Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 23
Kristín Björg Hrólfsdóttir, annar eigenda Hermosa, vandar mjög til verka þegar vörur er valdar fyrir verslunina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hermosa er vefverslun sem
selur gott úrval unaðs tækja.
Eigendur Hermosa leggja
áherslu á að veita góða
þjónustu og velja aðeins
hágæða endurhlaðanlegar
vörur fyrir verslunina.
Kristín Björg Hrólfsdóttir, annar
eigenda Hermosa, segir mark
mið fyrirtækisins vera skýrt. Þau
líta ekki á Hermosa sem verslun
heldur þjónustufyrirtæki.
„Markmið okkar er einfald
lega að verða besta netverslun á
landinu. Hvort sem við erum að
tala um kynlífstækjaverslanir
eða aðrar netverslanir. Við höfum
nokkrar leiðir til að uppfylla þetta
markmið. Við erum með einfalda
vefsíðu, gegnsæi í verði, sem þýðir
að viðskiptavinir þurfa ekki að
óttast um falið verð sem bætist
við í kaupferlinu. Einnig erum við
með netspjall þar sem hægt er að
hafa beint samband við starfs
mann. Við reynum að vera alltaf
til staðar á spjallinu, en notendur
vefsíðunnar eru mjög virkir í að
nota spjallið til að fræðast um
vörur eða þjónustu,“ segir Kristín.
Hún segir að þjónustan miði
öll að því að tryggja ánægju við
skiptavina og einfalda kaupferlið.
„Við státum okkur af einstak
lega góðri þjónustu eins og sjá
má á umsögnum, en við förum til
dæmis umfram það sem lög gera
ráð fyrir varðandi skil á vöru með
30 daga skilafrest og ánægjuvernd
og enginn kostnaður er við heim
sendingu,“ segir hún.
Hermosa er með svokallaðan
Unaðsklúbb þar sem viðskipta
vinir fá afslátt af næstu kaupum.
Eins og með annað vildu eigendur
Hermosa hafa hann einfaldan og
því var tekin sú ákvörðun að ekki
þurfi að skrá sig sérstaklega.
„Þótt þú skráir þig ekki fyrir
fyrstu kaup þá fær viðskiptavinur
inn samt punkta sem veita afslátt
næst,“ segir Kristín.
„Fyrir þau sem eru að stíga sín
fyrstu skref í heimi unaðstækja er
sérstök síða í netversluninni þar
sem hægt er að skoða vörur sem
eru fullkomnar fyrir byrjendur.
Þar eru sogtækin áberandi en þau
hafa reynst afar vel og hvað titrara
snertir þá er Slimline kanínu
titrarinn tilvalinn.“
Taka bara inn hágæðavörur
Hjá Hermosa er lagður ríkur
metnaður í að finna og bjóða upp
á bestu hugsanlegu vörurnar.
„Við byrjum alltaf á að skoða
hvað selst mikið hjá okkar
birgjum. Við förum yfir þessar
vörur og tökum út þær vörur sem
ekki eru endurhlaðanlegar því við
viljum þær ekki. Því næst skoðum
við umsagnir um vörurnar og ef
þær eru góðar og birgirinn stað
festir að lítið sé um bilanir og
framleiðandinn áreiðanlegur þá
pöntum við vörurnar inn,“ segir
hún.
Ferlið tryggir að vörurnar geti
uppfyllt ítrustu kröfur viðskipta
vina, að sögn Kristínar.
„Við erum með mjög strangt
ferli í að taka inn nýjar vörur,
sérstaklega ef um er að ræða
framleiðanda sem við höfum ekki
prófað áður. Það verður til þess að
við tökum bara inn hágæðavörur.
Um leið og við sjáum að vara bilar
oft, en um 5% skil vegna galla telst
almennt eðlilegt, þá tökum við
ekki inn þá vöru aftur. Það hefur
þó eingöngu gerst einu sinni hjá
okkur að við tökum vöru ekki inn
aftur. Það er vegna þess stranga
ferlis sem við förum í áður en við
kaupum vörur inn.“
Bjóða upp á ánægjuvernd
„Við erum alltaf að leita nýrra leiða
til að auka ánægju viðskiptavina
okkar. Sérstaða okkar er vissulega
þjónusta og við erum sífellt að
finna upp á nýjungum til að bæta
þjónustuna enn frekar. Eitt af því
sem við bjóðum upp á er ánægju
vernd. Ánægjuvernd þýðir að ef
viðskiptavinurinn er ekki ánægður
með vöruna getur hann skilað
henni og fengið nýja sambærilega
vöru í staðinn,“ útskýrir Kristín.
Hún segir að þessi þjónusta njóti
algjörrar sérstöðu, ekki einungis
hér á landi heldur sennilega einnig
á heimsvísu.
„Engin kynlífstækjaverslun á
landinu býður upp á þetta, og í
raun fáar í heiminum. Ánægðir
viðskiptavinir auka metnað okkar
í að finna nýja hluti til að gera enn
betur,“ segir hún.
Viðskiptavinir Hermosa eru fjöl
breyttur hópur fólks á öllum aldri.
„Það er gaman að segja frá því
að karlmenn versla ekki síður
hjá okkur en konur og eru þeir
ótrúlega duglegir að versla fyrir
konurnar sínar. Að sama skapi
er eldra fólk sem er að kaupa sín
fyrstu kynlífstæki skemmtilega
stór hópur.“
Vinsælustu vörurnar
Nokkrar vörur frá Hermosa hafa
verið vinsælli en aðrar og fengið
sérlega góða dóma frá notendum.
Kristín nefnir nokkrar þeirra.
n Satisfyer Signet Ring
„Vinsælasta varan okkar er
Satisfyer Signet Ring. Þetta
er kröftugt tæki sem hægt
er að nota sem fingratitrara,
typpahring, egg og jafnvel
setja hann á strap-on,“ útskýrir
hún. „Hringurinn er silíkon-
húðaður og með plasti að hluta
til. Hringurinn veitir einstaka
upplifun þegar tækið er notað
sem typpahringur og hinn
aðilinn finnur fyrir unaðslegum
titringi á snípnum þegar kynlíf
er stundað með hringinn á.“
Kristín segir typpahringi hjálpa
til við að halda stinningu lengur
og betur. Auðvelt er að stjórna
Satisfyer Signet Ring tækinu
með takka sem er á hringnum
en einnig er hægt að tengja
hringinn við Satisfyer app-ið í
síma og stjórna honum þannig.
„Í appinu er hægt að búa til
sínar eigin stillingar og deila að-
gangi að tækinu svo fjarlægðin
verður ekki lengur fyrirstaða!
Það er hægt að hala niður Satis-
fyer connect appinu frítt í App
Store fyrir Iphone og Google
Play fyrir Android,“ segir hún.
n Satifyer Double Joy
Annað vinsælt tæki er Satis-
fyer Double Joy. Það er nýjasta
paratækið frá Satisfyer. „Þetta
tæki hentar gagnkynhneigðum
pörum og í því eru tveir mótorar.
Tækið er kraftmikið og er notað
á meðan kynlíf er stundað,
annar endi þess fer inn í leggöng
og hinn leggst ofan á snípinn,
typpið fer meðfram tækinu inn í
leggöng,“ útskýrir Kristín.
„Tækið er endurhlaðanlegt og
sturtuhelt. Það eru takkar á tæk-
inu sem hægt er að nota til þess
að stjórna því en einnig er hægt
að tengja það við app í símanum
og stjórna því með því.“
n Uberlube sleipiefnið
Sleipiefnið frá Uberlube er vin-
sælasta sleipiefnið sem fæst
hjá Hermosa. Sleipiefnið er úr
silíkoni sem gerir það að verkum
að það hefur einstaklega góða
Vilja verða besta
vefverslun landsins
endingu. „Uberlube hentar vel
í kynlífi eða sjálfsfróun og það
má nota með smokkum. Áferðin
á því er einstaklega mjúk eins og
silki og klístrast lítið sem ekkert.
Það þarf að nota minna af því
en flestum öðrum sleipiefnum
og flaskan endist þess vegna
lengur,“ segir Kristín. Þar sem
sleipiefnið er gert úr silíkoni
hentar það ekki sílíkon-leik-
föngum.
n Satisfyer Love Breeze
Love Breeze frá Satisfyer hefur
verið mjög vinsælt sogtæki og
Kristín segir það vera tilvalið
sem fyrsta sogtæki. „Tækið er
hljóðlátt og einfalt í notkun
en samt sem áður með kraft-
mikinn mótor. Love breeze er
sérstaklega hannað til þess
að veita mikla og djúpa örvun
á snípinn með léttu sogi,“ út-
skýrir hún. Hún segir tækið nota
þrýstibylgjutækni til þess að
örva snípinn og líkja þannig eftir
unaðslegum munnmökum.
„Þetta er létt tæki sem auð-
velt er að þrífa það þar sem
það er vatnshelt. Love Breeze
er endurhlaðanlegt eins og öll
önnur sogtæki sem við bjóðum
upp á,“ segir hún og bætir við að
þau mæli með að nota vatns-
leysanleg sleipiefni með öllum
þeirra tækjum.
n Satisfyer Curvy
Curvy sogtækin frá Satisfyer
hafa einnig verið vinsæl en
þau eru til í þremur gerðum.
Satisfyer Curvy 1+, 2+ og 3+.
„Satisfyer Curvy sogtækin eru
sérstaklega hönnuð til þess
að veita djúpa og kraftmikla
örvun á snípinn. Tækið er með
tvo mótora, annar veitir sog
og hinn djúpan titring. Sogið
er myndað með þrýstibylgjum
sem örva snípinn og líkja eftir
munnmökum. Curvy 1+ er með
stærsta stútinn og Curvy 3+
þann minnsta,“ segir Kristín.
Satifyer Curvy sogtækjunum
er hægt að stjórna bæði með
tökkum og appi.
n Margar gerðir af múffum
Múffur hafa verið vinsælar hjá
Hermosa en úrvalið af þeim
er gott. Kristín nefnir nokkur
dæmi. „Go surge er léttari og
nettari útgáfa af uppruna-
legu og vinsælustu fleshlight
múffunni og er með stillanlegu
sogi. Hún er hönnuð til þess að
auðvelt sé að taka hana með sér
hvert sem er,“ segir hún.
Satisfyer Men Masturbator
Heat Vibration er múffa frá
Satisfyer men línunni. „Þessi
múffa er frábrugðin öðrum
múffum frá Satisfyer að því
leyti að hún er með hitastill-
ingum sem gerir upplifunina
mjög líka því að stunda kynlíf
og þú getur valið mismunandi
hitastig eftir því hvað þér finnst
best. Til þess að gera hlutina
enn betri er hún með 70 titr-
ingsstillingum til að koma þér
alla leið,“ segir Kristín. „Manta
frá Fun Factory er svo frábær
tilbreyting frá hinni venjulegu
múffu. Manta er dót fyrir hann
en er líka skemmtilegt í para-
leiki. Það er með öflugan mótor
sem veitir djúpan titring. Hægt
er að leika sér með tækið einn
eða láta makann nota það á
sig.“ n
Hægt er að skoða úrvalið á her-
mosa.is
Satisfyer Men Masturbator Heat
Vibrations er með hita og titrings-
stillingum til að bæta upplifunina.
Satifyer Double Joy er nýjasta
paratækið frá Satisfyer.
Satisfyer Signet
ring er vinsæl-
asta varan hjá
Hermosa.
Satisfyer Love
Breeze er tilvalið
fyrsta sogtæki.
Satifyer Curvy 1+ er sérhannað
til að veita kraftmikla örvun.
Ubuerlube sleipiefnið er úr silíkoni
sem gefur því góða endingu.
kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 10. febrúar 2022 UNAÐSVÖRUR