mér vel. Ég lét verða af því og
sé ekki eftir því.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Ég kaupi aðallega föt þegar ég er
í útlöndum. Þegar ég og konan mín
vorum til dæmis í Kína þá keypti
ég ýmislegt sem greip augað. Ann-
ars er ég ekki mikið að spá í hvar
ég kaupi flíkurnar heldur hvað ég
kaupi.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Það er eitthvað við fjólubláan
sem ég hef alltaf elskað.
Áttu minningar um gömul tísku-
slys?
Ætli það sé ekki bara allt sem er
á Myspace.
Hvaða þekkti einstaklingur er
svalur þegar kemur að fatnaði?
Bríet er gríðarlega töff í sínu fata-
vali. Einnig er Zayn, sem var í One
Direction, klárlega eitraður hvað
varðar stíl.
Hvaða f líkur hefur þú átt lengst
og notar enn?
Það er uppáhaldsskyrtan mín
sem er gulllituð og kínversk. Ég
keypti hana á ferðalagi um Kína
og nota í nýjasta tónlistarmynd-
bandinu mínu sem kemur út á
næstunni.
Áttu uppáhaldsverslanir?
Nei. Ég elska að rekast á óvæntar
flíkur. Ég get verið mjög vandlátur
og er aldrei að drífa mig í að kaupa
mér neitt.
Áttu eina uppáhaldsf lík?
Ég held mikið upp á jakkaföt
sem ég lét sérsauma fyrir mig úti í
Kína og einnig Philipp plein skóna
mína.
Bestu og verstu fatakaupin?
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Það er
eitthvað
við
fjólubláan
sem ég hef
alltaf
elskað.
Bixxi
2 kynningarblað A L LT 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR