Fréttablaðið - 10.02.2022, Side 26
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
The Mistress
Firðinum
Hafnarfirði
2.hæð
themistress.is
Undirfataverslun
Kynfræðingurinn Indíana
Rós Ægisdóttir segir að kyn-
lífstæki geti verið skemmti-
leg viðbót við kynlífið og
veitt örvun sem líkaminn
getur ekki veitt. Hún segir
að traust og góð samskipti
skipti máli þegar pör prófa
sig áfram með tækin og
fagnar aukinni umræðu um
þau.
Indíana segir að kynlífstæki séu
langt frá því að vera nýtt fyrirbæri,
en hún er með masterspróf í kyn-
fræði, sem er fræðigrein sem snýst
um allt sem viðkemur kynlífi og
kynhegðun. Þegar hún var í námi í
Bandaríkjunum vakti hún athygli
fyrir kynfræðslu sem hún veitti á
Snapchat og Facebook.
„Núna er ég forstöðumaður
frístundaheimilis og félagsmið-
stöðvar í Þorlákshöfn og kenni
valáfanga í kynfræðslu. Ég sinnti
líka mikið af kynfræðslu víðs vegar
um landið fyrir alls konar hópa
eftir að ég kláraði námið en svo
kom Covid og þá var ekki lengur
hægt að vera að ferðast svona um,“
segir hún.
„Ég þekki söguna ekki nákvæm-
lega, en ég veit að það hafa fundist
gömul tæki og tól, fyrst og fremst
fallískir munir, sem er talið að hafi
verið notuð sem kynlífstæki. Svo
er líka spurning hvað hefur ekki
fundist og mun aldrei finnast en
hefur verið til.“
Krydd fyrir kynlífið
Hún segir að kynlífstæki geti verið
góð viðbót við kynlífið hjá pörum.
„Ég hugsa alltaf um þau sem
skemmtilega viðbót, en margir
þurfa þau líka til að geta fengið
fullnægingu, ef það er mark-
miðið með kynlífinu. Þau geta
veitt örvun sem munnur, hönd
eða kynfæri geta ekki veitt,“ segir
Indíana. „Ég hugsa oft um þetta út
frá þeirri samlíkingu að þú getur
farið út á strönd og leikið þér með
sandinn en þú getur líka haft með
þér skóflu og fötu og dót sem gerir
þetta skemmtilegra og getur breytt
Örvun sem líkaminn getur ekki veitt
Kynfræðingur-
inn Indíana
Rós Ægisdóttir
segir að kynlífs-
tæki geti verið
skemmtilegt
krydd fyrir kyn-
lífið hjá pörum,
því þau geta
veitt örvun sem
munnur, hönd
eða kynfæri
geta ekki veitt.
MYND/AÐSEND
hlutunum og leyft þér að prófa
nýja hluti sem þér datt kannski
ekki í hug áður og getur kannski
ekki gert með líkamann.
Kynlífstæki geta gert gott kynlíf
betra og það er engin ástæða til að
vera feimin(n) við að prófa þau.
Kannski er þetta eitthvað sem
hentar og kannski ekki, en það er
um að gera að prófa og leyfa sér að
vera forvitinn,“ segir Indíana.
Veita aukna örvun
„Það er alls ekki skrítið að vilja
nota kynlífstæki. Ég hef oft heyrt
fólk í pörum tala um að þau eigi
að vera nóg og þau eigi að geta
fullnægt makanum sínum en þetta
snýst ekki um það, heldur að bæta
einhverju skemmtilegu við. Stund-
um þarf meiri örvun en líkaminn
getur veitt eða að ná á staði sem
hann nær ekki til. Kynlífstæki geta
líka verið mjög gagnleg fyrir fötluð
pör, sem eiga kannski erfitt með
ákveðnar stellingar, hreyfingar eða
að ná á einhverja staði.“
Indíana segir að traust og góð
samskipti skipti máli þegar pör
nota kynlífstæki.
„Ef fólk er kannski búið að vera
lengi saman og er orðið leitt á því
sem það er að gera er hægt að prófa
alls konar hluti, ekki bara titrandi
egg og titrara. Það er alls konar dót
þarna úti sem getur verið gaman
að prófa sig áfram með og það er
ekki nauðsynlegt að festa sig við
eitthvað eitt,“ segir hún. „En ég
held að ef fólk er ekki með opin
og góð samskipti geti kynlífstæki,
eins og allt annað, haft neikvæð
áhrif. Ef fólk er ekki að tala um
hlutina, laumupúkast eða fela eitt-
hvað og samskipti eru ekki opin
og hrein getur þetta haft neikvæð
áhrif, en auðvitað ætti það aldrei
að vera þannig.“
Opnar umræðu um sjálfsfróun
Indíana segist fagna aukinni
umræðu um kynlífstæki.
„Umræðan kemur líka mikið
inn á sjálfsfróun, sem hefur lengi
verið mjög mikið tabú, svo hún
hefur líka opnast. Sjálfsfróun
bætir kynlíf að því leyti að hún
hjálpar fólki að læra á líkamann
sinn og hvað því finnst gott. Hún
getur líka haft jákvæð áhrif á
líkamsímynd og veitt góða streitu-
losun og þannig verið almennt góð
fyrir andlega heilsu,“ segir hún.
„Það þurfa auðvitað ekki allir að
stunda sjálfsfróun, en það getur
verið gott að kynnast kynfærun-
um sínum og skoða þau, aðallega
ef fólk ætlar að stunda kynlíf með
öðrum.
Fólk er oft kannski feimið við að
tala um sjálfsfróun en talar svo við
mig um kynlífstækin sín og hvað
þau séu geggjuð, þannig að aukin
umræða um kynlífstæki hefur
gert það samtal auðveldara,“ segir
Indíana. „Fólki í parasamböndum
finnst líka oft auðveldara að lýsa
því sem því finnst gott með því að
lýsa tæki og hvað er gott við það,
en fólk á erfiðara með að tala um
það í samhengi við sjálfsfróun.“ ■
Hægt er að fylgjast með Indíönu
í gegnum heimasíðu hennar,
indianaros.is, og á samfélagsmiðl-
um, á facebook.com/Indianaros6/
og instagram.com/indianaros6/.
6 kynningarblað 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURUNAÐSVÖRUR