Morgunblaðið - 21.01.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.01.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landsnet hyggst leggja Blöndulínu 3 frá Blöndustöð um Kiðaskarð nið- ur í Skagafjörð og þaðan um Efri- byggð, yfir Héraðsvötn og síðan meðfram núverandi línu um Öxna- dalsheiði og Öxnadal til Akureyrar. Þessi leið er aðalvalkostur endur- tekins umhverfismats á línuleiðinni. Ekki er talinn kostur að hafa jarð- strengi á hluta línuleiðarinnar. Þá verður núverandi byggðalína rifin frá Varmahlíð til Akureyrar. Bygging Blöndulínu 3 er liður í endurnýjun byggðalínunnar. Hún liggur frá Blönduvirkjun til Akur- eyrar. Framkvæmdum er lokið við Kröflulínu 3 og standa yfir við Hólasandslínu 3 en þær tengja saman Akureyri og Austurland. Síðan er Holtavörðuheiðarlína 1, á milli Hvalfjarðar og Holtavörðu- heiðar, í undirbúningi. Styst á veg kominn er kaflinn frá Holtavörðu- heiði í Blönduvirkjun en það er síð- asta línulögnin í þessum fyrsta hluta endurnýjunar byggðalín- unnar. Matið unnið öðru sinni Undirbúningur fyrir Blöndulínu hefur staðið lengi yfir. Niðurstaða umhverfismats sem lauk árið 2013 var sú að best væri að fara með lín- una um Vatnsskarð og Efribyggð í Skagafirði og síðan meðfram nú- verandi línu um Öxnadalsheiði og Öxnadal til Akureyrar. Íbúar á Efribyggð og Vatnsskarði mót- mæltu þessum áformum og einnig landeigendur og íbúar við línuleið- ina til Akureyrar. Vegna breyttra forsendna í kjölfar dóma um ógild- ingu eignarnáms og fram- kvæmdaleyfa og fleiri atriða ákvað Landsnet að vinna nýtt umhverfis- mat. Í gærkvöldi var kynntur aðal- valkostur Landsnets í umhverfis- matsskýrslu sem afhent verður Skipulagsstofnun í dag til yfirferð- ar fyrir opinbera kynningu en hann er afrakstur mats á nýjum og eldri valkostum þar sem í öllum tilvikum eru metnir tveir eða fleiri kostir. Helsta breytingin frá fyrri áformum er að nú er svokölluð Kiðaskarðsleið, niður Mælifellsdal í Skagafirði, austur yfir Eggjar og Héraðsvötn og inn í mynni Norður- árdals, sett sem aðalvalkostur. Það þýðir að ekki verður farið um Vatnsskarð og nyrsta hluta Efri- byggðar. Eigi að síður þarf að tryggja tvöfalda tengingu við Varmahlíð og það verður gert með jarðstreng á lægri spennu frá línu- stæðinu í Mælifellsdal. Hlín Benediktsdóttir, yfirmaður undirbúnings framkvæmda hjá Landsneti, segir að yfirleitt muni ekki miklu um umhverfisáhrif val- kosta. Þó séu heildaráhrif leiðar- innar frá Blöndustöð og að mynni Norðurárdals heldur minni en ef farið yrði um Vatnsskarð og þaðan um Efribyggð eða Héraðsvötn. Gert er ráð fyrir Héraðsvatnaleið- inni í skipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar með jarðstrengskafla á viðkvæmum stað. Segir Hlín að frá mynni Norðurárdals að Akur- eyri séu umhverfisáhrif minni, á heildina litið, ef farið er með núver- andi línuleið um Öxnadalsheiði og Öxnadal til Akureyrar heldur en ef farið yrði yfir Hörgárdalsheiði og um Hörgárdal. Með tilliti til nátt- úruvár og öryggis sé leiðin um Kiðaskarð innan ásættanlegra marka en það sama sé ekki hægt að segja um leið yfir Hörgárdals- heiði. „Um er að ræða örugga og hag- kvæma leið sem styrkir þróun at- vinnulífs og samfélags á svæðinu,“ segir Hlín um aðalvalkostinn. Engir jarðstrengskaflar Í fyrra umhverfismati var gert ráð fyrir að síðasti kaflinn, á milli nýs tengivirkis og tengivirkisins á Rangárvöllum, yrði lagður með jarðstreng með lægri spennu. For- sendur hafa breyst vegna breyt- ingar á kerfinu við Akureyri og er nú áformað að tengja Blöndulínu beint við Rangárvelli þar sem verið er að tengja Hólasandslínu 3. Í um- hverfismatinu nú eru skoðaðir nokkir möguleikar á jarðstrengs- köflum. Í aðalvalkosti Landsnets er gert ráð fyrir loftlínu alla leiðina, engum jarðstrengjum. Hlín segir afar takmarkað svigrúm til jarð- strengslagna í Blöndulínu 3 og þeir myndu einnig draga úr mögu- leikum til jarðstrengja í aðliggjandi svæðisbundnum kerfum. Þrátt fyrir að staðbundinn sjónrænn ávinning- ur geti fengist af því að leggja stutta kafla í jörðu fáist mun meiri umhverfislegur ávinningur af því að nýta svigrúm til jarðstrengslagna í nærliggjandi lágspenntari kerfum svo sem til að setja eldri línur í jörðu, á mun lengri köflum, eða leggja nýjar línur í jörðu. Það sé einnig í samræmi við stefnu stjórn- valda. Á móti nýrri línu verður Rangár- vallalína frá Varmahlíð til Akureyr- ar rifin. Koma því 342 möstur í stað 672 mastra því nýju möstrin eru stærri og með lengra haf á milli en í núverandi línu. Skiptar skoðanir Sérstakt verkefnaráð með fulltrúum hagaðila hefur verið til ráðgjafar við umhverfismatsferlið og fundað hefur verið með landeig- endum og íbúum. Hlín segir að í ferlinu hafi borist margar umsagnir og athugasemdir, meðal annars um það hvaða línuleiðir ætti að meta. „Mikil hjálp hefur verið í því og orðið til að bæta matið.“ Umhverf- ismatið grundvallast síðan á því að bera saman áhrif valkosta með til- liti til umhverfis, samfélags, örygg- is reksturs og hagkvæmni. Blöndulína fer um Kiðaskarð - Landsnet setur Kiðaskarðsleið sem aðalvalkost í umhverfismati í stað Vatnsskarðs og Efribyggðar - Áfram farið um Öxnadalsheiði - Engir jarðstrengir á leiðinni - Gamla línan verður rifin Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Á Efribyggð Verði af framkvæmdum samkvæmt aðalvalkosti í umhverf- ismati mun byggðalínan þvera Skagafjörð framan við Mælifellshnúk. Varmahlíð Aðalvalkostur Blöndulínu 3 Akureyri Blöndu- stöð Leiðin liggur um Kiðaskarð niður Mælifellsdal, um Efribyggð og síðan meðfram núverandi línu um Norðurárdal, Öxnadalsheiði, Öxnadal og til Akureyrar Blöndulína 3: Svæði A B C Jarðstrengur til Varmahlíðar Skýrsla um umhverfismatið verður birt þegar Skipulags- stofnun hefur farið yfir hana og þá gefst sex vikna frestur til að gera athugasemdir. Landsnet þarf að svara þeim og síðan hef- ur Skipulagsstofnun tíma til að gefa álit sitt og með því lýkur umhverfismati. Þá tekur við ann- ar undirbúningur framkvæmda, svo sem samningar við landeig- endur. Í áætlunum er gert ráð fyrir því að framkvæmdir við að leggja Blöndulínu 3 hefjist á fyrri hluta næsta árs og að þeim ljúki í lok árs 2024. Framkvæmd undirbúin MATI ER AÐ LJÚKA Kennarar og stjórnendur í tónlist- arskólum samþykktu nýjan kjara- samning Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) við Samband íslenskra sveitarfé- laga með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu, sem lauk í gær. Atkvæði greiddu 262 og var kjör- sóknin 54,4% prósent. Já sögðu 190 eða 72,5%, nei sögðu 56 eða 21,3% og 16 skiluðu auðu. Gildistími hins nýja kjarasamn- ings er frá 1. janúar sl. til 31. mars á næsta ári. Samningurinn kveður m.a. á um 25 þúsund kr. frá 1. janúar sl. í samræmi við lífs- kjarasamningana og 2,5% hækkun annarra launa og greiðslur 96 þús. kr. annaruppbóta 1. júní og 1. des- ember á þessu ári. Í FT eru 530 félagsmenn í um 80 tónlistarskólum um land allt og er félagið eitt af sjö aðildar- félögum Kennarasambands Ís- lands. Í seinustu viku felldu fé- lagsmenn í Félagi grunnskóla- kennara, sem einnig er aðildar- félag KÍ, nýgerðan kjarasamning þeirra með 73,1% atkvæða gegn 24,8%. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Nemendur á tónleikum Félagsmenn í FT starfa í um 80 tónlistarskólum. 72,5% samþykktu kjarasamning FT - Niðurstaðan þveröfug við úrslit í FG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.