Morgunblaðið - 21.01.2022, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 1. J A N Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 17. tölublað . 110. árgangur .
HVERNIG ER HÆGT
AÐ NJÓTA BESTU
ÁRANNA?
Á BESTA ALDRI 28 SÍÐUR
Þótt íslenska karlalandsliðið í handknattleik
væri án sex sterkra leikmanna í gærkvöld veitti
það heimsmeisturum Dana harða keppni á Evr-
ópumótinu í Búdapest. Danir unnu að lokum
fjögurra marka sigur, 28:24, og eru efstir í milli-
riðlinum ásamt Frökkum sem eru næstu mót-
herjar Íslendinga en liðin mætast á morgun
klukkan 17.
Dönum gekk illa að ráða við Ómar Inga Magn-
ússon sem skoraði átta mörk fyrir íslenska liðið í
gærkvöld og lagði upp fjölmörg önnur fyrir sam-
herja sína. » 2 og 30-31
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Vængbrotið lið veitti Dönum harða keppni
Landsnet hyggst
leggja Blöndulínu
3 frá Blöndustöð
um Kiðaskarð
niðri í Skagafirði
og þaðan um Efri-
byggð, yfir Hér-
aðsvötn og í
mynni Norður-
árdals og síðan
meðfram núver-
andi línu um
Öxnadalsheiði og Öxnadal til Ak-
ureyrar. Þessi leið er aðalvalkostur
endurtekins umhverfismats á línu-
leiðinni. Verði þetta niðurstaðan fer
Blöndulína ekki um Vatnsskarð og
hluta Eystribyggðar, eins og áformað
var og gert ráð fyrir í eldra umhverf-
ismati og gagnrýnt var af íbúum og
landeigendum. Hins vegar er leiðin
um Öxnadalsheiði á svipuðum slóðum
og áður var áformað. Jarðstrengur er
ekki talinn mögulegur. »4
Blöndulína
á nýjum
slóðum
- Kiðaskarðsleið er
niðurstaða matsvinnu
Norðurland Mast-
ur raflínu reist.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Orkubú Vestfjarða og RARIK búa sig undir að
brenna milljónum lítra af olíu á komandi mán-
uðum til þess að tryggja húshitun á Vestfjörðum
og á Seyðisfirði. Forstjóri Orkubúsins telur raf-
orkuskort leiða tæplega 500 milljóna króna kostn-
að yfir fyrirtækið á komandi þremur mánuðum og
að honum verði óhjákvæmilega velt yfir á neyt-
endur á Vestfjörðum til lengri tíma litið. Höggið
jafngildi 70 þúsund króna reikningi á hvert
mannsbarn á svæðinu.
Orkuskerðingin sem fyrirtækin standa frammi
fyrir kemur í kjölfar þess að Landsvirkjun hafði
einnig tilkynnt öllum fiskimjölsverksmiðjum
landsins að þær myndu ekki fá keypta skerðan-
lega orku úr kerfum fyrirtækisins. Hafa forsvars-
menn fyrirtækjanna áætlað að það leiði til þess að
20 milljónum lítra af olíu verði brennt við bræðsl-
una á yfirstandandi vertíð.
RARIK verður ekki aðeins fyrir höggi vegna ol-
íubrennslu við upphitun Seyðisfjarðarkaupstaðar
heldur einnig vegna þess að fyrirtækið hefur haft
tekjur af flutningi raforku til bræðslanna á Aust-
urlandi. Metur fyrirtækið tjón sitt í heildina á 300
milljónir, miðað við að loðnuvertíðin verði jafn stór
og væntingar hafa verið um.
Gögn sem Landsvirkjun hefur veitt Morgun-
blaðinu aðgang að sýna að skammtímamarkaður
með raforku hefur tekið miklum breytingum á ör-
fáum vikum. Á 90 dögum hafa svokallaðar mán-
aðarblokkir á þeim markaði hækkað um 46%. Í
svari fyrirtækisins við fyrirspurn blaðsins segir að
vatnsbúskapur hafi ekki verið lakari um árabil
vegna þurrka og á sama tíma sé eftirspurn eftir
raforku mikil. „Raforkukerfið er fulllestað um
þessar mundir og Landsvirkjun hefur ekki getað
annað allri eftirspurn frá núverandi viðskiptavin-
um.“
Segir orkuskort ekki yfirvofandi
Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að
orkumálastjóri hefði sent bréf á raforkuframleið-
endur og kallað, með 48 klukkustunda fyrirvara,
eftir upplýsingum um mögulega aukningu í orku-
framleiðslu frá og með 1. febrúar næstkomandi. Í
svari Höllu Hrundar Logadóttur orkumálastjóra
við fyrirspurn blaðsins í gær segir að bréf hennar
hafi verið rangtúlkað. Það hafi ekki falið í sér yf-
irlýsingu um að orkuskortur væri yfirvofandi á Ís-
landi.
Líkt og umfjöllun blaðsins leiðir í ljós stefnir allt
í að allt að 25 milljónum lítra af olíu verði brennt á
komandi vikum og mánuðum hér á landi vegna
þess að fyrirtæki og heimili fá ekki aðgang að raf-
orku til húshitunar og mjölframleiðslu.
Gríðarleg olíubrennsla
- Landsvirkjun hækkar verð á skammtímamarkaði um 50% - Seyðisfjörður og
Vestfirðir þurfa að stóla á olíu til húshitunar næstu mánuði - Mikil umhverfisáhrif
Olíukatlar Orkubú Vestfjarða hyggst stóla á sex
olíukatla til húshitunar á komandi mánuðum.
MStefnir í mikla olíubrennslu »10
Bankasýsla ríkisins hefur lagt
fram tillögu til fjármála- og efna-
hagsráðherra um að stofnunin fái
heimild til að selja alla eignarhluti
ríkisins í Íslandsbanka hf. í nokkr-
um áföngum.
Salan skuli fara fram í samráði
við ráðherra, það er um skiptingu
áfanganna og tímasetningar.
Óskað er eftir að þessi heimild
gildi í tvö ár eða til og með 31.
desember 2023, líkt og stjórn-
arsáttmáli ríkisstjórnarinnar og
fjárlög fyrir árið 2022 kveða á um.
Samhliða lagði stofnunin einnig
fram minnisblað til stuðnings til-
lögunni.
Í minnisblaðinu kemur fram að
áætlanir stjórnvalda geri ráð fyrir
að selja mætti u.þ.b. helming eign-
arhluta á þessu ári og helming
á því næsta, en áfangaskipting
og tímasetningar ráðast af að-
stæðum hverju sinni.
Litið er á frumútboð á rúmum
35 prósentum af hlutafé bankans
frá því í júní á síðasta ári sem vel
heppnað og telur Bankasýslan ein-
sýnt að sala á frekari hlutum fari
einnig fram með almennu útboði.
Gert er ráð fyrir að ráðherra verði
upplýstur að fullu leyti um hverja
sölu, enda þarf samþykki hans
fyrir söluverði og stærð eign-
arhluts í hvert skipti.
karitas@mbl.is
Vilja selja
allan Ís-
landsbanka
- Hafa óskað eftir
heimild til tveggja ára