Fréttablaðið - 10.02.2022, Side 36
Umfjöllun Íslendinga um sjálf-
stæðisstríð Grikkja á nítjándu öld
verður til tals á málþingi Félags
um átjándu aldar fræði næsta
laugardag.
arnartomas@frettabladid.is
Félag um átjándu aldar fræði stendur
fyrir málþingi í Þjóðarbókhlöðunni
næsta laugardag þar sem farið verður
yfir nýjar rannsóknir sagnfræðinga á
átjándu og nítjándu öld. Einn þeirra er
Arnór Gunnar Gunnarsson sem flytur
erindi þar sem rýnt er í sjálfstæðisstríð
Grikklands og umfjöllun Íslendinga um
það.
„Ég datt eiginlega inn á þetta efni
þegar ég var að taka kúrs í meistaranámi
mínu í New York þar sem fjallað var um
gríska sjálfstæðisstríðið og alþjóðlega
hreyfingu fyrir því,“ segir Arnór Gunnar.
„Þetta var hálfgert æði í Evrópu á sínum
tíma og mig langaði að skoða aðeins
íslenska vinkilinn á því.“
Sjálfstæðisstríð Grikklands gegn
Ottómanveldinu stóð yfir frá árunum
1821 til 1829 og lauk með sjálfstæði
Grikkja. Í fyrirlestrinum mun Arnór
Gunnar fara yfir hvernig fjallað var um
stríðið í íslenskum tímaritum á þeim
tíma.
„Þessi alþjóðlega hreyfing fyrir sjálf-
stæðu Grikklandi var mál málanna á
þessum tíma,“ útskýrir hann en hug-
myndir Íslendinga um þjóðerni voru
að fara af stað um þær mundir. Arnór
Gunnar vill þó ekki ganga svo langt að
segja að sjálfstæðisstríð Grikkja hafi
verið nokkur kveikja. „Þetta vakti samt
athygli enda er einhver skyldleiki þarna
á milli. Það eru miklar umræður um
þjóðir, menningararf, tungumál og þess
háttar og síðar meir áttu Fjölnismenn og
Baldvin Einarsson eftir að líkja Íslandi
við Grikkland.“
Áhuga umheimsins á sjálfstæðisstríði
Grikklands segir Arnór Gunnar að megi
meðal annars rekja til ímyndarinnar
sem Forn-Grikkland naut á þessum
tíma.
„Þetta var úti um allt í menntun fólks
Evrópu á þessum tíma, hvort sem það
voru bókmenntir, listir, tungumál og
fleira,“ segir hann og nefnir sem dæmi
Byron lávarð, sem bæði ferðaðist til
Grikklands og dó þar þegar hann tók
þátt í þessu. „Hann vakti athygli á þessu
enda var hann hálfgerð rokkstjarna á
þessum tíma.“
Málþingið hefst klukkan 13.30 á
laugardag. Auk erindis Arnórs Gunnars
verða þrír aðrir fyrirlestrar í boði sem
hægt er að kynna sér á Facebook-síðu
félagsins. n
Síðar meir áttu Fjölnis-
menn og Baldvin Einars-
son eftir að líkja Íslandi
við Grikkland.
Arnór Gunnar
Gunnarsson
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma okkar og langamma,
Jóhanna Lárentsínusdóttir
frá Stykkishólmi,
til heimilis að Skagfirðingabraut 45,
Sauðárkróki,
lést á hjúkrunardeild HSN á Sauðárkróki 4. febrúar.
Minningarathöfn og útför auglýst síðar.
Sigurður Lárus Hólm Jóhanna Bárðardóttir
Jóhann Ari Lárusson Alda Stefaníudóttir
Friðrik Lárusson Helga Marín Gestsdóttir
langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ragnhildur Jóna
Magnúsdóttir
frá Lambhól,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
miðvikudaginn 2. febrúar síðastliðinn.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn
10. febrúar klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á
www.youtube.com/watch?v=lCFMHu_G4vg
Trausti Björnsson
Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir
Kristján Kristjánsson
Jóhannes Bragi Kristjánsson Svava Hansdóttir
Auður Kristjánsdóttir Guðmundur Bragason
Guðný Einarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, afi og langafi,
Óskar Henning
Valgarðsson Áldal
vélvirki,
Hólastekk 2,
sem lést á Líknardeild Landspítalans föstudaginn 28. janúar,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju í Garðabæ mánudaginn
14. febrúar klukkan 13. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Kolbrún Karlsdóttir
börn, barnabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Steinþór Sigurðsson
listmálari og leikmyndahönnuður,
er látinn.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, mánudaginn 14. febrúar, kl. 13.00.
Erna Guðmarsdóttir
Sigurður Orri Steinþórsson Ragnheiður Guðmundsdóttir
Anna Þóra Steinþórsdóttir Harry Mashinkila
Stígur Steinþórsson Sigurlaug Arnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Eysteinn Bragason
sjómaður,
Vesturbergi 8, Reykjavík,
lést 26. janúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Blessuð sé minning hans.
Hrefna Guðmundsdóttir
Bragi Emilsson
Valgeir Gestur Eysteinsson
Björgvin Bragason Maria Silva
Anton Emil Bragason Guðrún Kristófersdóttir
Bryndís Bragadóttir Elvar Grétarsson
Andrés Bragason Elínborg Rabanes
Sjöfn Bragadóttir
Helga Bragadóttir
og frændsystkini hins látna.
Innilegar þakkir til allra
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við fráfall og útför ástkærs föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Guðna B. Guðnasonar
fyrrverandi kaupfélagsstjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar í
Kópavogi fyrir góða umönnun.
Gunnar Guðnason Erna Olsen
Þórólfur Guðnason Sara Hafsteinsdóttir
Guðni B. Guðnason Ásta Björnsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kristín Blöndal
hjúkrunarfræðingur,
Smáraflöt 41, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi þriðjudaginn 8. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Hjálmar Blöndal Guðjónsson
Elías Blöndal Guðjónsson Kristín Hrund Guðm. Briem
Katrín og Jóhann
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðleifur Guðmundsson
fv. kennari,
Boðaþingi 6, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
föstudaginn 4. febrúar. Útförin fer fram frá
Lindakirkju miðvikudaginn 16. febrúar kl. 13.
Allir hjartanlega velkomnir.
Bestu þakkir til starfsfólks á líknardeild Landspítalans
fyrir hlýlegt viðmót og góða umönnun.
Bára Stefánsdóttir
Stefán Guðleifsson
Steinar Þór Guðleifsson Hulda Hákonardóttir
Rúnar Berg Guðleifsson Bryndís Baldvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Grikkland norðursins
Herbúðirnar
við Karaiskak-
is. Theodoros
Vrzyakis, 1855.
1824 Simón Bolívar verður einræðisherra í Perú.
1931 Nýja-Delí verður höfuðborg Indlands.
1943 Orlofslög eru samþykkt á Alþingi sem tryggja einn
frídag fyrir hvern unninn mánuð.
1944 Þrjár þýskar flugvélar gera árás á 10 þúsund lesta
olíuskipið El Grillo á Seyðisfirði og sökkva því með
sprengjum.
1975 Evrópuráðið gefur út jafnlaunatilskipun.
2005 Karl Bretaprins tilkynnir trúlofun sína og Camillu
Parker Bowles.
2006 Vetrarólympíuleikar hefjast í Tórínó á Ítalíu.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR