Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Ég var skikkaður til þess að
vinna í sjálfum mér og byggja
mig upp, fólk hefur svo sem
mátt þola harðari refsingar.
Vandinn fyrir mig er hve
óljós tímaramminn er. Ég hóf
þessa vegferð fyrir rúmum
fimm árum þegar ég lét renna
af mér. Þegar ég steig út af Vogi
hugsaði ég að þetta væri komið
en svo var aldeilis alls ekki, þá
opnaðist ormagryfja troðfull af
áföllum, félagskvíða, almennri
kvíðaröskun, óheilbrigðum
samskiptamynstrum og ég veit
ekki hvað og hvað.
Þetta er eins og whack-a-
mole leikur, um leið og ég kveð
niður einn draug vaknar annar
til lífsins sem ýfir einhvern
andskotann upp hjá þeim fyrri.
Þetta er endalaust.
Ég tek mig til og laga svefn-
rútínuna og um leið og ég jafna
mig á stöðugri þreytunni átta ég
á mig á því að mér er ómögulegt
að sitja í sjálfum mér og án þess
að skoða símann minn. Fokk,
segi ég þá, ég er bara að deyfa
mig eins og með áfenginu og
dópinu. Ég slekk á símanum og
sný honum á hvolf og set inn í
annað herbergi.
Fljótlega átta ég mig á því
að ég er að einangra mig aftur
af því að ég get ekki talað við
neinn án símans. Þá er ég að
leyfa félagskvíðanum að ná
tökum á mér.
Ég kveiki aftur á símanum og
sé að mér er boðið í partí, mig
langar alls ekki. Ég verð samt
að fara, er það ekki? Ég má ekki
gefa undan félagsfælninni?
„Mæti með læti ;)“ skrifa ég og
fatta að þetta er meðvirkni.
Þetta er ekkert líf. n
Sjálfsvinna
Opnaðu þig!
Ekki vanrækja geðræktina. Talaðu um tilnningar.
Við bjóðum 2 fyrir 1 af sálfræðitímum á netinu hjá
Mín líðan. Þú færð því 50 mínútna tíma á 7.990 kr.
Öll bestu fríðindin FyrirÞig eru í appinu.
Sálfræðiviðtal
FyrirÞig
Öskudags-
búningar
Fermingar-
skraut
Faxafeni 11,
108 Reykjavík
www.partybudin.is
FJÖLNOTA POKAR
Á TILBOÐSVERÐI
DAGANA 7.-14. FEB.
99 kr.